„Hjólum í helvítis tíkina!“
Innlent

Íslendingur myrtur í Kanada og á höfði hans voru átta djúpar rispur: „Höfuðkúpa Jóhanns brotnaði“

Dagbók Önnu: „Íslendingar sem koma hingað væla eins og stungnir grísir yfir hlýindunum“

Dagbók Önnu: „Íslendingar sem koma hingað væla eins og stungnir grísir yfir hlýindunum“
Anna Krist­jáns­dóttir.

Anna Krist­jánds­dóttir er tíð­rætt um hita í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni.

Ein vin­sælasta dag­bók inter­nets­ins, fyrir utan kannski dag­bók Önnu Frank, er dag­bók Önnu Krist­jáns­dóttur vél­stjóra, en hún birtir eina blað­síðu á hverjum ein­asta degi árs­ins. Í nýj­ustu færsl­unni hælir hún veðr­inu á Tenerife, sem hún kallar Paradís. Segir hún þó að Íslend­ingar á eyj­unni „væli“ yfir hit­anum, bæði ferða­menn og þeir sem búið hafa í Paradís í nokkur ár. Minnist Anna á hit­ann sem oft var óbæri­legur inni í vél­ar­rúmi skipa þar sem hún vann á sínum yngri árum. Svo mik­ill var hit­inn eitt sinn að henni sveið í and­litið.

Í nið­ur­lagi færsl­unnar skiptir Anna skyndi­lega um stefnu og talar um Íslands­banka­málið og er greini­lega með sterkar skoð­anir á því. Afsakar hún sig svo í blá­lokin: „Afsakið mínar kæru les­endur, en þegar spill­ingin er svona aug­ljós, þá á ég til að missa mig sem var ekki ætl­unin, enda þekki ég marga heið­ar­lega og góða hægri­menn, þótt ég sé þeim ósam­mála í póli­tík.“

Færsluna má lesa hér að neðan:

„Dagur 1416 – Veðrið í Paradís.

Und­an­farna daga hefur verið hið ágætasta veður í Paradís. Hitinn á dag­inn hefur farið upp í 33°C og vart farið niður fyrir 21°C á á nótt­unni. Það hefur verið glaða­sól­skin flesta daga og ekki yfir neinu að kvarta.Og þó.Íslend­ingar sem koma hingað væla eins og stungnir grísir yfir hlý­ind­unum og óska þess að það kólni sem fyrst. Jafnvel Íslend­ingar sem hafa búið hér um nokk­urra ára skeið eru líka farnir að kvarta yfir hit­anum. Þeir gera sér enga grein fyrir því að það er bara hollt að svitna aðeins sem bendir á að lík­ams­starf­semin og stærsta líf­færið, húðin er í góðu lagi og vinnur eðli­lega.—–Ég var einu sinni á mt Esso Aalborg, gömlu dönsku tank­skipi á milli bekkja í Vél­skól­anum með 13.700 hest­afla Burmeister&Wain aðal­vél. (fyrir eldri vél­stjóra, þá var mynd af henni í dönsku Christian Knak vél­fræði­bók­inni). Ég var aðstoð­ar­vél­stjóri þarna um borð, í dag­vinnu á sigl­ingum en á dælu­vakt í höfnum og var mikið að vinna á verk­stæð­inu sem var ofan við aðal­vél­ina og hit­inn fór iðu­lega yfir 40°C á verk­stæð­inu. Þá var dálítið erfitt að vera í erf­ið­is­vinnu.Löngu síðar var ég vél­stjóri á Laxfossi (III) ex City of Hartlepool með furðu­leg­ustu aðal­vél sem ég hefi komið nálægt, Doxford 58SJ3 og var stærðar kæli­vatns­tankur niðri á neðsta gólfi í véla­rúm­inu. Sá virk­aði eins og 40 fer­metra ofn og þegar siglt var á Ameríku að sumri til fór hit­inn í véla­rúmi upp í 50°C svo að manni sveið í and­litið af hit­anum. Svo var tank­ur­inn ein­angr­aður og hit­inn varð bæri­legur eftir það.Eftir reynsl­una af þessum tveimur skipum verður 30°C hit­inn eins og lélegur brand­ari. En látum Íslend­ing­ana kvarta. Þeir munu hins­vegar ekki kvarta þegar kemur að næstu kosn­ingum, reyna að telja sjálfum sér trú um að gjör­spillt Banka­sýsla rík­is­ins hafi gert best hepp­uðu sölu rík­is­eigna sem þekk­ist í gjör­vallri Íslands­sög­unni þegar hluti Íslands­banka var seldur vild­ar­vinum Flokks­ins og nán­ustu ætt­ingjum fjár­mála­ráð­herr­ans í lok­uðu útboði til vild­ar­vin­anna, mæta svo á kjör­stað og kjósa sömu spill­ing­una og frænd­hygl­ina aftur yfir sig.—–Afsakið mínar kæru les­endur, en þegar spill­ingin er svona aug­ljós, þá á ég til að missa mig sem var ekki ætl­unin, enda þekki ég marga heið­ar­lega og góða hægri­menn, þótt ég sé þeim ósam­mála í póli­tík.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

húmor

Anna er ekki hrifin af hrekkjavökunni: „Ég er ekkert hrifin af því að leika lík“
Menning

Anna er ekki hrifin af hrekkja­vök­unni: „Ég er ekk­ert hrifin af því að leika lík“

Anna Krist­jáns­dóttir er farin til Spánar eða það er að segja á meg­in­land Spánar. Frá því segir hún í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni. Vél­stjór­inn og húmorist­inn Anna Krist­jáns­dóttir skrifar afar vin­sælar dag­bóka­færslur á Facebook og hefur gert frá því að hún flutti til Tenerife fyrir nokkrum árum. Í nýj­ustu færsl­unni seg­ist hún þurfa að birta pistil­inn óvenju snemma í dag, þar...
Jón Gnarr heldur upp á hrekkjavöku sem Kári Stefánsson: „Ég stóðst ekki freistinguna“
Menning

Jón Gnarr heldur upp á hrekkja­vöku sem Kári Stef­áns­son: „Ég stóðst ekki freist­ing­una“

Jón Gnarr ætlar að halda upp á hrekkja­vöku í gervi Kára Stef­áns­sonar. Grínist­inn Jón Gnarr seg­ist í nýrri Facebook-færslu vera vanur að leika jóla­svein fyrir barna­börnin um jólin en upp á síðkastið hafi eldri börnin þekkt hann og skemmt fyrir hinum. En Jón dó ekki ráða­laus heldur ákvað að finna sér góða grímu á net­inu og sló inn leit­ar­orðin old...
Enginn hefur komið að máli við Dr. Gunna: „Easy money er vissulega easy money“
Menning

Enginn hefur komið að máli við Dr. Gunna: „Easy money er vissu­lega easy money“

Gunnar Lárus Hjálm­ars­son eða Dr. Gunni eins og hann er oft­ast kall­aður, segir engan hafa beðið hann að taka sæti á lista stjórn­mála­flokks fyrir kom­andi kosn­ingar. Dr. Gunni spaugar í nýrri Facebook-færslu um leið og hann aug­lýsir útgáfu­tón­leika hljóm­sveit­ar­innar Dr. Gunni sem fara fram í Iðnó á morgun. Gerir hann létt grín að „frægum í fram­boði“ sem er óvenju mikið...
Vill ríkisvæða smásölu á snjallsímum: „Það myndi breyta öllu“
Menning

Vill rík­i­s­væða smá­sölu á snjall­símum: „Það myndi breyta öllu“

Brynjar Níelsson vill rík­i­s­væða smá­sölu á snjall­símum. Spéfugl­inn og fyrrum þing­mað­ur­inn Brynjar Níelsson skrifar jafnan Facebook-færslur sem slá í gegn hjá les­endum hans enda löðr­andi í kald­hæðni og pílum á and­stæð­inga hans í póli­tík­inni. Í nýj­ustu færslu hans talar hann um Vín­búð­ina: „Það ger­ist margt í ÁTVR, mik­il­væg­ustu smá­sölu­verslun lands­ins í huga vinstri­manna og Fram­sókn­ar­manna og næst mik­il­væg­asta stofnun sam­fé­lags­ins...
Anna er til í heiðurssæti á lista Samfylkingarinnar: „Það eru kosningar í nánd og ég hlakka til“
Menning

Anna er til í heið­urs­sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar: „Það eru kosn­ingar í nánd og ég hlakka til“

Anna Krist­jáns­dóttir er spennt fyrir þing­kosn­ing­unum í nóv­em­ber og væri helst til í að vera í heið­urs­sæti Sam­fylk­ing­ar­innar. Gleði­gjaf­inn og vél­stjór­inn Anna Krist­jáns­dótitr talar um vænt­an­legar alþing­is­kosn­ingar sem fara fram í lok nóv­em­ber, í nýrri dag­bók­ar­færslu á Facebook. Í færsl­unni seg­ist hún einu sinni hafa verið á fram­boðs­lista, en það var árið 2009. Þó að hún hafi ekki verið í...
Anna Kristjáns átti kakkalakka sem gæludýr: „Ég er enn með samviskubit yfir fjöldamorðinu“
Menning

Anna Krist­jáns átti kakka­lakka sem gælu­dýr: „Ég er enn með sam­visku­bit yfir fjöldamorð­inu“

Anna Krist­jáns­dóttir átti sér kakka­lakka sem gælu­dýr um stutta stund er hún var á sjó fyrir all­mörgum árum síðan. Endaði það ævin­týri á fjöldamorði, sem bitið hefur sam­visku hennar síðan. Í fyrra­dag sagði Mannlíf frá dag­bók­ar­færslu vél­stjór­ans Önnu Krist­jáns­dóttur sem hún birti á Facebook þar sem hún sagði frá reynslu sinni af hinum sér­lega óvin­sælu kakkalökkum. En þar með var...
Innlent

Íslendingur myrtur í Kanada og á höfði hans voru átta djúpar rispur: „Höfuðkúpa Jóhanns brotnaði“

Innlent

Mannlíf óskar lesendum gleðilegra jóla

Mannlífið

Steig út úr rútu við Hvolsvöll og hvarf: „Á hverjum morgni gæli ég við bros þitt“

Menning

Hatrið var orðið svo mikið að þegar þau skildu sleit hann einnig sambandi við dóttur sína

Innlent

Flestir hafa kosið þrjá stjórnmálaflokka á ævinni

Innlent

Lækna-Tómas klífur fjöll fyrir krabbameinssjúka: „Ágóði mun renna til Ljóssins“

Heimur

Maður sprengdi af sér hönd í fagnaðarlátum í Los Angeles – MYNDBAND

Innlent

Hnífahrotti skar gest skemmtistaðar í nótt

Innlent

Klúður í Menntaskólanum í Reykjavík

Mannlífið

Sjoppueigandi á áttræðisaldri barinn og rændur: „Vona bara að þessi deli náist“

Innlent

Ríkissaksóknari áfrýjar dómi í máli Alberts: „Þetta kemur á óvart“

Innlent

Páll Vilhjálmsson ákærður: „Börn eru gerð móttækileg fyrir þátttöku í kynlífi“

Menning

Menning

Hatrið var orðið svo mikið að þegar þau skildu sleit hann einnig sambandi við dóttur sína

Menning

Stikla fyrir nýja hryllingsmynd Þórðar slær í gegn: „Ég get ekki beðið eftir þessari“

Menning

Lætur eldræður Sigurðar og séra Davíðs pirra sig: „Sjálfsagt er hægt að lesa texta með tilþrifum“

Menning

Birtir sláandi höfundauppgjör sitt fyrir síðasta ár: „Annars er bara ekki séns að lifa á þessu“

Menning

Ágúst mælir með hundalífi: „Gleðin, félagsskapurinn, dyntirnir, hlýjan, hárin og öll útiveran“