„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lækna-Tómas klífur fjöll fyrir krabbameinssjúka: „Ágóði mun renna til Ljóssins“

Lækna-Tómas klífur fjöll fyrir krabbameinssjúka: „Ágóði mun renna til Ljóssins“
Lækna-Tómas er mennsk fjalla­geit – Mynd: Facebook

Fyrir nokkrum dögum lenti Tómas Guð­bjarts­son, oft nefndur Lækna-Tómas, í Nepal en þangað er hann kom­inn til að klífa fjöll til styrktar Ljósinu en það eru sam­tök þeirra sem greinst hafa með krabba­mein. Tómas greind­ist sjálfur með krabba­mein í ristli fyrr á árinu en er á bata­vegi.

Á meðan ferð­inni ætlar Tómas að halda út dag­bók um ferð­ina og í nýjasta pistl­inum segir hann frá dögum 6 til 8.

„Það hefur gengið á ýmsu hjá mér sl. daga -efst í Kumbu­dalnum skammt frá rótum Everest,“ skrifar skurð­lækn­ir­inn um ferða­lagið. „Eins og kom fram í síð­ustu færslu veikt­ist ég heift­ar­lega með upp­köstum og nið­ur­gangi í Namche Bazar fyrir 5 dögum síðan. Þetta var talin mat­ar­eitrun en svo rén­uðu ein­kennin bara ekk­ert. Ég hef samt skrölt hingað upp­eftir en þurft að taka tvo auka­hvíld­ar­daga – bara til að geta verið á fótum. Mest legið í koju. Er algjör­lega orku­laus, enda misst nokkur kg – og minni helst á skræln­aða rús­ínu.. Erfitt að bjarga vökva­skorti þegar allt kemur upp úr manni aftur með þeim lyfjum sem maður tekur. Ég hef samt náð að fara í 2 stuttar aðlög­un­ar­göngur en þær ekki farið vel í mig.“

Tómas segir einnig frá því að hann hafi í fram­hald­inu farið á sjúkra­hús og hitt þar frá­bæran lækni sem greindi hann með iðra­sýk­ingu.

„Nú er ég því kom­inn á tvenns konar sýkla­lyf og 5 önnur lyf og salt­blöndur. Allt kost­aði þetta 75 doll­ara – með lyfj­unum. Vonandi hress­ist Eyjólfur við þetta en hér í tehús­inu eru all­nokkrir með svipuð ein­kenni og einum var flogið niður í gær til Katmandu. Góðu frétt­irnar eru þær að ég er með lífs­mörk eins og tví­tugur og háfjalla­veiki ekki gert vart við sig. Síðan er veðrið geggjað líkt og sjerp­arnir hér í Dingbotche,“ skrifar hann að lokum og lét ýmsar myndir fylgja með.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins