„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”
Breið­holt. Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint – Mynd: Reykjavíkurborg

Hin sex ára Linda Rós átti sér einskis ills von þriðju­dag­inn 21. októ­ber árið 1975 þegar hún lék sér með vin­konu sinni í gang­ingum á Asp­ar­felli 10 en húsið var þá ekki full­klárað. Konan sem pass­aði telp­urnar hafði brugðið sér í þvotta­húsið en kom hlaup­andi þegar skað­ræðisóp heyrð­ust úr Lindu litlu.

Köttur hafði sést væfl­ast um í blokk­inni í nokkra daga en það var einmitt hann sem var valdur af öskrum telpunnar litlu. Þegar barn­fóstran Bára kom að telp­unum var Linda Ósk á hnjánum og reyndi að verja sig fyrir trylltum kett­inum sem læsti klærnum í þá stuttu. Kött­ur­inn lét ekki af árás sinni fyrr en Bára spark­aði í hann.

Svo illa farin var Linda litla eftir klær katt­ar­ins að flytja varð hana á spít­ala þar sem hún gekkst undir aðgerð. Andlitið fór verst en hún hlaut einnig sár á hár­svörð­inn, á bakið og á lærið. Sagði móðir telpunnar í við­tali við blaða­menn að hún hefði ekki vilja ímynda sér hvernig þetta hefði endað ef eng­inn full­orð­inn hefði verið á staðnum. Kött­ur­inn, sem hafði sést leika sér við 10 mán­aða barn fyrr um dag­inn, lét sig hverfa og þegar Dag­blaðið fjall­aði um málið dag­inn eftir, var hann ekki enn fund­inn.

Hér má lesa frétt Dag­blaðs­ins:

KÖTTUR RÉÐST Á SEX ÁRA TELPU

„Má ekki til þess hugsa hvað gerzt hefði ef full­orð­inn hefði ekki komið að“, segir móð­irin

„Þetta var alveg hræði­legt. Það blæddi svo mikið”, sagði Jórunn Melax, móðir Lindu Óskar 6 ára telpu, sem köttur réðst á i Asp­ar­felli 10 í gær. „Kona hús­varð­ar­ins hringdi i mig í vinn­una en Linda var í pössun hjá Báru, konu í hús­inu. Ég fór beint upp á Slysa­varð­stofu. Þeir gátu ekk­ert gert. Það varð að fara með hana á Landakot og kalla út sér­fræð­ing til að gera aðgerð­ina. Það þurfti að taka tugi spora. Andlitið var verst og hún var lika klóruð i hár­sverð­inum, á bak­inu og á lær­inu.” segir Jórunn. Þær voru tvær telp­urnar að leik inni í gang­inum í Asp­ar­felli 10. Húsið er ekki full­frá­gengið og aðal­dyr vantar í suð­ur­hlið. Svartur köttur hefur verið að flækj­ast um í blokk­inni í nokkra daga og kom kona hús­varð­ar­ins að kett­inum að leik við 10 mán­aða gam­alt barn á stofu­gólf­inu fyrr um dag­inn. Bára sem passar telp­urnar tvær var í þvotta­hús­inu, þegar hún heyrði veinin í telp­unni og hvæsið í kett­inum. Var Linda litla á hnjánum til að reyna að verja sig. Kött­ur­inn hætti ekki fyrr en Bára spark­aði í hann. „Ég get ekki til þess hugsað hvað hefði skeð ef ekki hefði verið ein­hver full­orð­inn í nánd”, segir Jórunn. Leitað hefur verið að kett­inum, en hann hefur enn ekki fundizt. Linda Ósk liggur nú á Landa­koti og líður vel eftir atvikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baksýnisspegillinn

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Íslend­ingur kom upp um rúss­neska njó­sn­ara: „Tveir af njósn­urum erlends stór­veldis stóðu afhjúpaðir“

Styrmir Gunn­ars­son heit­inn er ekki eini njósn­ari Íslands­sög­unnar. Á meðan Styrmir njósn­aði um vinstri­s­inn­aða Íslend­inga fyrir Banda­ríkin og Sjálf­stæð­is­flokk­inn, reyndu Soví­et­menn að fá Ragnar nokkurn Gunn­ars­son til lags við sig. Árið 1962 hafði Ragnar sam­band við lög­regl­una og tjáði þeim frá því að Soví­et­menn væru að biðja hann um að ger­ast njósn­ari í þeirra þágu. Við tók reyfara­kennd atburða­rás sem...
Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Glitfaxi – flug­vélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hug­hvarf“

Þann 31. jan­úar 1951 lagði Dagota flug­vél Flug­fé­lags Íslands að nafni Glitfaxi af stað í áætl­un­ar­flug frá Vest­manna­eyjum til Reykja­víkur. Um borð var þriggja manna áhöfn og sautján far­þegar. Veðrið var vafa­samt en hríða­bylur var úti og ekki hafði verið flogið til eða frá Eyjum í þrjá daga vegna veð­urs­ins. Rétt fyrir fimm var Glitfaxi staddur yfir stefnu­vita Reykja­vík­ur­flug­vallar á...
Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Frækileg björgun Víkverja er Sig­ur­björg strand­aði – Aðstæður erf­iðar vegna roks og sand­byls

Föstu­dag­inn 7. mars árið 1981 strand­aði bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249, á Skóg­ar­sandi. Sjö menn voru í áhöfn báts­ins en tókst að bjarga þeim öllum. Vest­manna­eyja­radíó til­kynnti björg­un­ar­sveit­inni Víkverja frá Vík í Mýrdal klukkan 10:50 föstu­dags­morg­un­inn 7. mars 1981, að Vest­manna­eyja­bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249 hefði strandað á Skóg­ar­sandi. Björg­un­ar­sveitin, sem var þaul­vön álíka björg­unum, var ekki í miklum vand­ræðum með að bjarga öllum...
Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyja­firði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrek­aðir

Fimm ungir skátar frá Akureyri lögðu af stað í leið­angur í Eyja­firði annan í jólum 1980. Aðeins þrír þeirra komu lif­andi úr ferð­inni. Fimm manna skáta­hópur lentu í skelfi­legu óveðri, sem eng­inn hafði búist við, þegar þeir tjöld­uðu í Finna­staða­dal annan í jólum 1980. Í óveðr­inu fauk ofan af þeim annað tjald þeirra af tveimur. Ákváðu þeir því að ganga...
Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Hópur afbrotaung­linga napp­aður á Sauð­ár­króki – Innbrot, búðar- og jóla­skraut­s­þjófn­aður

Hópur afbrotaung­linga var hand­samaður á Sauð­ár­króki í des­em­ber árið 1980 en höfðu þeir þá stolið úr versl­unum í bænum fyrir hátt á fjórðu milljón króna. Í ein­hvern tíma á seinni­hluta árs­ins 1980, hafði stór hópur afbrotaung­linga á Sauð­ár­króki gert það sem „starfs­heiti“ þeirra ber með sér, framið afbrot víðs­vegar um bæinn. Ekki höfðu þeir ein­ungis brot­ist inn í versl­anir í...
Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Íslend­ingur yfir­bug­aði banka­ræn­ingja í Kaup­manna­höfn: „Hann er spennu­fík­ill“

Ungur íslenskur spennu­fík­ill komst í frétt­irnar í Danmörku þegar hann yfir­bug­aði banka­ræn­ingja. Brynjar Jökull Elíasson, þá 27 ára, var staddur á mót­or­hjóli sínu á rauðu ljósi í Kaup­manna­höfn fimmtu­dag­inn 29. apríl árið 1999, þegar hann verð var við fimm hettu­klædda menn koma hlaup­andi út úr banka og stökkva upp á skell­inöðrur. Beið hann ekki boð­anna heldur hent­ist strax af stað...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Skoðun
Aðsend grein

Kannski fannst þeim starfið ekki nógu gefandi?

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður