„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Birgi ofbýður aðför Morgunblaðsins gegn Ingu: „Öll þau ógeðslegu skrif eru rógur öfundarfólks“

Birgi ofbýður aðför Morgunblaðsins gegn Ingu: „Öll þau ógeðslegu skrif eru rógur öfundarfólks“
Inga Sæland félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra

„Nú er mikið skrifað og býsnast yfir meintum svikum og þjófn­aði Ingu Sæland og Flokki fólks­ins. Öll þau ógeðs­legu skrif eru rógur öfund­ar­fólks,“ skrifar Birgir Dýrfjörð, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Alþýðu­flokks­ins,  í aðsendri grein á Vísi þar sem hann grípur til varna fyrir Ingu Sæland og Flokk fólks­ins í styrkja­mál­inu.

Morg­un­blaðið hefur farið mik­inn í mál­inu og gefið til kynna að Flokki fólks­ins sé skylt að end­ur­greiða þær 240 millj­ónir sem hann fékk í rík­is­styrki þrátt fyrir að vera ekki form­lega skráður sem stjórn­mála­sam­tök.

„Skatturinn leiðbeindi Ingu“

Baldvin Örn Ólason.

Blaðið er með upp­slátt í mál­inu þar sem full­yrt er að Skatt­ur­inn hafi leið­beint Ingu varð­andi skrán­ingu flokks­ins en því hafi ekki verið sinnt. Fyr­ir­sögnin er Skatt­ur­inn leið­beindi Ingu. Þar segir að Flokk­ur fólks­ins hafi sendt Skatt­in­um til­kynn­ingu um breytta skrán­ingu sem stjórn­mála­sam­tök í lok janú­ar 2024, ein­mitt þegar verið var að greiða út rík­is­styrki til stjórn­mála­flokka. Til­kynn­ing­unni var hins veg­ar veru­lega ábóta­vant, svo Skatt­ur­inn gerði at­huga­semd­ir við hana og leið­beindi flokkn­um um úr­bæt­ur. Flokk­ur­inn hafi enn ekki brugð­ist við því. „Bald­vin Örn Ólason, verk­efna­stjóri hjá flokkn­um og son­ur Ingu Sæ­land, for­manns hans, átti í bréfa­skrift­um við Skatt­inn vegna þessa og sagði að úr þessu yrði bætt eft­ir breyt­ing­ar á flokks­sam­þykkt­um á lands­fundi, sem hald­inn yrði „bráð­lega“. Hann hef­ur enn ekki verið hald­inn og ekki hef­ur verið gerð önn­ur til­raun til þess að breyta skrán­ing­unni,“ segir í Morg­un­blað­inu.

Upp­sláttur Morg­un­blaðs­ins í dag. Myndaval blaðs­ins af Ingu er athygl­is­vert.

Svik Sjálfstæðisflokksins

Birgir rifjar upp í grein sinni í Vísi að mið­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hélt fund og sam­þykkti að end­ur­greiða 165 millj­ónir sem flokk­ur­inn þáði ólög­lega af athafna­mönnum.

Birgir Dýrfjörð.

„Samkvæmt reikn­ingum rík­is­end­ur­skoð­unar hefur þó verið tregt um efndir. Fyrir mörgum árum til­kynnti flokk­ur­inn svo að hann væri hættur við að vilja end­ur­greiða gjaf­irnar. Þannig kastaði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn syndum sínum bak við sig, – og sér þær ekki meir,“ skrifar Birgir.

Hann segir að „glæpur Flokks fólks­ins“ eigi að vera sá að veita við­töku fé frá Fjár­mála­ráðu­neyt­inu án þess að vera á skrá sem stjórn­mála­flokkur og rifjar upp lög um starf­semi stjórn­mála­sam­taka og kemst að því að svo­kall­aður meintur þjófn­aður Flokks fólks­ins beri öll ein­kenni þess að vera í „algjöru og vel skilj­an­legu granda­leysi“.

„Ráðherra getur ekki afsakað sig“

Birgir segir að ef sé að ræða refsi­vert athæfi þá beri aðrir þar stærri sök og meiri ábyrgð en Inga Sæland. Til dæmis Efnahags-og fjár­mála­ráðu­neyti sem létu rétta henni athuga­semda­laust alla þessa pen­inga. Hann bendir á að fjár­mála­ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins beri ábyrgð á mál­inu.

„Ráðherra getur ekki afsakað sig með því að hafa við sömu aðstæður látið sinn eigin flokk hafa hátt á annað hund­rað millj­ónir án þess að mega það, eins og skilja má af Morg­un­blað­inu þessa dag­ana,“ skrifar Birgir.

Í lok grein­ar­innar, Er Inga Sæland þjófur?, tekur Birgir fram að hann sé ekki félagi í Flokki fólks­ins.

Grein Birgis í Vísi í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins