Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
HeimurdægurmálAð tjaldabaki The Witcher: Henry Cavill sýnir okkur bardagasenu í einnu töku21. júlí 2023 Nýlega kom út þriðja sería þáttanna The Witcher, þar sem fyrrum Ofurmennið Henry Cavill fer með hlutverk aðalsöguhetjunnar Geralt of Rivia. Cavill og framleiðendur þáttanna hafa síður en svo verið sammála um framvindu sögunnar en leikarinn, sem er mikill aðdáandi bókanna sem þættirnir eru byggðir á, þótti skipta sér full mikið af. Cavill var því gert að taka poka sinn...
ViðtaldægurmálKventónskáld í fararbroddi á tónleikum í Hörpu um helgina3. ágúst 2022 Tónlistarhátíðin Seigla fer fram í Hörpu dagana 5.-7. ágúst næstkomandi. Kammer- og söngtónlist verða í fararbroddi dagskrár hátíðarinnar þetta árið. Alls munu sextán flytjendur koma fram á fimm tónleikum í Eldborgarsal Hörpu en auk þeirra verða fluttir tvennir tónleikar í Hörpuhorni en hinir síðarnefndu verða opnir almenningi án endurgjalds. Dagskrá hátíðarinnar má sjá hér á síðu Seiglu festivals og á...
InnlentdægurmálLærði meira í gegnum félagsstarfið en bóknámið10. nóvember 2019 Pétur Már Sigurðsson, 19 ára nemandi í Verzlunarskóla Íslands, gaf nýlega út kverið Fundur er settur, ásamt Birni Jóni Bragasyni, kennara sínum í skólanum. Kverið fjallar um félagsstörf, fundarsköp og ræðumennsku, sem er sameiginlegt áhugamál nemandans og kennarans.
Innlentdægurmál„Af hverju erum við að standa í þessu hljómsveitarbrölti?“24. ágúst 2019 Guðmundur Jónsson, tónlistarmaður og tækniteiknari, var að senda frá sér nýja plötu ásamt félaga sínum og nafna Guðmundi Gunnlaugssyni. Platan heitir Punch, er í rokkuðum blússtíl og flest lögin frumsamin eftir þá félaga.
Innlent„Viljum sýna brauðtertunni þann heiður sem hún á skilinn“24. ágúst 2019 Miðbærinn mun iða af lífi um helgina á Menningarnótt Reykjavíkur og viðburðirnir vægast sagt fjölbreyttir. Einn þeirra er brauðtertukeppni og við spurðum Erlu Hlynsdóttur, annan forsprakka Facebook-hópsins Brauðtertufélag Erlu og Erlu, út í þennan einstaka viðburð.
Innlent„Fátt betra en að horfa á sjúklega ríkt fólk öskra á hvert annað“17. ágúst 2019 Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, kynjafræðingur og dálkahöfundur, hefur marga fjöruna sopið um ævina og við fengum hana til að deila nokkrum staðreyndum um sjálfa sig.
Innlentdægurmál„Af hverju fannst mér í lagi að borða nautakjöt en ekki hval eða kálf?“12. ágúst 2019 Gunnar Theodór Eggertsson rithöfundur sendi nýlega frá sér bókina Sláturtíð, ferðasögu sem veltir upp ýmsum hliðum á samfélagsmálefnum á borð við veganisma og dýrasiðfræði.
InnlentPabbi greindist með alzheimer 53 ára24. júní 2019 Hildigunnur Jónasdóttir ætlar að hlaupa 10 kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu og styrkja um leið Alzheimersamtökin en faðir hennar var aðeins 53 ára þegar hann greindist með sjúkdóminn í fyrra. Með hlaupinu vill hún ekki síst vekja athygli á úrræðaleysi fyrir fólk sem greinist svona ungt með sjúkdóminn.
InnlentStrax sem barn heltekin af dauðanum23. júní 2019 Ljóðabókin Líkn eftir prestinn og rithöfundinn Hildi Eir Bolladóttur, sem nýlega kom út, fjallar öðru fremur um dauðann og hvernig við mætum honum með tilfinningum okkar og atferli. Hún segir að bókin sé persónuleg en líka myndræn í þeim skilningi að í henni sitji myndir sem Hildur hafi bara í huganum sem áhorfandi en séu ekki bein persónuleg reynsla.
InnlentLangar að hitta Jesú21. júní 2019 Söngkonan og flugfreyjan Elísabet Ólafsdóttir, Lísa, heldur tónleika í kvöld klukkan 20.30 ásamt Guðrúnu Ólu Jónsdóttur og Hlyni Þór Agnarssyni píanóleikara í Lindakirkju. Lísa mun flytja frumsamið efni meðan Gógó tekur íslenskt í bland við þekktar erlendar power-ballöður.
InnlentSkrifar um dauðann út frá sjónarhorni barnsins17. júní 2019 Miðstöð íslenskra bókmennta veitti nýlega Auði Stefánsdóttur nýræktarstyrk fyrir verk hennar Í gegnum þokuna, en nýræktarstyrkir eru veittir árlega vegna skáldverka höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum og eru hugsaðir sem hvatning til frekari dáða á þeirri braut.
InnlentSafna ryki og sýna í Bankastræti16. júní 2019 Listamennirnir Kristinn Arnar Sigurðsson og Högna Jónsdóttir standa fyrir vægast sagt óvenjulegri sýningu í Núllinu galleríi, Bankastræti 0, en þar munu þau sýna portrettmyndir sem eru unnar úr ryki frá heimilum fólks.