Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
InnlentGosinu líklegast lokið22. júní 2024 Svo virðist sem eldgosinu sem hófst við Sundhnúk 29. maí sé lokið, að því er fram kemur á Facebook-síðu Veðurstofu Íslands. Litla virkni var að sjá í gær í eldgosinu og þegar Almannavarnir flugu flygildi yfir gíginn í hádeginu, sást þar engin virkni. Þá hefur aukreitis órói á nálægum jarðskjálftamælum dottið niður. Samkvæmt Veðurstofunni mælist hann nú svipað og fyrir...
InnlentReykjanesskagiLíkur á öðru gosi aukast – Landris hafið að nýju á Reykjanesskaga11. júní 2024 Landris er hafið að nýju á Reykjanesskaga. Þetta sýna mælingar Veðurstofunnar en landsig sem mældist fyrstu dagana eftir nýjasta gosið, er lokið. Ekki er hægt að segja hversu hratt landrisið er, samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar en búast má við að innflæði kviku í kvikusöfnunarsvæðið sé meira en útstreymi úr gígnum. Bendir þetta til þess að annað gos sé yfirvofandi en það...
InnlentEldgos hafið og kvikugangur stefnir á Grindavíkurbæ: „Þetta opnaðist með krafti“29. maí 2024 Eldgos er hafið við Sundhnjúksgíga. Kvikugangurinn færist nær Grindavíkurbæ. Eldgos hófst fyrir stuttu við Sunhnjúksgíga en gossprungan er um kílómeter á lengd en gosstrókarnir ná mest um 50 metra upp í loftið, samkvæmt Kristínu Jónsdóttur, jarðeðlilsfræðingi á Veðurstofunni sem var í viðtali við Rás 2 fyrir stuttu. „Þetta opnaðist með krafti,“ sagði Kristín við Ragnhildi Thorlacius á Rás 2. Bætti...
InnlentTekur upp hanskann fyrir Víði: „Hver setti nú tíkall í trúðinn“10. maí 2024 Björn Birgisson tekur upp hanskann fyrir Víði Reynissyni, sem fengið hefur yfir sig gagnrýni vegna þess að hann hefur talað um að rýma gæti þurft Grindavík með skömmum fyrirvara, byrji að gjósa að nýju í Svartsengi. „Hættur, viðvaranir og afneitanir. Landris og kvikusöfnun í Svartsengi eru að ná áður óþekktu hámarki.Hingað til hefur sú hegðun landsins endað með eldgosi.Vísindamenn keppast...
InnlentÓvissa á Reykjanesskaga: „Við viljum biðla til fólks að fara ekki fótgangandi að gosinu“27. apríl 2024 Lögreglan á Suðurnesjum varar við að fólk gangi að gosinu við Sundhnjúksgíga. Í gærkvöldi birti lögreglan á Suðurnesjum færslu á Facebook þar sem hún biðlar til fólks að ganga ekki að gosinu við Sundhnjúksgíga, vegna þess að nýtt gos gæti hafist á hverri stundu eða ný sprunga opnast, samkvæmt vísindamönnum. „Til upplýsinga…. Eins og kom fram í fréttum í kvöld...
MenningSaknar frétta af hraunflæðinu: „Ef ég væri þetta eldgos fengi ég talsverða höfnunartilfinningu“2. apríl 2024 Stefán Pálsson saknar frétta af eldgosinu á Reykjarnesi. Spéfuglinn og sagnfræðingurinn Stefán Pálsson skrifaði spaugilega Facebook-færslu í morgun þar sem hann furðar sig á að daglegar fréttir af eldgosinu á Reykjarnesinu séu á undanhaldi. Segir hann að fyrstu tvo dagana hafi verið „endalausar fréttir um að hrauntungurnar væru að fara að skera sundur tvo þjóðvegi frekar en einn, auk þess...
InnlentAskja komin á tíma: „Þá verður náttúrulega sprengigos“26. mars 2024 Í gær var skjálftahrina við Öskju. Mældist stærsti skjálftinn 3,5 að stærð og átti hann upptök sín í Dyngjufjöllum í norðvesturhluta Öskju. Í samtali við mbl.is segir Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur að skýr teikn séu á lofti sem enda muni með eldgosi: „Við erum náttúrulega búin að vera að bíða eftir henni. Hún er búin að vera að þenja sig í...
MenningKúltúrinnMyndaði fyrsta eldgosið við Keili fyrir tilviljun – Hefur náð öllum gosunum síðan19. mars 2024 Ljósmyndarinn Rebekka Guðgeirsdóttir myndaði fyrir tilviljun fyrsta eldgosið í nýju eldgosahrinunni á Reykjanesinu og hefur síðan myndað öll sjö eldgosin. Rebekka Guðleifsdóttir Mannlíf sagði frá því í dag að Rebekka Guðgeirsdóttir ljósmyndari hafi náð að mynda augnablikið sem eldgosið hófst við Sundhnjúkagíga þann 16. mars. Ástæðan fyrir því að Rebekka náði að festa augnablikið á filmu er sú að frá...
MenningKúltúrinnNáði upphafi eldgossins á mynd – Sjáðu hið magnaða augnablik19. mars 2024 Rebekka Guðgeirsdóttir ljósmyndari náði augnablikinu þegar eldgosið hóft við Sundhnjúkagíga þann 16. mars síðastliðinn. Ljósmyndarinn Rebekka Guðgeirsdóttir var að mynda Keili, líkt og hún hefur gert á hverjum degi undanfarin ár, þegar skyndilega byrjaði að gjósa í næsta nágrenni við Keili. Nánar verður sagt frá verkefni Rebekku hjá Mannlífi síðar í dag. Hér fyrir neðan má sjá myndbandið af hinu...
HeimurUm 50 eldgos í gangi í heiminum – Gosið á Reykjanesi flokkast sem minniháttar18. mars 2024 Eldgosið á Reykjarnesinu er ekki eina gosið sem á sér stað í heiminum í augnablikinu, þvert á móti. Veðurstofa Íslands birti fyrir hádegi uppfærslu á stöðu eldgossins á Reykjanesskaga en þar kemur fram að virknin hafi haldist nokkuð stöðug síðan seinnipartinn í gær. Gýs nú að tveimur svæðum á gossprungunni í nokkrum gosopum en svo virðist sem slökknað hafi í...
InnlentMagnús Tumi telur að eldgosinu ljúki fljótlega: „Langlíklegast að þetta bara fjari út“17. mars 2024 Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, telur að gosinu muni senn ljúka en hægst hefur mjög á hraunflæði í dag „Hitt er miklu líklegra að þetta bara fjari út og síðan fáum við endurtekið svipað ferli og verið hefur undanfarna mánuði,“ sagði Magnús við RÚV um málið. „Það er náttúrulega langlíklegast að þetta bara fjari út. Það er ekki útilokað...
InnlentÚlfar lögreglustjóri vonast eftir stuttu eldgosi: „Nú verðum við bara að bíða og sjá“17. mars 2024 Hvorki erlendir ferðamenn né aðrir gestir hafa verið með vesen og vandræði vegna eldgossins á Reykjanesi að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum, þegar hann var spurður út í slíkt af mbl.is. Hann segir að fólk hafi sýnt varkárni og fylgt reglum yfirvalda. Hann segir verkefni lögreglu mestmegnis hafa gengið á sama hátt og í síðasta gosi. Varðandi aðkomu á...