Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
InnlentVeikindiÞyrlusveit Landhelgisgæslunnar sótti veikan sjómann undan Hornströndum13. febrúar 2025 Veikinda varð vart um borð í íslensku skipi sem statt var um 60 sjómílur norður af Hornströndum í fyrradag en þyrslusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang. Á níunda tímanum á þriðjudagsmorgun tók áhöfnin á TF-GRO á loft frá Reykjavíkurflugvelli en samkvæmt heimasíðu Gæslunnar er önnur þyrluáhöfn sett í viðbragðsstöðu í Reykjavík þegar farið er í útköll á borð við þessa,...
InnlentBjörgunarsveitBjörg til bjargar29. janúar 2025 Neyðarkall frá fiskibáti barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um klukkan fimm í morgun. Báturinn var þá staddur um hálfa sjómílu undan Svörtuloftum á Snæfellsnesi. Um borð í bátnum voru tveir en þeir tjáðu varðstjórum stjórnstöðvar að báturinn væri stjórnvana og ræki með sjávarfallastraumi norður með landinu, samkvæmt heimasíðu Gæslunnar. Þegar í stað var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út auk sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á...
InnlentMetár hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar – Tæplega 14 prósent fjölgun á sjúkraflutningum13. janúar 2025 Aldrei hefur þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annast fleiri útkalla en árið 2024. Í heild var sveitin kölluð 334 sinnum út á síðasta ári en það er 31 útkalli meira en árið á undan. Af hinum 334 útköllum voru 135 þeirra farin á fyrsta forgangi og 150 á öðrum forgangi. Á heimasíðu Landhelgisgæslunnar segir að rúmlega helmingur útkallanna hafi verið vegna sjúkraflutninga eða...
InnlentÞyrla Landhelgisgæslunnar sótti tvo slasaða vélsleðamenn á Landjökul16. nóvember 2024 Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni að sækja tvo slasaða vélsleðamenn upp að Langjökli. Þetta hefur fréttastofa RÚV eftir upplýsingafulltrúa Gæslunnar en hann hafði ekki nánari upplýsingar um ástand mannanna, þar sem þyrlan var ekki komin á vettvang. Það var hópur sem var í vélsleðaferð sem óskaði eftir aðstoð á Langjökli um fjögur leytið í dag en tveir úr hópnum slösuðust....
InnlentEinn fluttur með sjúkraflugi frá Stykkishólmi eftir slys11. október 2024 Þyrla send í Stykkishólm Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir í samtal við mbl.is að þyrla gæslunnar hafi verið send í Stykkishólm vegna slyss sem átti sér stað nú í morgun en hann gat þó ekki greint frá því hvers eðlis slysið væri eða hversu alvarlegt. Hann tók þó fram að um einn einstaklingur hafi verið fluttur frá Stykkishólmi með þyrlunni.
InnlentTvær þyrlur sendar austur vegna slyss við Stuðlagil – Kafarar á leiðinni9. október 2024 Rétt eftir klukkan 15 í dag var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í ánni Jöklu við hinn vinsæla ferðamannastað Stuðlagil. Samkvæmt Austurfrétt voru björgunarsveitir af Austurlandi og þyrla Landhelgisgæslunnar kallaðar út um klukkan hálf þrjú í dag vegna gruns um að einstaklingur hafi fallið í Jökulsá við Stuðlagil. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi barst henni tilkynning um að...
InnlentLeitMaður sem féll í Hlauptungufoss fannst látinn24. september 2024 Upp úr klukkan eitt í dag barst lögreglu tilkynning um alvarlegt slys nálægt Hlauptungufoss í Brúará í Bláskógabyggð á Suðurlandi en maður er sagður hafa fallið í fossinn klukkan 13:00. Samkvæmt frétt RÚV hafa björgunarsveitir verið kallaðar út auk tveggja þyrla Landhelgisgæslunnar. Samkvæmt Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar kallaði lögreglan eftir aðstoð þyrlusveitarinnar. Hafa tvær þyrlur verið sendar á vettvang en...
InnlentLandhelgisgæslan varar sjófarendur við ísjökum – Sá stærsti 33 metrar á hæð og 110 metrar á lengd13. september 2024 Fjölmargar tilkynningar hafa borist varðstjórum í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um borgarísjaka á Vestfjarðarmiðum og á Húnaflóa í vikunni. Hafa verið sendar siglingaviðvaranir sjófarendum af þeim sökum. Á vef Landhelgisgæslunnar segir að áhöfnin á sjómælingaskipinu Baldri hafi siglt framhjá sjö ísjökum á leið sinni frá Húnaflóa að Norðurfirði í gær. Eru jakarnir allt frá því að vera um þrír metrar á hæð...
InnlentVarðskipið Þór á leið á Hornstrandir eftir neyðarkall – Göngumaður slasaðist illa fyrir austan5. september 2024 Neyðarkall barst frá Hornströndum fyrir stuttu og er nú varðskipið Þór á leið á staðinn. Þá fór þyrlusveit Landhelgisgæslunnar austur á land að sækja göngumann sem slasast hafði illa en aðstæður voru erfiðar sökum veðurs og þoku. „Það kom inn óljós neyðarbeiðni frá Hornströndum og varðskipið Þór var í Breiðafirði í hefðbundinni eftirlitsferð og í samvinnu við lögreglu var ákveðið...
InnlentBandaríski sjóherinn æfði með íslenskum varnaraðilum – MYNDIR29. ágúst 2024 Varnaræfingin Norður-Víkingur hófst í vikunni en bandaríski sjóherinn æfði aðgerðir á sjó með íslenskum aðilum. Á heimasíðu Landhelgisgæslunnar er sagt frá því að liðsmenn bandaríska sjóhersins hafi ásamt áhöfninni á varðskipinu Þór, sérsveit ríkislögreglustjóra og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar, æft aðgerðir á sjó, meðal annars uppgöngu í skip og eftirför en æfingarnar eru liður í varnaræfingunni Norður-Víkingur sem hófst fyrr í vikunni....
InnlentBjörgunarsveitBjörgunarsveitir á Austurlandi fóru í tvö útköll í nótt – Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til24. júní 2024 Björgunarsveitir á Austurlandi voru kallaðar út í tvígang í nótt. Austurfrétt segir frá því að áhöfn björgunarbátsins Hafbjargar í Neskaupsstað hafi komið skipverja lítils fiskibátar til hjálpar um fimm leytið í morgun. Maðurinn hafði slasast illa á fæti og var ófær um að sigla bátnum til hafnar. Báturinn var um sextán sjómílur austur af Norðfjarðarhorni. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig...
InnlentVeikindiÞyrla Gæslunnar sótti veikan einstakling austur á Hérað: „Sjúkraflugið komst ekki vegna þoku“12. júní 2024 Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug til Egilsstaða í morgun og flutti veikan einstakling á spítala. Íbúum á Héraði fyrir austan brá nokkuð í morgun þegar sjúkrabíll í lögreglufylgd keyrði í ofvæni á Egilsstaðaflugvöll, þar sem þyrla Landhelgisgæslunnar beið. Reyndist vera um veikan einstakling að ræða sem þurfti á bráðri hjálp að halda á sjúkrahúsi. Vegna þoku hafði sjúkraflugvélin ekki komist í loftið...