Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
MenningKúltúrinnBörkur með mikilvæg skilaboð til þjóðarinnar: „Ekki halda framhjá“12. ágúst 2020 Fjölmiðlamaðurinn og rithöfundurinn talar af biturri reynslu. „Ekki halda framhjá. Og … Don’t go Danish,“ segir fjölmiðlamaðurinn og rithöfundurinn Börkur Gunnarsson, í nýjustu færslu sinni á Facebook. Þar greinir Börkur frá því að hann hafi keypt sér danskar sardínur í dós og eftir að hafa borðað þær sé hann með eitt á hreinu: „Þær eru versti vibjóður sem ég hef...
MannlífiðVín og MaturÍtalskar kræsingar í aðalhlutverki2. júlí 2020 Nýr og spennandi Gestgjafi er kominn út. Ítalskar kræsingar eru í aðalhlutverki í nýja blaðinu. Í blaðinu er að finna fjölmargar uppskriftir að gómsætum ítölskum réttum ásamt fróðleik um ítalskan mat og matarhefðir. Þá skoðum við, skref fyrir skref, hvernig ferskt pasta er búið til en ferlið er mun auðveldara er margir gera sér grein fyrir. Sigurlaug Margrét. Mynd /...
FólkvikanÚr fljótandi yfir í fasta fæðu1. júlí 2020 Litlu krílin eru fljót að stækka og áður en maður veit af eru þau orðin fullvaxta. Þau sem einn daginn liggja ómálga og ósjálfbjarga í vöggu eru þann næsta farin í menntaskóla. En það gerist þó sem betur fer ekki á einu augabragði, þótt okkur foreldrunum kunni stundum að finnast það. Hér eru nokkrir punktar um fyrstu föstu fæðuna fyrir...
InnlentSá léttari er mun dýrari18. júní 2020 Smjörvi; Símjúkur á brauðið, pönnuna og í baksturinn. Þannig hljóðar slagorðið. Klassískur Smjörvi hefur í 100 grömmum 75% fituinnihald en léttur Smjörvi 57%. Sá klassíski er í 400 gramma pakkningu en létti í 200 gramma. Kílóverðið í Nettó, svo dæmi sé tekið, er 1.448 krónur á klassískum Smjörva en 1.945 krónur á þeim létta. 200 gramma askja kostar 389 krónur...
InnlentverðlagMjólkurlítrinn dýrari en bensínlítrinn16. júní 2020 Mjólk, rjómi, skyr og ostur hækkaði í verði um 4,28 prósent þann 1. júní. Smjör hækkaði þó enn meira eða um 12 prósent. Verðlagsnefnd búvara greinir frá að verðhækkunin sé tilkomin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og vinnslu mjólkur. Verðlagsnefnd búvara starfar samkvæmt ákvæðum búvörulaga og ákveður afurðaverð til búvöruframleiðenda og verð búvara í heildsölu. Til samanburðar má geta þess að...
InnlentrannsóknVilt þú vera á neytendalista Matís? Þátttakendur óskast8. júní 2020 Rannsóknir á vegum Matís eru margvíslegar en tengjast þó flestar matvælum. Nú óskar Matís eftir þátttakendum sem áhuga hafa á að efla matvælarannsóknir á Íslandi. Þátttaka í slíkum rannsóknum er til dæmis í formi rýnihópavinnu, þar sem rætt er um matartengd málefni eða vörur sem eru í þróun. Einnig fer hún fram með könnunum þar sem þátttakendur meta vörur heima....
MannlífiðKvöldmaturinn klár – kúrbítsbaka með sítrónu og basilíku19. maí 2020 Bökur eru frábær matur sem gaman er að borða. Látið ímyndunaraflið ráða því auðvelt er að nota ýmis hráefni í fyllinguna. Gæta þarf að því að fyllingin sem notuð er sé ekki of blaut því þá getur það haft áhrif á botninn og komið í veg fyrir að hann verði stökkur og góður. Séu notaðir safaríkir ávextir er gott að blanda smávegis hveiti eða maíssterkju saman við til að þykkja þá, einnig er gott að sáldra smávegis hveiti eða möndlumjöli í botninn en það dregur í sig vökvann.
InnlentBurro og Pablo disco bar komnir í sölu14. maí 2020 Veitingastaðurinn Burro og barinn Pablo diskóbar, sem er hæð ofar, eru komnir í sölu, en staðirnir eru í eign sömu aðila. Endurbygging staðanna stendur nú yfir eftir að kveikt var í húsnæðinu fyrr á árinu, og verða staðirnir seldir þegar endurbótum er lokið. Gunnsteinn Helgi hægra megin „Það eru iðnaðarmenn á fullu núna að taka allt húsið í gegn og...
MannlífiðMúffur eru fullkomið nesti9. maí 2020 Múffur eru handhægar og þægilegar í nestisboxið og eru einstaklega fljótlegar og einfaldar í bakstri, tekur varla meira en 30-40 mínútur. Það er því tilvalið að skella í þær að morgni ferðadags og hafa með sér brakandi ferskar eða eiga frystar og láta þær þiðna í bakpokanum.
SkoðunraddirAðsend greinJarðskjálftabirgðir26. apríl 2020 Eftir / Nönnu Rögnvaldardóttur matreiðslubókahöfund Fyrir fjöldamörgum árum, þegar börnin mín bjuggu ennþá heima, voru þau einhverntíma að velta fyrir sér dálitlum lager af niðursuðudósum sem ég átti í búrinu, og spurðu mig til hvers ég væri eiginlega að sanka þessu að mér. Ég sagði að það gæti nú verið gott að eiga þetta ef einhverjar hamfarir yrðu, til dæmis...
InnlentSakar Gleðipinna um „gróft ásetningsbrot“ með heimsendingarþjónustu sinni23. apríl 2020 Hver er ábyrgð veitingastaða sem bera smit COVID-19 sjúkdómsins á milli húsa með heimsendum mat? Ævar Ingi Pálsson pípulagningarmeistari varpar þessari spurningu fram í pistli sínum sem birtist í Fréttablaðinu í dag. Ævar segir veitingastaði nú berjast í bökkum vegna útbreiðslu COVID-19 en að margir hafi gripið til þess ráðs að bjóða upp á heimsendingu. Hann segir því miður ekki...
InnlentkórónaveiraSendi vinunum matarknús – „Ég á mjög erfitt með þetta knús- og kossaleysi“17. apríl 2020 Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir segist sakna þess ógurlega að geta ekki knúsað vini sína þessar vikurnar. Til þess að sýna þeim væntumþykju sína og þakklæti sendi hún matarkörfu með bröns á þrjú heimili í Reykjavík annan í páskum, þrátt fyrir að vera sjálf stödd á Borgarfirði eystri, þar sem hún býr sig undir sauðburð. „Ég sendi nokkrum vinum mínum, sem...