Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
InnlentNáttúruhamfarirSkyndirýming í Grindavík14. nóvember 2023 Skyndirýming er í gangi í Grindavík í þessum töluðu orðum. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum er verið að rýma Grindavík af öryggisástæðum en frekari upplýsingar fylgdu ekki tilkynningunni. Samkvæmt RÚV heyrist sírenuvæl í bænum. Áður höfðu þeir íbúar sem ekki komust í gær að fá að sækja nauðsynjar og huga að eignum á milli 12 og 16 í dag...
InnlentNáttúruhamfarirLögreglan lokar Suðurstrandarvegi – Aðstæður endurskoðaðar á morgun14. nóvember 2023 Suðurstrandarvegi hefur verið lokað. Lögreglan á Suðurnesjum hefur tekið þá ákvörðun að loka Suðurstrandarvegi við gatnamót Krýsuvíkurvegar. Fyrirséð er að ekki gefst tími til að afgreiða fleiri bíla en nú þegar eru í röð á Suðurstrandarvegi. Samkvæmt lögreglunni verða aðstæður endurskoðaðar á morgun.
InnlentNáttúruhamfarirKnattspyrnugoðsögn sendir kveðju: „Er að hugsa um magnaða fólkið í Grindavík“14. nóvember 2023 Knattspyrnuhetja Lee Sharpe sendir Grindvíkingum kveðju á þessum erfiðu tímum. Knattspyrnumaðurinn lék á sínum tíma fyrir Manchester United og Leeds en með því fyrrnefnda vann hann ensku úrvalsdeildina þrisvar sinnum og varð bikarmeistari tvisvar. Auk þess spilaði hann átta landsleiki fyrir England meðan ferillinn var í blóma. Hann glímdi við erfið meiðsli stóran hluta af ferlinum og var það til...
InnlentNáttúruhamfarirSpáir eldgosi í Bláfjöllum: „Þá fer næsta kerfi í gang“14. nóvember 2023 Eldfjallafræðingurinn Ármann Höskuldsson telur mögulegt að það muni gjósa í Bláfjöllum. Í samtali við mbl.is sagði Ármann Höskuldsson eldfjallafræðing, sagði hann: „Í fyrsta lagi þá erum við á flekamótum. Flekarnir eru stöðugt að fara í sundur en akkúrat flekamótin sjálf, þau geta haldið í sér í svolítinn tíma en þegar þau bresta þá myndast aðstæður svo að kvika komist til...
InnlentNáttúruhamfarirBankahólf Grindvíkinga í bráðri hættu – Landsbankinn vinnur að lausn í kappi við tímann14. nóvember 2023 Grindvíkingar sem eiga verðmæti í bankahólfum Landsbankans í Grindavíkurbæ, eru órólegir því enn hafa þeir ekki fengið að sækja það sem í hólfunum er. Unnið er að lausn í málinu. Í dag verður fyritækjum í Grindavík leyft að huga að sínu í bænum og einnig þeir einstaklingar sem ekki komust í gær þegar gluggi opnaðist fyrir íbúa að sækja ýmislegt...
InnlentNáttúruhamfarirHamfarirnar í Grindavík: Sjálfstæðismenn samþykkja skattahækkanir á alla húseigendur14. nóvember 2023 Alþingi samþykkti seint í gærkvöld frumvarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesi. Skatturinn, sem skilgreindur er sem forvarnagjald, nemur 0,00008 prósentum leggst á allt húsnæði í landinu næstu þrjú árin til að standa undir mögulegum framkvæmdum við gerð varnargarða í kringum orkuverið í Svartsengi. Ekkert liggur fyrir um það hvernig skuli verja og hvort það þurfi yfirleitt....
InnlentNáttúruhamfarirÍbúar Grindavíkur beðnir að gefa sig fram við lögreglu klukkan 13:00 í dag13. nóvember 2023 Lögregluembættið á Suðurnesjum biður íbúa ákveðinna svæða á Grindavík að gefa sig fram á MÓT. Lögreglan á Suðurnesjum var rétt í þessu að senda viðbót við tilkynningu sína sem birtist í morgun. Íbúar eftirfarandi svæða mega gefa sig fram á MÓT við Suðurstrandarveg kl. 13:00 í dag: Skipastígur-Árnastígur-Glæsivellir-Ásvellir-Sólvellir-Blómsturvellir – Baðsvellir-Gerðavellir-Selsvellir-Litluvellir-Hólavellir-Höskuldavellir-Gerðavellir-Iðavellir-Efstahraun – Heiðarhraun -Hvassahraun -Staðarhraun – Borgarhraun -Arnarhraun-Víkurbraut.
InnlentNáttúruhamfarirGrindvíkingum hleypt inn með skipulögðum hætti: „Ítrekað er að þetta er ekki léttvæg ákvörðun“13. nóvember 2023 Ákveðið hefur verið að hleypa Grindvíkingum inn í Grindavíkurbæ með skipulögðum hætti, frá og með þessari stundu. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum var rétt í þessu að senda frá sér tilkynningu þar sem segir að ákvörðun var tekin um að hleypa íbúum inn í Grindavík frá og með þessari stundu. Það verði gert með skipulögðum hætti. Hér má sjá tilkynninguna: Íbúar og...
HeimurNáttúruhamfarirÓtrúlegt myndskeið frá jarðskjálftanum í Marokkó!11. september 2023 Myndskeið hefur verið birt sem sýnir karlmann rétt sleppa undan hrynjandi húsi í jarðskjálftanum mannskæða sem skók í Marokkó á dögunum. Tala látinna í Marokkó er nú komin upp í 2.500 en jarðskjálti upp 6,8 á ricter reið yfir landið föstudaginn 8. september. Myndskeið úr öryggismyndavél hefur nú verið birt sem sýnir mann sleppa með skrekkinn þegar bygging sem hann...
InnlentNáttúruhamfarirFannar bæjarstjóri óttalaus í Marrakech9. september 2023 Mikið mannfall varð í Marokkó eftir að jarðskjálfti upp á 6,8 á richter gekk yfir fyrir miðnætti. Stðafest er að hátt í 900 manns létust í skjálftanum og mikil óvissa er um örlög fjölmargra. Upptök skjálftan urðu í Atlasfjöllum um 70 kílómetra frá Marrakech. Í grennd við upptökin er fjöldi smáþorpa. Byggingar þar eru ótraustar og engan veginn til þess...
InnlentNáttúruhamfarirSjöundi dagur skógareldanna á Tenerife: „Og harmleikurinn er hvergi nærri búinn“22. ágúst 2023 Lítið lát er á skógareldunum á Tenerife en Anna Kristjánsdóttir upplýsir lesendur sína um framvindu mála í nýjustu dagbókarfærslu sinni. Skógaeldarnir á Tenerife hafa nú logað í sjö daga en samkvæmt Önnu Kristjáns, frægasta íbúa eyjarinnar, eru ýmis jákvæð teikn á lofti. „Skógareldarnir hafa vissulega geisað hér í nærri viku, en eftir að hvassviðrið á sunnudagsmorguninn lægði tókst björgunarliði að...
InnlentNáttúruhamfarirHörð gagnrýni á lögreglu vegna leiðavals að eldgosinu: Lögreglan lokar Keilisvegi með steinklumpum20. júlí 2023 Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokað leiðinni að Keili með steinblokkum í stað þess að vera með borða. Þar með er útilokað fyrir útivistarfólk að komast þá leiðað gosinu við Litla Hrút um Oddafell. Sú leið er helmingi styttri en leiðin frá bílastæðinu við Slögu sem er um 20 kílómetrar. Mannlíf benti á þessa skekkju í síðustu viku. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra...