Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
InnlentsjónvarpsþættirÓánægja með Ófærð: „Ég hafði mig í gegnum fyrstu seríu því mér fannst ég ætti að gera það“7. desember 2021 Mikil óánægja ríkir á meðal þjóðarinnar eftir lokaþáttinn af Ófærð en þriðja sería þáttanna var sýnd á RÚV síðustu vikur. Ófærð eru byggðir á hugmynd Baltasar Kormákar og er hann einnig aðalframleiðandi og leikstjóri þáttanna. Undanfarið hefur skapast mikil umræða um Ófærð í Facebook hópnum S01E01, íslenskum umræðuhóp um þáttaraðir. „Ég hafði mig í gegnum fyrstu seríu því mér fannst...
FólkFyrsta stiklan úr Eurogarðinum22. ágúst 2020 Þáttaröðin Eurogarðurinn hefst á Stöð 2 þann 27. september og nú hefur fyrsta stiklan úr þáttunum verið birt. Þættirnir eru átta talsins og gerast í Húsdýragarðinum. Eurogarðurinn fjallar um drykkfelldan miðaldra braskara með vafasaman viðskiptaferil sem kaupir Húsdýragarðinn en karakterinn er leikin af Jóni Gnarr. Hann hefur stórkostlegar hugmyndir um framtíð garðsins, sem hann kallar Eurogarðinn, og sér fyrir sér...
InnlentsjónvarpsþættirTökum á Systraböndum lokið19. ágúst 2020 Tökum á þáttaröðinni Systraböndum lauk um helgina. Þættirnir, sem eru framleiddir af Sagafilm, verða sýndir í Sjónvarpi Símans Premium á næsta ári. Þættirnir eru skrifaðir af Björgu Magnúsdóttur, Jóhanni Ævari Grímssyni, Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur og Silju Hauksdóttur sem sá einnig um leikstjórn. Meðal leikara í þáttaröðinni eru Ilmur Kristjánsdóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Halldóra Geirharðsdóttir og Jónmundur Grétarsson....
MenningBergur Ebbi gerir sjónvarpsþætti9. ágúst 2020 Bergur Ebbi Benediktsson undirritar samning um gerð nýrra sjónvarpsþátta. „Mikið ofboðslega hlakka ég til að hefja þetta verkefni,“ segir Bergur Ebbi Benediktsson, lögfræðingur og fjöllistamaður, sem hefur ritað undir samning nýrra sjónvarpsþátta, sem verða sýndir á Stöð 2 á næsta ári. Bergur Ebbi greinir frá tíðindunum á Facebook. Þættirnir, sem kallast Stofuhiti, eru byggðir á bókum hans Stofuhita og Skjáskoti...
HeimurBryan Cranston fékk Covid-19, hvetur fólk til að bera grímur31. júlí 2020 Bryan Cranston, stjarnan úr sjónvarpsþáttunum Breaking Bad, hvetur aðdáendur sína til að „halda áfram að bera andskotans grímuna“ í færslu á Instagram-síðu sinni og upplýsir um leið að hann hafi greinst með Covid-19. Í færslunni deilir hann myndbandi af sér að gefa blóð til rannsókna, að sjálfsögðu með grímu, og segist skilja að fólki finnist það vera bundið í báða...
HeimurEllen biður starfsfólk sitt afsökunar31. júlí 2020 Spjallþáttadrottningin Ellen DeGeneres hefur birt opið bréf til starfsfólks þáttarins þar sem hún segir að sér þyki leitt að einhverjir í hópi starfsfólksins hafi orðið fyrir niðurlægjandi framkomu yfirmanna og sætt mismunun. Það hafi alltaf verið ætlun hennar að það að vinna við þáttinn færði starfsfólki gleði og hamingju, en eitthvað hafi greinilega breyst í tímans rás og því verði...
HeimurSjónvarpsþáttaröð um fortíð Mildred Ratched úr Gaukshreiðrinu30. júlí 2020 Allir sem séð hafa kvikmyndina Gaukshreiðrið muna eftir hjúkrunarkonunni illskeyttu Mildred Ratched sem virtist skorta alla jákvæða eiginleika. Nú hefur Netflix fengið leikstjórann Ryan Murphy til að gera sjónvarpsþáttaröð um forsögu hjúkrunarkonunnar og verður fyrsta þáttaröðin frumsýnd 18. september. Það er Sarah Paulson sem leikur Ratched. Í þáttaröðinni er farið yfir sögu Ratched frá árinu 1947 og þess freistað að...
HeimursjónvarpsþættirSkrifa saman handrit að sjónvarpsþáttum um slúðurmiðla23. júlí 2020 Rithöfundarnir Irvine Welsh, höfundur Trainspotting, og Bret Easton Ellis, höfundur American Psycho, eru nú í samningaviðræðum við Burning Wheel Productions um að skrifa í sameiningu handrit að sjónvarpsþáttaröð um bandaríska slúðurfjölmiðla og skoða í leiðinni þau siðlausu og ófaglegu vinnubrögð sem slíkir miðlar stunda. Vinnuheitið er American Tabloid og sagan segir nokkurra áratuga sögu slúðurblaðs, sem tekur pólitíska rétthugsun ekki...
InnlentGordon Ramsay með tökulið á Ísafirði16. júlí 2020 Breski sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsay hefur undanfarna daga sést á ferli á Vestfjörðum með tökulið með sér og samkvæmt frétt Vísis er hann að taka upp efni í sjónvarpsþátt. Þar kemur þó einnig fram að séu Ramsay eða fylgdarlið hans spurð hvað þau séu að gera sé fátt um svör. „Ísfirðingar hafa þó lagt saman tvo og tvo og séð í...
InnlentsjónvarpsþættirSvartur piparsveinn í fyrsta sinn í sögu þáttanna The Bachelor13. júní 2020 Framleiðendur sjónvarpsþáttanna vinsælu The Bachelor hafa valið svartan mann í hlutverk piparsveinsins í fyrsta sinn í átján ára sögu þáttanna. Sá heitir Matt James, er tuttugu og átta ára gamall fasteignasali og var upphaflega ráðinn af ABC-sjónvarpsstöðinni til að taka þátt í þáttunum The Bachelorette og keppa við aðra þáttakendur um ástir Clare Crawley í næstu þáttaröð. Samkvæmt frétt The...
InnlentsjónvarpsþættirTökur hafnar á glæpaþáttaröðinni Systraböndum11. júní 2020 Tökur eru hafnar á nýrri sjónvarpsþáttaröð sem nefnist Systrabönd og Sagafilm framleiðir. Leikstjóri þáttanna er Silja Hauksdóttir, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Ilmur Kristjánsdóttir fara með aðalhutverkin og handritshöfundar eru Jóhann Ævar Grímsson, Björg Magnúsdóttir, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir og Silja Hauksdóttir. Samkvæmt frétt á vefsíðu Variety er sögusvið þáttanna til skiptis Reykjavík nútímans og lítið sjávarþorp úti á...
HeimurStjarna úr Game of Thrones gerist sendill í Belfast5. maí 2020 Michael Condron, sem lék næturvörðinn Bowen Marsh í sjónvarpsþáttunum Game of Thrones, hefur heldur betur skipt um hlutverk og vinnur nú sem sendill í heimsendingum fyrir kjörbúðina Asda í Belfast. Og hann segist vera svo hrifinn af þeirri vinnu að hann sé að hugsa um að vinna við það áfram meðfram leiklistinni eftir að kórónaveirufaraldrinum lýkur. „Hver einasta manneskja hefur...