Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
MenningAuður syngur um fortíðarþrá á Valentínusardaginn: „Svo skrítið hvaða augnablik við varðveitum“14. febrúar 2025 Tónlistarmaðurinn Auðunn Lútherson eða Auður eins og hann kallar sig stundum, gefur út glænýtt lag í tilefni Valentínusardagsins sem er í dag. Auðunn býr nú og starfar í Los Angeles en þar hefur hann alls ekki setið auðum höndum heldur hefur hann verið að semja lög á fullu undanfarin ár. Texti nýja lagsins málar mynd af minningu um ástarsamband með...
MenningMagnús sigraðist á hvítblæðinu og gefur út lag: „Vissi að hann myndi standa uppi sem sigurvegari“13. febrúar 2025 Aðalsöngvari Stuðlabandins, Magnús Kjartan hefur nú gefið út lagið Eilíf ást sem hann samdi með Svavari Viðarssyni. Nýverið sigraðist Magnús á hvítblæði. Samkvæmt fréttatilkynningu talar lagið Eilíf ást um óbilandi ást, þeirrar tegundar sem endist jafnvel í gegnum erfiðustu raunir lífsins. Þá segir einnig að sagan um það hvernig lagið varð til, sé saga um hugrekki, vináttu og trú á...
MenningFjölskyldufaðir tekst á við stórt áfall með plötuútgáfu: „Þú stýrir ekki vindinum …“1. febrúar 2025 Atli Þór Sigurðsson greindist með heilaæxli í fyrra en hann stendur nú fyrir söfnun inni á Karolina Fund svo hann geti gefið út tvær plötur með frumsömdu efni. Atli Þór, sem verður 39 ára á þessu ári, vinnur sem forritari hjá Bláa Lóninu og hefur gert það síðan 2021. Er hann alinn upp í Breiðholtinu en hefur búið í Grafarvogi...
MenningLagið Heim til vina slær í gegn: „Er að vona að ég verði svona one hit wonder“22. janúar 2025 Reinhold Richter gaf út lagið Heim til vina á dögunum en það samdi hann til heiðurs vinar síns, Ísaks Harðarsonar ljóðskálds, sem lést árið 2023. Segist hann í samtali við Mannlíf vona að lagið verði „one hit wonder“ eða einsmellungur eins og það kallast á íslensku. Aðspurður um viðbrögðin við laginu segir Reinhold þau hafa verið frábær: „Ég fæ alveg...
MenningÚtgáfuhóf í Þjóðleikhúsinu – Leikritasafn Ólafs Hauks Símonarsonar27. nóvember 2024 Á morgun, fimmtudaginn 28. nóvember, kl.17-19, verður fagnað útgáfu Leikritasafns Ólafs Hauks Símonarsonar í Kristalsal Þjóðleikhússins. Þetta mikla leikritasafn samanstendur af átján verkum sem hafa verið sýnd á ýmsum leiksviðum bæði hér heima og erlendis en koma nú út í einni bók sem gefin er út í takmörkuðu upplagi. Skemmtiatriði í útgáfuhófinu verða ekki af lakara taginu, en Jón Ólafsson,...
MenningMyrkvi lítur inn á við í glænýju lagi:„Sker út hjarta og skil það eftir, eigin sjálfsmynd innantóm“31. ágúst 2024 Tónlistarmaðurinn Myrkvi gaf út smáskífuna Sjálfsmynd í gær. Þar lýtur hann inn á við lítur inn á við. Lagið er af breiðskífunni Rykfall sem er væntanleg á næstunni. „Sker út hjarta og skil það eftir, eigin sjálfsmynd innantóm.“ Þannig hefst nýjasta smáskífa Myrkva en í viðlögunum dregur ský frá sólu, því jafnvel þó lífið sé ósanngjarnt, þá er það nú...
MenningAuðunn opnar sig um aðskilnað í nýju lagi: „Ég er að elta drauminn“30. ágúst 2024 Auðunn Luthersson einnig þekktur sem Auður gefur út lagið Reel in þann 30. ágúst. Lagið Reel In er annað lagið sem hann gefur út undir nafninu Luthersson. Fram kemur í fréttatilkynningu um smáskífuna að hljóðheimur lagsins er falleg og brothætt blanda af hrollvekjandi bassa, sársaukafullum gítar og melódísku píanóspili. Lagið er samið af Auðuni, franskaa tónlistarmanninum Elias Abid (Venbee, Appleby,...
MenningFreyr og Elvar gefa út lagið SKART: „Hvern geturu elskað ef þú elskar ekki sjálfan þig?“12. júlí 2024 Tónlistarmennirnir Freyr og Elvar voru að gefa út glænýtt lag sem ber heitið SKART. Mannlíf ræddi við tónlistarmanninn Róbert Frey Ingvason, sem gefur út tónlist undir nafninu Freyr. Hann var rétt í þessu að gefa út glænýtt lag ásamt félaga sínum Elvari. Mynd: Kristófer Ingason Samkvæmt Frey varð lagið til á dimmu vetrarkvöldi í Keflavík. „SKART varð til í febrúar...
MenningGerir upp veikindin með tónlistinni: „Andlega áfallið var enn meira en það líkamlega“10. júní 2024 Eftir að hafa fengið heilablóðfall fyrir tveimur árum vegna hjartagalla og hjartaaðgerðar í kjölfarið þar sem lokað var á milli hjartahólfa átti Svavar eftir að gera upp andlega áfallið sem fylgdi í kjölfarið „Svona eftir á að hyggja þá var andlega áfallið enn meira en það líkamlega og var ég talsverðan tíma að vinna úr því hversu tæpt þetta stóð...
MenningHjónin Halldór og Agnes með glænýtt lag: „Heimaiðnaður gjörið svo vel“22. maí 2024 Hjónin Halldór Warén og Agnes Brá gáfu út glænýtt lag í dag, Þrátt fyrir allt. Í fréttatilkynningu frá hjónunum, sem búa á Egilsstöðum segir meðal annars: „Fyrir nokkrum árum vantaði okkur hjónunum skemmtiatriði í brúðkaup vinafólks okkar , rifjaðist upp lag með John Prine sem gæti hentað vel í gjörninginn, við hringdum í vin okkar Sævar Sigurgeirsson sem smellti út...
MenningFreyr gefur út lagið MOON: „Ég nærist á því að skapa list“9. maí 2024 Róbert Freyr Ingvason var að gefa út nýtt lag á dögunum, undir listamannanafninu Freyr. Róbert Freyr, hóf að gera tónlist aðeins 14 ára gamall en þá samdi hann texta og kenndi sjálfum sér á gítar. Mannlíf tók við hann viðtal: „Ég hef verið í tónlist frá árinu 2009, byrjaði 14 ára að semja texta ásamt því að kenna sjálfum mér...
MenningPoetrix með nýtt lag: „Það er hægt að bjarga lífi hans Sævars, en til þess þurfum við ykkar hjálp“22. apríl 2024 Rapparinn Poetrix er að gefa út áður óútgefið efni til styrktar góðgerðarsöfnunar til að safna fyrir læknisþjónustu erlendis sem er honum ekki til boða á Íslandi. Á næstunni fer hann í stórar skurðaðgerðir til að bjarga honum en hann er langt gengin úr alvarlegum áverkum og er líf hans í húfi. Poetrix er hliðarsjálf Sævars Daníels Kolandavelu en í fréttatilkynningu...