Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
InnlentRakt loft er ríkjandi – Væntanlegur vindur úr suðri4. maí 2024 Í pistli veðurfræðings á Veðurstofu Íslands kemur fram að það sé útlit fyrir hægan vind á mestöllu landinu í dag. Á vestanverðu landinu mun verða skýjað með köflum; þurrt að mestu; líklegir eru lítilsháttar skúrir á stöku stað. Austanlands er það rakt loft sem er ríkjandi; má búast við súld eða þokumóðu. Hiti verður víða á bilinu 5 til 10...
InnlentSumardagurinn fyrsti býður upp á 13 stig – Gert ráð fyrir björtu veðri25. apríl 2024 Í dag er sumardagurinn fyrsti um land allt. Ágætt er í kortunum; spáin gerir ráð fyrir hægri norðlægri eða breytilegri átt og björtu veðri sunnan- og vestanlands; þar gæti hiti náð 13 stigum. Lítum þá til norðurs: Á Norður- og Austurlandi þykknar upp; er útlit fyrir aðeins svalara veður en síðustu daga, og verður hiti á bilinu 0 til 7...
LandiðUm landiðEmil hefur litlar áhyggjur af Vestfirðingum: „Setur strik í reikninginn hjá ferðamönnum“21. mars 2024 Slæmt veður hefur herjað á Vestfirðinga undanfarna daga og lýsti Veðurstofa Íslands yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Mannlíf hafði samband við Emil Ólaf Ragnarsson, íbúa á Flateyri, til spyrja hann um stöðuna í dag. „Það er töluvert af snjó hérna núna, snjóflóðahætta hérna á veginum eftir ströndinni að Flateyri, hann er ófær núna sá vegur svo það er...
InnlentHækkandi hitatölur einkenna helgina15. mars 2024 Hvít föl liggur yfir götum borgarinnar þennan föstudagsmorgun, eftir þó nokkra sólríka og góða daga. Í spá Veðurstofu Íslands fyrir daginn í dag sem og helgina segir : „Suðaustan 8-15 m/s og slydda eða snjókoma með köflum í dag, hvassast suðvestanlands. Hægari um landið austanvert og þurrt fram á kvöld. Frost 0 til 8 stig, en hlánar við suður- og...
InnlentÖrlar á vori – Hiti hátt í 10 stig6. mars 2024 Óhætt er að segja að vorið kítli landann þessi dægrin og rauðar hitatölur skreyta landakort Veðurstofu Íslands. „Það er áfram mild suðaustlæg átt hjá okkur í dag og nokkuð hvasst suðvestantil, en hægari vindur í öðrum landshlutum. Súld eða rigning suðaustanlands, annars úrkomulítið. Það er djúp lægð suðvestur í hafi og í kvöld koma skil frá henni inn á sunnanvert...
InnlentHöfuðborgarsvæðið vaknar við hvíta jörð – Hiti í kortunum4. mars 2024 Eftir sólaríka en fremur svala helgi, vöknuðu íbúar höfuðborgarsvæðisins við fannhvítan snjó yfir öllu. Gera má ráð fyrir að hann standri stutt við enda hiti í kortunum. Mynd/Veðurstofa Íslands Samkvæmt Veðurstofu Íslands segir: „Lægðin sem liggur skammt S af landinu, kemur með milt loft. Hitastigið er víða komið upp í 0 til 7 stig núna í morgunsárið. Í dag verður...
InnlentVeðrið stjórnast af tveimur lægðum – Frost í öllum landshlutum28. febrúar 2024 Í dag er spáð hæg breytilegri átt, víða dálítil él, en norðvestan 8-13 metrar á sekúndu með austurströndinni fram eftir morgni. Norðaustan 5-13 og lítilsháttar snjókoma suðaustantil seinnpartinn. „Norðlæg átt, 5-13 og él á morgun, en bjart með köflum sunnan heiða. Frost 0 til 12 stig, kaldast í innsveitum norðanlands,“ segir á vef Veðurstofu Íslands. Haft er eftir veðurfræðingi hjá...
InnlentMild og björt helgi framundan: „Þar sem sólar nýtur munu menn finna góðan yl“23. febrúar 2024 Sólin lætur sjá sig um allt land um komandi helgi, ef litið er til veðurspár Veðurstofu Íslands. Veðrið í dag og á morgun verður að mestu óbreytt til samamburðar við síðastliðna daga. Er því óhætt að fullyrða að helgin bjóði upp á ágætis útivistarveður í flestum landshlutum. „Dægursveiflan er farin að hafa þokkaleg áhrif á hitastigið og þar sem sólar...
InnlentHvít jörð á höfuðborgarsvæðinu: „Á morgun er síðan von á sendingu úr norðri“21. febrúar 2024 Íbúar höfuðborgarsvæðins vöknuðu við hvíta jörð eftir nokkra góða daga með hlýju og jafnframt vorlegu veðri. Full ástæða er til að fara varlega í umferðinni. Samkvæmt Veðurstofu Íslands er spáð rigningu, slyddu eða snjókomu í dag. Breytilegri átt 8-15 metra á sekúndu. Dregur úr vindi með kvöldinu. Hiti verður á bilinu 0-4 stig. Hugleiðingar veðurfræðings eru: „Í nótt nálgaðist lægð...
InnlentVorveður kitlar landann19. febrúar 2024 Veðrið lék víð við landann um helgina. Víða hefur snjó leyst á Suðvesturhorni landsins sem auðveldar aðgengi vegfaranda jafnt akandi sem og gangandi. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands verður dagurinn mildur með suðaustan 3-8 m/s og skúrir, en lítilsháttar súld á köflum norðanlands fram yfir hádegi. „Gengur í suðaustan 10-18 með rigningu undir kvöld, fyrst sunnan- og vestantil. Suðlæg átt,...
LandiðLýsa yfir snjóflóðahættu á Austfjörðum – Athyglin beinist að Seyðisfirði12. febrúar 2024 Veðurstofa Íslands hefur nú lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á Austufjörðum en aðalathyglin beinist að Seyðisfirði eftir úthelli í nótt. Fram kemur hjá Austurfrétt að úrkoman á Seyðisfirði klukkan níu í morgun, hafi verið komin í yfir 40 millimetra frá miðnætti, samkvæmt yfirliti Veðurstofunnar. Á Seyðisfirði hefur snjóað í fjöll en blotað í byggð en hvöss austnorðaustan átt hefur verið...
InnlentStrætó fellir niður allar ferðir á landsbyggðinni – Búast við töfum á höfuðborgarsvæðinu31. janúar 2024 Strætó hefur fellt niður allar ferðir á landsbyggðinni vegna veðurs. Samkvæmt tilkynningu sem barst á Facebook-vegg Strætó, er búið að fella niður allar ferðir út á land, í augnablikinu en fólk er beðið um að fylgjast með tilkynningum um niðurfellingu ferða á straeto.is og í Klappinu. Þá segir einnig í færslunni að búast megi við töfum á ferðum Strætó á...