„Hún var ofboðslega hrædd“
Heimur

Háfleikmaður réðst á áhorfendur – MYNDBAND

Innlent

Mest lesnu fréttir ársins – Harmleikir, húmor og hnupl

Innlent

Safna fyrir fjölskyldu Maciej: „Þetta hef­ur haft mjög mik­il áhrif á sam­fé­lagið“

Innlent

Samstöðin í kröggum: „Erum að leita leiða til að styrkja vefinn“

Heimur

Klappstýra ákærð fyrir að drepa geit með eitri: „Vonumst til þess að hún verði dæmd í fangelsi“

Mannlífið

Guðjón réðst inn á eigin strippstað: „Þetta var eins og á orrustuvelli“

Innlent

Óánægjan með Bjarna innan Sjálfstæðisflokksins fer vaxandi: „Með náhirðina rappandi um eigið ágæti“

Innlent

Maður rekinn úr mathöll

Landið

Múlaþing biður íbúa afsökunar: „Þetta er náttúrulega til skammar“

Innlent

Stefán hugsi yfir stjórnarsáttmálanum: „Stjórnvöld voru að vandræðast“

Ólöf Tara svarar Írisi Dröfn: „Hún kallar kynferðisafbrot mistök“

Ólöf Tara svarar Írisi Dröfn: „Hún kallar kynferðisafbrot mistök“

Ólöf Tara, einka- og nær­ing­ar­þjálfi, sem hefur barist ötul­lega gegn ofbeldi á konum, er ekki ánægð með skrif Írisar Drafnar Krist­jáns­dóttur grunn­skóla­kenn­ara um ofbeldi gegn konum og „til­raunir til mann­orðs­morða“ á sam­fé­lags­miðlum. Hún ræddi málið við Mannlíf.

„Til að und­ir­strika þessa orð­ræðu sem ég gagn­rýni,“ segir Ólöf og heldur áfram, „þá segir Íris Dröfn Krist­jáns­dóttir meðal ann­ars að „í hverri viku má sjá til­raunir til mann­orðs­morða og á litlu landi eins og hér geta þessar til­raunir verið ansi árang­urs­ríkar. Í þess­ari nýju #metoo her­ferð hef ég rekið augun í frá­sagnir – oft­ast kvenna – af málum sem eru svo ómerki­leg að þær hefðu vel getað afgreitt þau á staðnum þegar atvikið átti sér stað með því að setja mörk. Auðvitað á að segja frá. Við erum með Kvenna­at­hvarfið og Bjark­ar­hlíð sem taka á móti konum sem verða fyrir ofbeldi.“

Óhætt er að segja að skrif Írisar hafa vakið hörð við­brögð meðal fórn­ar­lamba kyn­ferð­is­of­beldis, sem telja að Íris sé að gera lítið úr þeim á mjög óvæg­inn hátt. Undir það tekur Ólöf sem túlkar skrif Írisar á þann veg að hún sé að „kalla frá­sagnir kvenna ómerki­legar. Það að segja að konur eigi bara að setja mörk án þess að leiða hug­ann að því að ger­endur eigi að virða mörk er stórt vanda­mál og nær vel utan um hvað brota­þolar kyn­ferð­is­of­beldis glíma við þegar þeir reyna skila skömminni. Hún potar því inn að þolendur eigi bara að leita sér aðstoðar í athvörfum án þess að leiða hug­ann að því að biðlistar eru langir, sem sýnir okkur að vanda­málið er við­fangs­mikið og leys­ist ekki með því að þolendur leiti sér aðstoðar, heldur með því að ger­endur axli ábyrgð og hætti að beita ofbeldi.“

Gagnrýni Ólafar snýr ekki að því að „fólk sé mót­fallið opin­berun – heldur hvernig þessum orðum er beint að brota­þolum ofbeldis; hvernig Metoo-bylt­ing­unni er kennt um að Eiður Smári hafi orðið fyrir opin­berri smánun. Slauf­un­ar­menn­ingun fædd­ist ekk­ert hér á þessu ári í kjöl­farið af metoo. Þolendur hafa lengi barist fyrir breyt­ingum á rétt­ar­kerf­inu sem og við­horfs­breyt­ingum í sam­fé­lag­inu og kallað eftir að á þá sé hlustað. Nafn­lausa metoo bylt­ingin var ekki nóg – það urðu enga breyt­ingar. Núna breyt­ist áherslan og ger­endur eru nafn­greindir,“ segir Ólöf.

Spurð út í hvort það sé rétta leiðin að nafn­greina ger­endur í fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum segir Ólöf: „Það er ekki mitt að segja, enda er mik­il­vægt að hafa í huga að það vilja ekki allir þolendur fá afsök­un­ar­beiðni; frekar að ger­endur axli ábyrgð á gjörðum sínum og við­ur­kenni brot sín svo sárs­auka­full mála­ferli þar sem ráð­ist að æru þeirra og heil­indum séu ögn bæri­legri.“

Hún segir líka að „nú er staðan þannig – enn og aftur – að þolendur eru dregnir til ábyrgðar án þess að fólk hugsi til þess að mögu­lega er afskipta- og aðgerð­ar­leysið gagn­vart þolendum valdur þess að þeir eru komnir á enda­stöð hvað varðar að á þá sé hlustað. Þessi áhersla á að þolendur séu að eyði­leggja mann­orð ger­enda sinna er afvega­leið­ing á raun­veru­lega vanda­mál­inu. Gerendur stóla á að þetta við­horf breyt­ist ekki, svo þeir þurfi ekki að horfast í augu við að þeir eru vand­inn. Ég þarf engan dóm til að trúa því þegar ein­stak­lingur segir mér frá ofbeldi sem hann varð fyrir. Rétt­ar­kerfið sér um að dæma um hvort sönn­un­ar­byrði sé næg til að sak­fella, en það er ekki þar með sagt að brotið hafi ekki átt sér stað.

Trú­verð­ug­leiki þolenda er alltaf dreg­inn í efa hvort sem hann nafn­greinir eða nafn­greinir ekki, eða að ger­andi hafi verið sak­felldur. Fólk virð­ist stein­hissa á því að ger­endur ljúgi, en hikar ekki að kalla þolendur lygara og greinir þá á kommenta­kerfum lands­ins með allskyns geð­sjúk­dóma. Aðförin und­ar­farnar vikur hefur verið mikil; allt í nafni þess að verja meinta ger­endur. Þegar menn eru dregnir til ábyrgðar þá á að kippa í spott­ana og snúa þró­un­inni við. Hvetjum þá sem beita ofbeldi til þess að leita sér aðstoðar í stað þess að skrifa opin­berar afsök­un­ar­beiðnir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
Innlent

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...
Innlent

Stefnir allt í kennaraverkfall á morgun: „Við eigum betra skilið“

Innlent

Egill telur að hægri vængurinn á Íslandi sé í uppnámi: „Helst stefnt að því að mölva og skemma“

Innlent

Rúmur helmingur telur að ríkisstjórnin muni klára kjörtímabilið

Heimur

Ofurstjörnur skipta óvænt um lið í NBA deildinni

Menning

Ljósbrot heldur áfram að sigra heiminn – Hefur unnið 14 alþjóðleg kvikmyndaverðlaun

Innlent

Ökuvillingur lagði á flótta undan lögreglu á Bústaðarvegi – Keyrði á móti umferð

Innlent

Margrét Guðnadóttir ráðin forstöðumaður Miðstöðvar í öldrunarfræðum

Skoðun
Aðsend grein

Hvernig skapast verðmæti?

Heimur

Kona gekk í skrokk á eiginmanni sínum og frillu hans – MYNDBAND

Innlent

Mun ríkisstjórnin klára kjörtímabilið?

Menning

Fjölskyldufaðir tekst á við stórt áfall með plötuútgáfu: „Þú stýrir ekki vindinum …“

Innlent

Innlent

Hákon klobbaður í fyrsta byrjunarliðsleik

Innlent

Margrét Guðnadóttir ráðin forstöðumaður Miðstöðvar í öldrunarfræðum

Innlent

Stefnir allt í kennaraverkfall á morgun: „Við eigum betra skilið“

Innlent

Egill telur að hægri vængurinn á Íslandi sé í uppnámi: „Helst stefnt að því að mölva og skemma“

Innlent

Rúmur helmingur telur að ríkisstjórnin muni klára kjörtímabilið

Innlent

Ökuvillingur lagði á flótta undan lögreglu á Bústaðarvegi – Keyrði á móti umferð