„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mest lesnu fréttir ársins – Harmleikir, húmor og hnupl

Mest lesnu fréttir ársins – Harmleikir, húmor og hnupl
Bríet Mynd/skjá­skot af Instagrammi Bríetar

Árið 2024 var ár sorgar, harm­leika, veik­inda en líka popp­stjörn­unnar Bríetar ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Við höfum nú tekið saman tíu mest lesnu fréttir árs­ins en nokkrar fréttir stóðu upp úr en um leið vill rit­stjórn Mannlífs þakka kær­lega fyrir stuðn­ing­inn á árinu og óskum við þjóð­inni gæfu­ríks kom­andi árs, fullu af ást og birtu.

10. Spreng­ing heima hjá Bríeti: „Heyrðu, ég ætl­aði að fara að sofa! Ertu ekki að grín­ast?“

Bríet.

Poppprinsessan Bríet Ísis Elfar lenti í kröppum dansi í upp­hafi árs þegar hún ætl­aði sér að kæla orku­drykk á svöl­unum. Ekki tókst betur til en að drykk­ur­inn hrein­lega sprakk í íbúð Bríetar og átti hún í fullu fangi með að þrífa ósköpin.

9. Svala veikt­ist hratt og á nú erfitt með gang: „Þakka ykkur kær­lega fyrir allar fal­legu kveðj­urnar“

Svala Fanney

Kenn­ar­inn og áhrifa­vald­ur­inn Svala Fanney Snædahl Njáls­dóttir veikt­ist snögg­lega í mars á þessu ári en á stuttum tíma missti hún mátt í löpp­unum og hætti að geta gengið. Reyndist um Guillain Barré Syndrome að ræða en með end­ur­hæf­ingu og elju­semi er Svala Fanney farin að geta gengið aftur.

8. Sorg í Sand­gerði – Steypu­stöðin harmar banaslysið í yfir­lýs­ingu

Fólk í Sand­gerði flaggar í hálf stöng

Alvar­legt bílslys varð á Grind­ar­víku­vegi þann sjötta jan­úar þar sem tveir létu lífið. Ein­stak­ling­arnir sem lét­ust voru frá Sand­gerði og ríkti því mikil sorg í bæj­ar­fé­lag­inu. Steypu­stöðin sendi frá sér til­kynn­ingu vegna slyss­ins en öku­tæki á þeirra vegum rann á hitt öku­tækið en í til­kynn­ing­unni harm­aði fyr­ir­tækið banaslysið.

7. Haltr­andi fastakúnni grip­inn með þýfi inn­an­klæða: „Hún labbar um alla búð­ina og treður inn á sig“

Katla lýsir fram­göngu þjófs sem jafn­framt hefur verið fastakúnni í verslun hennar. Myndin er sam­sett.

Eigandi versl­un­ar­innar Systur og makar sagði frá ótrú­lega bíræfnum fastakúnna sem tróð hell­ing af vörum inn á sig og ætl­aði sér að ganga með varn­ing­inn út úr búð­inni án þess að greiða. Um var að ræða konu sem gekk með staf, sem hafði margoft verslan í búð­inni og afgreiðslu­fólk hafði oft stjanað við hana. Að lokum náð­ust þó sáttir en það er önnur frétt.

6. Aron Mola og Bríet á sjóð­heitri potta­mynd – Ekki fyrir við­kvæma!

Enn heit­ari ljós­mynd,

Vinirnir Aron Mola, leik­ari og áhrifa­valdur og söngdívan Bríet birtu eina fyndn­ustu ljós­mynd seinni ára, að marga mati, en um var að ræða end­ur­gerð á pott­mynd sem Aron birti árið 2019 en í þetta sinn gekk hann skref­inu lengra. Var hann með þessu að gera létt­vægt grín að rassa­ljós­myndum áhrifa­valda á Instagram.

5. Bríet sjóð­heit í gegn­sæjum kjól: „Passa sig“

Bríet og fal­legi kjóll­inn

Enn og aftur sló frétt um Bríeti ræki­lega í gegn hjá les­endum Mannlífs enda um hæfi­leika­búnt að ræða sem hefur þar að auki útlitið með sér. Bríet er ekki aðeins þekkt fyrir seið­andi rödd sína og flotta popptón­list, heldur einnig fyrir frum­legan klæða­burð. Er hún afar dug­leg að leyfa fylgj­endum sínum á Instagram að fylgj­ast með gerð ýmissa kjóla og múnd­er­inga sem hún klæð­ist á svið­inu en í þess­ari frétt er sagt frá sjóð­heitum kjól sem hún hafði hannað.

4. Kunningi meints morð­ingja í Nes­kaup­stað: „Alveg greini­legt að hann var orð­inn veik­ari“

Nes­kaups­staður

Eitt af fjöl­mörgum morðum sem skók þjóð­ina í ár var hið tvö­falda morð á hjónum á átt­ræð­is­aldri í Nes­kaups­stað í ágúst. Mannlíf ræddi við kunn­ingja hins meinta bana­manns en hann sagði mann­inn hafa virst afar veikur á geði stuttu fyrir morðin en hann hafði um langt skeið glímt við geð­ræn vanda­mál og fíkni­efna­vanda. Að sögn kunn­ingj­ans var mað­ur­inn venju­lega „mjög fínn og skemmti­legur“ en hafi ber­sýni­lega verið orð­inn veik­ari rétt fyrir morðin.

3. Nafn unga manns­ins

Ingvi Hrafn Tómasson lést á Litla Hrauni í byrjun maí

Enn einn harm­leikur varð þegar ungur maður að nafni Ingvi Hrafn Tómasson stytti sér aldur inni á Litla-Hrauni í maí. Hafði hann glímt við fíkni­efna­vanda en var á bata­vegi. Var hann nærri því búinn að ljúka afplánun á fanga­heim­il­inu Vernd þegar hann var aftur sendur í fang­elsið á Litla-Hrauni vegna meintrar kæru. Faðir hans heimt­aði rann­sókn á and­lát­inu en hann sagði Ingva Hrafn hafa í örvænt­ingu sinni leitað hjálpar dag­inn fyrir and­látið en verið sagt að bíða fram­yfir helgi.

2. Fiskbúð Fúsa lokar: „Ég er að fara í smá aðgerð“

Sigfús Sig­urðs­son.

Sigfús Sig­urðs­son hefur lengi verið einn af óska­sonum þjóð­ar­innar, fyrst sem lands­liðs­maður í hand­bolta og nú sem ást­sæll fisk­sali. Því kemur það lítið á óvart að næst mest lesna fréttin skuli fjalla um tíma­bundna lokun Sigfúsar í jan­úar á fisk­verslun sinni Fiskbúð Fúsa. Ástæðan var sú að hann hugð­ist ganga undir „smá aðgerð“. Versl­unin opn­aði síðan aftur nokkrum vikum síðar og gátu þá við­skipta­vinir Fúsa tekið gleði sína á ný.

1. Guðbjörg Svava lést úr lungna­bólgu

Blessuð sé minn­ing hennar

Vin­sælasta frétt árs­ins 2024 á Mannlífi snéri að dán­ar­or­sök hinnar 37 ára gömlu Guð­bjargar Svövu Guð­munds­dóttur, sem lést 20. októ­ber 2023. Faðir hennar, Guð­mundur Sigurður Guð­munds­son stað­festi við Mannlíf að dóttir hans hafði lát­ist vegna lungna­bólgu. Guðbjörg Svava hafði glímt við mikla erf­ið­leika í sínu lífi en eig­in­maður hennar, Tómas Waagfjörð, var stung­inn til bana á Ólafs­firði árið 2022. Ekki missti Guð­mundur ein­ungis dóttur sína þann 20. októ­ber, heldur lést eig­in­kona hans, Annika, einnig þann dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fréttaannáll

Svona var árið með augum Mannlífs – Fréttaannáll 2021
InnlentFréttaannáll

Svona var árið með augum Mannlífs – Frétta­ann­áll 2021

Rit­stjórn Mannlífs óskar öllum gleði­legrar hátíðar og þakkar les­endum sínum góða sam­leið og stór­auk­inn lestur á árinu. Almenn­ingur tók Mannlífi opnum örmum á árinu 2021. Mannlíf hefur verið í for­dæma­lausri sókn frá því að nýir eig­endur tóku við fjöl­miðl­inum. Frá því Sólartún tók við mann­lif.is á síð­asta ári hefur lestur Mannlífs auk­ist um 556 pró­sent og not­endum fjölgað um 385...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins