„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svala veiktist hratt og á nú erfitt með gang: „Þakka ykkur kærlega fyrir allar fallegu kveðjurnar“

Svala veiktist hratt og á nú erfitt með gang: „Þakka ykkur kærlega fyrir allar fallegu kveðjurnar“
Svala Fanney Mynd: Instagram-skjáskot

Hin 43 ára Svala Fanney Snædahl Njáls­dóttir á erfitt með gang eftir snögg veik­indi og dvelur nú á Sjúkra­hús­inu á Akureyri.

Svala Fanney Snædahl er kenn­ari við Greni­vík­ur­skóla og vin­sæll áhrifa­valdur en hún heldur úti Instagram-reikn­ingnum Frá hug­mynd að heim­ili. Nýverið veikt­ist hún illa en á örfáum dögum fór hún frá því að vera nokkur heil­brigð yfir í að eiga erfitt með gang og handa­hreyf­ingar. Svala Fanney hefur verið mjög opin í gegnum veik­indin en hún hefur sagt frá líðan sinni og þróun veik­ind­anna á Instagram. Í mynd­skeiðum sem hún birti eftir að hún var lögst inn á Sjúkra­húsið á Akureyri, lýsir hún veik­indumum. „Mig langar að byrja á því að þakka ykkur kær­lega fyrir allar fal­legu kveðj­urnar og hlý­hug­inn sem þið hafið sýnt mér,“ segir Svala í upp­hafi. Og heldur svo áfram: „Ég finn fyrir því og kann virki­lega vel að meta það. Ég byrj­aði á því í síð­ustu viku að fá svona skrít­inn nál­ar­dofa og bruna­til­finn­ingar í fæt­urnar, svona eins og raf­straum. Ég þekki það í vinstri fæt­inum, eftir brjósklosið, vegna tauga­skemmda en að fá þetta í hægri fót­inn var alveg nýtt. Svo fóru lapp­irnar hálf part­inn að gefa sig og göngu­lagið varð hálf skrítið, sér­stak­lega þegar leið á dag­inn. Ég var skárri á morgn­anna.“

Svala seg­ist hafa þrá­ast við að fara til læknis því hún hefði verið viss um að þetta tengd­ist bak­inu. Eitthvað sem myndi ganga til baka. Svo fékk hún svima sem hún tengdi við háls­bólgu og kvef sem hún hafði fengið. En á laug­ar­dags­kvöldið, fyrir viku síðan, fór Svala á leik­sýn­ingu og var góð þegar hún fór en eftir að hafa setið í tvo tíma í leik­hús­inu fann hún að fæturnir voru orðnir mjög óstöðugir. „Svo á sunnu­dags­morgun átti ég orðið mjög erfitt með gang og hægri höndin var farin að vera með vesen. Ég var að læra og vinna á tölv­una og allt í einu voru fing­urnir hættir að rata á rétta bók­stafi. Og þá leyst mér ekki alveg nógu vel á blik­una og Árni, mað­ur­inn minn var ekki til í að sam­þykkja að ég myndi sjá til lengur.“ Svala hringdi þá fyrst í 1700 en var auð­vitað sagt að fara beint á bráða­mót­tök­una. Og það gerði hún. „Þetta hefur svona aðeins ágerst,“ segir Svala og útskýrir nánar: „Var verri í gær en er mjög svipuð í dag. Ég er búin að fara í alls konar rann­sóknir, blóðprufur og í gær var tek­inn mænu­vökvi, með mænustungu. Ég skal alveg við­ur­kenna það að ég missti svo­lítið kúlið þegar ég vissi að ég ætti að fara í mænustungu, fór pínu að skæla þá. En bara til að segja ykkur, ef þið eigið ein­hvern tíma eftir að fara í mænu­á­s­tungu, þá var þetta ekk­ert mál. Til­hugs­unin var þús­und sinnum verri heldur en fram­kvæmdin. Þetta gekk rosa­lega vel og mænu­vök­vinn leit vel út, hann var tær og ekk­ert sem vakti ein­hverjar áhyggjur. En það þarf að senda hluta af sýn­unum til Sví­þjóðar. Það er verið að skoða alls konar en það eru alls konar kenn­ingar í gangi en það þarf svona frek­ari nið­ur­stöður úr mænu­vökv­anum og rann­sóknir til að stað­festa eða úti­loka þessar grein­ingar. Ég ætla ekki að fara neitt nánar út í það en það er sem sagt verið að skoða svona tauga­sjúk­dóma, þetta snýr eitt­hvað að mið­tauga­kerf­inu, þar sem það eru trufl­anir á skynjun þar og tauga­boðum þannig að það er verið að skoða alls konar. En ég er í mjög góðum höndum hérna á Sjúkra­hús­inu á Akureyri, það er hugsað mjög vel um mig og það er verið að vinna að því á fullu að finna út hvað veldur þessu en ég á að vera hérna í ein­hverja daga alla veg­ana, undir eft­ir­liti.“

Svala Fanney birti eft­ir­far­andi mynd­skeið sem sýnir hinar gríð­ar­legu breyt­ingar á hreyfi­getu hennar en mynd­skeiðið má sjá hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Veikindi

Bresk fegurðardrottning greindist með húðkrabbamein: „Haldið ykkur frá ljósabekkjum“
Heimur

Bresk feg­urð­ar­drottn­ing greind­ist með húð­krabba­mein: „Haldið ykkur frá ljósa­bekkjum“

Breskar feg­urð­ar­drottn­ingin Danielle Lloyd hefur verið greind með húð­krabba­mein. Fyrrum feg­urð­ar­sam­keppn­is­stjarnan, sjón­varps­konan, mód­elið og við­skipta­konan Danielle Lloyd hefur opin­berað að hún hafi verið greind með húð­krabba­mein. Hún var meyr þegar hún sagði aðdá­endum að hún væri „þrumu­lostin“ yfir frétt­unum, og þyrfti að fara í aðgerð. Í til­finn­inga­þrungnu mynd­bandi sem hún deildi í story á Instagram sagði hún: „Ég veit ekki...
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sótti veikan sjómann undan Hornströndum
InnlentVeikindi

Þyrlu­sveit Land­helg­is­gæsl­unnar sótti veikan sjó­mann undan Horn­ströndum

Veikinda varð vart um borð í íslensku skipi sem statt var um 60 sjó­mílur norður af Horn­ströndum í fyrra­dag en þyrslu­sveit Land­helg­is­gæsl­unnar var kölluð á vett­vang. Á níunda tím­anum á þriðju­dags­morgun tók áhöfnin á TF-GRO á loft frá Reykja­vík­ur­flug­velli en sam­kvæmt heima­síðu Gæsl­unnar er önnur þyrlu­á­höfn sett í við­bragðs­stöðu í Reykja­vík þegar farið er í útköll á borð við þessa,...
Fjölskyldufaðir tekst á við stórt áfall með plötuútgáfu: „Þú stýrir ekki vindinum …“
Menning

Fjöl­skyldu­faðir tekst á við stórt áfall með plötu­út­gáfu: „Þú stýrir ekki vind­inum …“

Atli Þór Sig­urðs­son greind­ist með heila­æxli í fyrra en hann stendur nú fyrir söfnun inni á Karolina Fund svo hann geti gefið út tvær plötur með frum­sömdu efni. Atli Þór, sem verður 39 ára á þessu ári, vinnur sem for­rit­ari hjá Bláa Lóninu og hefur gert það síðan 2021. Er hann alinn upp í Breið­holt­inu en hefur búið í Graf­ar­vogi...
Kamilla drottning afboðar sig vegna veikinda
Heimur

Kamilla drottn­ing afboðar sig vegna veik­inda

Kamilla Breta­drottn­ing hefur dregið sig út úr opin­berum störfum vik­unnar eftir að hafa veikst af brjóst­sýk­ingu, að því er Buckingham höll hefur til­kynnt. Her­toga­ynjan af Gloucester mun stíga inn fyrir hönd Kamillu til að vera við­stödd árlega opnun Minn­ing­ar­sviðs í Westminster Abbey á fimmtu­dag­inn. Drottn­ingin hefur einnig dregið sig út úr mót­töku Buckingham-hallar fyrir þátt­tak­endur Ólymp­íu­leik­anna, sem Karl III hefur...
Kjartan bæjarstjóri kominn í veikindaleyfi – Greindist með krabbamein í sumar
InnlentVeikindi

Kjartan bæj­ar­stjóri kom­inn í veik­inda­leyfi – Greind­ist með krabba­mein í sumar

Bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, Kjartan Már Kjart­ans­son er kom­inn í veik­inda­leyfi en í sumar greind­ist hann með krabba­mein. Samkvæmt vef Vík­ur­frétta hófst horm­óna­með­ferð strax í kjöl­far grein­ingar en stefnt er að því að Kjartan Már gang­ist undir geisla­með­ferð í októ­ber og nóv­em­ber. Þar kemur einnig fram að hann muni áfram sinna ýmsum sér­verk­efnum í sam­ráði við Halldóru Fríðu Þor­valds­dóttur, for­mann bæj­ar­ráðs en...
Hópsmit á hálendinu – Björgunarsveitir sóttur veik skólabörn í Emstruskála
Innlent

Hópsmit á hálend­inu – Björg­un­ar­sveitir sóttur veik skóla­börn í Emstru­skála

Þessa stund­ina eru björg­un­ar­sveitir á Suð­ur­landi að flytja fjölda ferða­manns sem und­an­far­inn sól­ar­hring hafa veikst en flestir þeirra hafa dvalið í Emstru­skála. Sunn­lenska segir frá mál­inu en rétt í fyrir mið­nætti í gær voru björg­un­ar­sveitir kall­aðar út vegna hóps skóla­barna í Emstru­skála í Emstru­botnum. Af 50 manna hóp voru að minnsta kosti 15 börn orðin veik en komið var með...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins