„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svona var árið með augum Mannlífs – Fréttaannáll 2021

Svona var árið með augum Mannlífs – Fréttaannáll 2021

Rit­stjórn Mannlífs óskar öllum gleði­legrar hátíðar og þakkar les­endum sínum góða sam­leið og stór­auk­inn lestur á árinu.

Almenn­ingur tók Mannlífi opnum örmum á árinu 2021. Mannlíf hefur verið í for­dæma­lausri sókn frá því að nýir eig­endur tóku við fjöl­miðl­inum. Frá því Sólartún tók við mann­lif.is á síð­asta ári hefur lestur Mannlífs auk­ist um 556 pró­sent og not­endum fjölgað um 385 pró­sent. Þá hefur beinum heim­sóknum inn á vef­inn fjölgað um 884 pró­sent.

Mesta lestrar­aukn­ing Mannlífs milli mán­aða á tíma­bil­inu nemur 615 pró­sentum. Fjöl­mið­il­inn hefur náð góðu jafn­vægi á fjöl­miðla­mark­aðnum þar sem dag­legur lestur er alla jafna um 40-55 þús­und les­endur. Hæst reis lest­ur­inn í rúm­lega 100 les­endur á dag.

Á árinu sagði Mannlíf fyrst allra fjöl­miðla frá hvort heldur meintum sem við­ur­kenndum kyn­ferð­is­brotum lands­liðs­mann­anna Arons Einars Gunn­ars­sonar, Eggerts Gunnþórs Jóns­sonar, Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar og Kolbeins Sig­þórs­sonar. Mannlíf greindi einnig fyrst frá meintri ofbeld­is­hegðun Ragnars Sig­urðs­sonar lands­liðs­manns. Þá kom Mannlíf af stað þeirri Metoo-bylgju sem enn er í gangi eftir að hafa opnað á meint brot Sölva Tryggva­sonar fjöl­miðla­manns og Ingólfs Þór­ar­ins­sonar tón­list­ar­manns, sem er betur þekktur sem Ingó Veðurguð.

Fleiri í vanda

Aðstoð­ar­þjálf­ari íslenska lands­liðs­ins, Eiður Smári Guðjohn­sen, náð­ist á

mynd­bands­upp­töku

í miðbæ Reykja­víkur í ann­ar­legu ástandi og var í kjöl­farið sendur í tíma­bundið leyfi frá störfum, síð­ast­lið­inn júní. Áður mætti hann

líka undir áhrifum áfengis

í útsend­ingu Símans sem sér­fræð­ingur um knatt­spyrnu. Þá hefur Mannlíf fjallað ítar­lega um kyn­ferð­is­brot og iðrun Kolbeins Sig­þórs­sonar.

Ekki má gleyma því …

… að Mannlíf kom Metoo #2-bylgj­unni af stað með því að galopna á mál fjöl­miðla­manns­ins Sölva Tryggva­sonar. Í kjöl­farið var Mannlíf leið­andi í umfjöllun um tón­list­ar­menn­ina Ingólf Þór­ar­ins­son og Auðun Lúth­ers­son, sem er betur þekktur sem Auður.

Fjöl­margar fréttir Mannlífs vöktu mikla athygli á árinu og var mið­ill­inn leið­andi í stórum frétta­málum. Svona var árið með augum Mannlífs:

Fréttaannáll 2021

Janúar

Stefán Karlsson er lát­inn: Minning um leið­toga og ynd­is­lega mann­eskju lifir

Stefán Karlsson lést langt fyrir aldur fram. Hann var fram­kvæmda­stjóri Vals í tvö ár og stjórn­ar­maður í hand­knatt­leiks­deild félags­ins.

Blessuð sé minn­ing Stefáns.

Stefáni var lýst sem afar vönd­uðum manni, góð­hjört­uðum og ráða­góðum. Stefán var einnig mik­ill leið­togi og tók hann á móti öllum glað­beittur á svip og bros hans leið fólki seint úr minni.

Fjöl­margir minnt­ust Stefáns á sam­fé­lags­miðlum.

„Minning um frá­bæran leið­toga og ynd­is­legan félaga, einn okkar allra bestu, mun lifa meðal okkar í Vals­sam­fé­lag­inu.“

„Þetta eru skelfi­legar fréttir. Stefán var ein­stak­lega góður og vand­aður maður. Hans verður sárt saknað en minn­ingin um góðan dreng lifir. Inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur til fjöl­skyldu hans og vina.“

Jóni Baldvin greitt þungt högg: Varð fyrir miklu áfalli í gær

Jón Baldvin Hanni­bals­son

, fyrr­ver­andi ráð­herra, sem lagt hefur upp í hvern leið­ang­ur­inn á fætur öðrum til að reyna að verj­ast konum sem hafa ásakað hann um alvar­legt, kyn­ferð­is­legt ofbeldi, varð fyrir áfalli er Lands­réttur úrskurð­aði að Hér­aðs­dómur Reykja­víkur skyldi taka fyrir að nýju frá­vís­un­ar­kröfu Jóns Baldvins.

Jón Baldvin Hanni­bals­son

Jón Baldvin hafði von­ast til spænsk lög­gjöf bjarg­aði honum frá ákæru en Carmen Jóhanns­dóttir hafði ásakað Jón Baldvin um kyn­ferð­is­brot og sagði hann hafa káfað á henni í vitna við­ur­vist á heim­ili Jóns og Bryn­dísar á Spáni. Carmen er æsku­vin­kona Aldísar, dóttur Jóns.

Hér­aðs­dómur féllst fyrst á kröfu Jóns Baldvins um að vísa kærunni frá dómi á þeim for­sendum að dóm­stólar hér­lendis hefðu ekki lög­sögu í mál­inu.

Saga Guð­mundar Felix Grét­ars­sonar er mörgum Íslend­ingum kunn. Hann lenti í hræði­legu slysi og missti báða hand­leggi fyrir um tutt­ugu og tveimur árum. Síðustu ár hefur hann beðið eftir að gang­ast undir hand­leggja­á­græðslu eftir að hafa verið 5 ár á biðlista.

Mannlíf færði frá­bærar fréttir af Guðmundi Felix á árinu og hefur fylgst grannt með hetju­legri end­ur­hæf­ingu þessa gleði­gjafa.

Frábærar fréttir af Guðmundi Felix – Laus af gjör­gæslu og horfur góðar

Kara Kristel sýnir brjóstið og ávarpar þjóð­ina: „Kemur okkur öllum við“

„Þetta er eitt­hvað sem kemur okkur öllum við,“ sagði áhrifa­vald­ur­inn

Kara Kristel

í sam­tali við Mannlíf. Hún er ein af þeim sem voru rang­lega greindar í leg­háls­skimun Krabba­meins­fé­lags Íslands.

Kara Kristel áhrifa­valdur.

Á tveimur árum fór Kara tvisvar. Hana grun­aði að eitt­hvað amaði að, en það var ekki fyrr en ári síðar að sím­talið kom. Þá hafði sýni Köru verið end­ur­skoðað eftir að ung kona lést úr leg­hálskrabba­meini. Kara opn­aði sig um reynslu sína og sagði:

„Seinasta sumar lést ung kona vegna þeirra mis­taka og í kjöl­farið hófst rann­sókn­ar­ferli. Ég var kölluð inn strax og í for­gangs­röð vegna aðstæðna. Nið­ur­stöður komu hratt og voru ekki beint fal­legar og lof­uðu alls ekki góðu.

Þetta eru ekki skemmti­leg­ustu frétt­ir heims­ins. Ég var ekki leið eða reið, þetta kom mér eig­in­lega ekki á óvart vegna þess að ég þekki lík­amann minn mjög vel og ég fann að það var eitt­hvað að.“

Febrúar

Aftaka var framin við Rauða­gerði um mið­nætti á laug­ar­dag. Ungur maður á fer­tugs­aldri var tek­inn af lífi á hrotta­legan og kald­rifj­aðan hátt. Hinn myrti var Íslend­ingur, Armando Beqiri, sem á ættir að rekja til Albaníu. Hann sett­ist hér að annan jóla­dag árið 2014, lærði tungu­málið, kynnt­ist konu og gift­ist, eign­að­ist barn og átti von á öðru kríli í fangið örfáum mán­uðum síðar, eig­in­maður, faðir og fyr­ir­tækja­eig­andi í Gerðunum. Unnusta hans er nú gengin 24 vikur.

Blessuð sé minn­ing Armandos.

Armando virt­ist hafa komið ár sinni vel fyrir borð og hann kunni íslensku. Stoltur kaus hann svo í fyrsta sinn á lífs­leið­inni er hann stakk kjör­seðli í kass­ann í þing­kosn­ingum hér á landi. Armando var líka harður stuðn­ings­maður íslenska lands­liðs­ins.

Skömmu fyrir mið­nætti lagði Armando bíl sínum inn í bíl­skúr og á sömu stundu og hann var að ganga að úti­dyr­unum er talið að bíl hafi verið ekið fram hjá hús­inu og þaðan hafi hverju byssu­skot­inu á fætur öðru verið hleypt af. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hæfðu kúl­urnar Armando í bak, háls og höfuð en aðrar misstu marks. Á vett­vangi fannst Armando liggj­andi í blóði sínu og var reynd end­ur­lífgun og hann fluttur á spít­ala.

Armando komst aldrei til með­vit­undar og var hann úrskurð­aður lát­inn á Land­spít­al­anum stuttu eftir komu þangað.

Nafn manns­ins sem lést í Rauða­gerði: Var íslenskur, elsk­aður, átti konu og barn og von á öðru

Mars

Guðni Bergsson, þáver­andi for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, KSÍ, ræddi við

Eið Smára Guðjohn­sen

, aðstoð­ar­þjálf­ara karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu, vegna sögu­sagna um drykkju í aðdrag­anda sjón­varps­út­send­ingu. Umtalað er að Eiður hafi verið undir áhrifum í útsend­ingu sem knatt­spyrnu­sér­fræð­ingur í þætt­inum Vaktin í Sjón­varpi Símans.

Eiður Smári Guðjohn­sen

Talsverð umræða var um atvikið á sam­fé­lags­miðlum þar sem margir furð­uðu sig á því að ekk­ert hefði verið fjallað um það í fjöl­miðlum. Þar til Mannlíf sagði frá.

Eins og frægt er, var Eiður Smári á end­anum sendur í leyfi vegna áfeng­is­vanda­mála sinna og að lokum rek­inn af KSÍ úr starfi sínu sem aðstoð­ar­þjálf­ari.

17. mars – Mannlíf greindi frá áfeng­is­vanda Eiðs Smára Guðjohn­sen, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­lands­liðs­þjálf­ara. Þá mætti hann slomp­aður í sjón­varps­út­send­ingu.

Eiður sagður vera undir áhrifum í beinni útsend­ingu – KSÍ og Síminn á flótta – Sjáðu atvikið

Maí

1. maí – Mannlíf opnar nýja metoo-bylgju með umfjöllun um eina af for­ystu­konum Öfga-hóps­ins sem hafði fengið nóg af þöggun sam­fé­lags­ins gagn­vart kyn­ferð­is­brotum þekktra manna. Umfjöll­unin opn­aði á meint brot Sölva Tryggva­sonar fjöl­miðla­manns.

Ólöf segir þjóð­þekktan mann hafa lamið vænd­is­konu: „Ég þurfti að slá stjörnu­rykið úr aug­unum“

3. maí – Eftir umfjöllun Mannlífs steig Sölvi fram og lýsti yfir sak­leysi sínu.

Sölvi Tryggva­son sver af sér ofbeld­is­verk: „Ég óska eng­um að lenda í þeirri hakka­vél“

5. maí – Mannlíf sagði frá því að tvær konur hefðu lagt fram kæru til lög­reglu vegna meints ofbeldis Sölva. Lýsingar kvenn­anna komu hér fram:

Yfir­lýs­ing kvenn­anna í heild sinni: „Sölvi rauk þá upp og hrinti mér í gólfið“

Júní

12. júní -Mannlíf greindi frá því þegar Eiður Smári náð­ist á mynd­band í mið­borg­inni þar sem hann hneyksl­aði alþjóð með athæfi sínu.

Myndband af Eiði Smára í mið­bænum – Hneyksl­aði veg­far­endur með athæfi sínu

13. júní – Auðunn Lúth­ers­son tón­list­ar­maður, betur þekktur sem Auður, sætti úti­lokun í sam­fé­lag­inu eftir alvar­legar ásak­anir á sam­fé­lags­miðlum um kyn­ferð­is­brot.

https://gamla.mannlif.is/frettir/audur-bannfaerdur-trubador-med-thrjar-kaerur-fyrir-kynferdisbrot-leikur-lausum-hala/

16. júní – Mannlíf greindi frá því að Eiður Smári hefði verið skikk­aður í leyfi frá starfi sínu sem lands­liðs­þjálf­ari. Ástæðan var óregla þjálf­ar­ans.

Eiður Smári áminntur og fer í tíma­bundið leyfi – „Ábyrgðin liggur hjá mér“

Júlí

Fyrst allra fjöl­miðla heims greindi Mannlíf frá ásök­unum á hendur fót­bolta­kapp­anum og lands­liðs­mann­inum Gylfa Þór Sig­urðs­syni. Sögur flökk­uðu um sam­fé­lags­miðla og því haldið fram að hann hefði verið að senda ungri stúlku eða stúlkum ósið­sam­leg skila­boð.

Síðar kom í ljós að Gylfi Þór var hand­tek­inn af bresku lög­regl­unni grun­aður um brot gegn ólög­ráða stúlku. Rannsókn máls­ins stendur enn yfir og hefur lög­reglan gefið sér frest fram í jan­úar til að klára hana.

Það kom eins og blaut tuska framan í íslensku þjóð­ina að Gylfi hefði verið hand­tek­inn. Þetta eru ein­hverjar óvænt­ustu og verstu fréttir sem lands­menn hafa fengið í langan tíma.

Gull­dreng­ur­inn Gylfi er um þessar mundir fall­inn af stalli sem kon­ungur íslenskra knatt­spyrnu­manna, en máli hans er þó alls ekki lokið. Hann liggur undir grun um hræði­legt athæfi en hefur ekki verið dæmdur. Flestir vona að Gylfi Sig­urðs­son sé sak­laus af því sem á hann er borið.

2. júlí – Mannlíf greinir frá bylgju á sam­fé­lags­miðlum eftir að ljóst var að ráða átti Ingó Veðurguð sem aðal­núm­erið á Þjóð­há­tíð. Tuttugu konur stigu fram og lýstu kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu hans.

„Ég er bara hissa að Þjóð­há­tíð hafi ekki grát­beðið Auði að vera með svona for the cherry on top“

Andrea: „Ég sný mér við og er þá ekki Reð­urguð­inn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt“

Mikið hefur verið bent á að þolendur komi ekki fram undir nafni í tengslum við hina svo köll­uðu metoo-bylt­ingu og virð­ist fólk alls ekki skilja af hverju þolendur eða meintir þolendur kjósi nafn­leynd. Á þessu er engin breyt­ing ef horft er til fjölda mála sem upp hafa komið í tengslum við þekktan tón­list­ar­mann, Ingó Veðurguð.

Andrea Aldan Hauks­dóttir

kom fram undir nafni og hafði greini­lega fengið nóg af þeirri umræðu að meint fórn­ar­lömb Ingós komi ekki fram undir nafni. Hún sagði frá sínum kynnum af Ingó þegar hún var 19 ára gömul. Við skulum gefa Andreu orðið:

Andrea Aldan Hauks­dóttir.

„… kom mér á ó­vart er hversu ljóta hluti er hægt að setja fram um fólk án þess að borin sé á­byrgð á því. Það kemur mér líka á óvart hvað er hægt að ganga langt og taka ekki ábyrgð á því hvernig þú hefur hagað þér. Ef það er erfitt að þetta sé nafn­laust þá skal ég koma fram undir nafni.Ég var 19 ára og var að vinna á Oliver þar sem hann tróð upp viku­lega. Það var bún­inga­staffa­p­artí og ég var í skóla­stelpu­bún­ing. Ég stend við bar­inn og finn að það er ein­hver að taka upp pilsið mitt. Svo aftur. Ég sný mér við og er þá ekki Reð­urguð­inn mættur að bjóða sér upp undir pilsið mitt.“

5. júlí – Mannlíf tekur einka­við­tal við Ingó Veðurguð sem seg­ist stað­ráð­inn í að koma í veg fyrir að mann­orð hans verði eyði­lagt.

Ingó Veðurguð í við­tali við Mannlíf: „Ég ætla ekki að láta eyði­leggja mann­orð mitt“

19. júlí – Mannlíf segir fyrst allra fjöl­miðla frá sögu­sögnum á sam­fé­lags­miðlum þess efnis að Gylfi Þór hafi verið hand­tek­inn vegna grun­semda um kyn­ferð­is­brot gegn ólög­ráða ein­stak­lingi.

Slúðrað um Gylfa á sam­fé­lags­miðlum

19. júlí – Mannlíf greinir frá brott­vikn­ingu Gylfa úr Everton þar sem enska úrvals­deild­ar­fé­lagið sendi frá sér til­kynn­ingu.

Lið Gylfa sendir stað­fest­ingu – Everton stað­festir brott­rekstur leik­manns félags­ins

Gulldrengur fallinn af stalli

Gylfi hefur verið einn af fremstu fót­bolta­mönnum Íslands um ára­bil og sann­kölluð þjóð­hetja. Mannlíf fór yfir glæsi­legan feril Gylfa nú í sumar. Það kom eins og blaut tuska framan í íslensku þjóð­ina að Gylfi hefði verið hand­tek­inn grun­aður um áður­nefnt brot. Þetta eru ein­hverjar óvænt­ustu fréttir sem lands­menn hafa fengið í langan tíma.

Máli hans er þó alls ekki lokið. Hann liggur undir grun, en hefur ekki verið dæmdur. Flestir vona að mál hans sé reist á mis­skiln­ingi og hann snúi aftur.

Gylfi hefur ekki verið sak­felldur fyrir eitt né neitt og hið sama má segja um aðra lands­liðs­menn í fót­bolta.

Gylfi seg­ist vera sak­laus og á hann ský­lausan rétt á því að verða ekki dæmdur fyrir fram af einum né neinum. Hið sama má segja um aðra leik­menn íslenska lands­liðs­ins.

20. júlí – Mannlíf greinir frá því að Gylfi sé umvaf­inn fjöl­skyldu og lög­mönnum á Englandi. Á sama tíma greinir Mannlíf frá því að Alex­andra Helga, eig­in­kona Gylfa, sé komin til Íslands.

Fjöl­skylda og lög­menn umvefja Gylfa

21. júlí – Mannlíf greinir frá því að Gylfa Þór sé gætt allan sól­ar­hring­inn vegna máls­ins. Þá greindu heim­ild­ar­menn frá því að Alex­andra væri flutt út af heim­ili þeirra á Englandi.

Alex­andra flutt út – Gylfi Þór vaktaður allan sól­ar­hring­inn

Frægt var þegar Alex­andra og Gylfi gengu í hjóna­band á Ítalíu.

Mannlíf greindi frá því að eig­in­kona Gylfa – Alex­andra Helga Ívars­dóttir – væri komin til lands­ins. Á sama tíma var nán­asta fjöl­skylda Gylfa komin til Englands, og Gylfi sagður vera kom­inn með hóp lög­fræð­inga til að verja sig.

Í sam­tali við Mannlíf bar tengda­faðir Gylfa til baka sögu­sagnir um að þau stæðu í hjóna­skiln­aði vegna máls­ins.

22. júlí – Mannlíf greinir fyrst allra frá frá­sögn meints þol­anda lands­liðs­mann­anna Arons Einars og Eggerts Gunnþórs. Þá treysti fórn­ar­lambið sér ekki til að nafn­greina þá né koma fram undir nafni.

Segir tvo þjóð­þekkta Íslend­inga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

Ágúst

12. ágúst – Mannlíf slær á sögu­sagnir þess efnis að Gylfi Þór og Alex­andra væru að skilja en sögur um slíkt voru á sveimi. Tengda­faðir Gylfa úti­lok­aði hjóna­skiln­að­inn í sam­tali við Mannlíf.

Tengda­faðir Gylfa Þórs knatt­spyrnu­kappa: „Þau eru ekki að skilja“

25. ágúst – Mannlíf greinir frá því að allt logi á sam­fé­lags­miðlum eftir drottn­ing­ar­við­tal Akureyri.net við Aron Einar lands­liðs­fyr­ir­liða.

Akureyri.net for­dæmt fyrir við­tal við Aron Einar lands­liðs­fyr­ir­liða – Facebook-síðan logar

Mannlíf greindi frá því að starfs­maður á leik­skól­anum Sælukoti í Reykja­vík væri sak­aður um ofbeldi í garð barns við skól­ann. María Ösp Ómars­dóttir, leik­skóla­stjóri Sælukots, sagði að umrætt atvik hefði átt sér stað áður en hún tók við skóla­stjóra­stöð­unni.

Leik­skól­inn Sælukot er rek­inn af Ananda Marga-sam­tök­unum.

Í tölvu­pósti Maríu til for­eldra barna í leik­skól­anum kom fram að við­kom­andi starfs­maður hefði verið sendur í leyfi á meðan rann­sókn stæði yfir og skóla­stjórn­endur ættu í sam­skiptum við Barna­vernd og Reykja­vík­ur­borg vegna máls­ins:

„Það sem skiptir mestu máli er að börnin ykkar séu örugg og ham­ingju­söm hér í Sælukoti og við munum gera allt sem við getum til að leysa málið eins hratt og hægt er.“

Í fjölda frétta greindi Mannlíf frá miklum ólestri í rekstri Sælukots.

Starfs­maður leik­skóla sak­aður um ofbeldi: „Mestu máli skiptir að börnin séu örugg“

26. ágúst – Mannlíf sagði fyrst allra frá meintri ofbeld­is­hegðun Ragnars Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi lands­liðs­manns í fót­bolta. Kvartað var til KSÍ sem aðhafð­ist ekk­ert.

Lands­liðið í stormi sam­fé­lags­miðla – Ásakanir um kyn­ferð­is­brot og heim­il­is­of­beldi

28. ágúst – Mannlíf greinir frá því að lands­liðs­mað­ur­inn Kolbeinn Sig­þórs­son hefði brotið af sér kyn­ferð­is­lega og samið um bætur eftir iðrun.

Kolbeinn Sig­þórs­son iðr­að­ist og greiddi bætur eftir kyn­ferð­is­of­beldi – Guðni þagg­aði málið niður

Mannlíf greindi frá ástríðu­glæp á Egils­stöðum. Byssu­maður æddi inn á heim­ili fyrr­ver­andi eig­in­manns kær­ustu sinnar, vopn­aður kröft­ugum loft­riffli. Börn voru á heim­il­inu.

Lög­reglan á Aust­ur­landi skaut mann­inn við íbúð­ar­hús á Egils­stöðum. Maðurinn var fluttur með sjúkra­flugi til Reykja­víkur.

Maðurinn er rúm­lega fer­tugur sjó­maður og ekki þekktur fyrir ofbeldi. Hafði hann verið í ást­ar­sam­bandi við kær­ustu sína í rúmt ár en heim­ildir Mannlífs herma að lög­reglan hefði verið kölluð á heim­ili þeirra síð­ast­liðið sumar. Maðurinn hefur í gegnum tíð­ina verið mik­ill áhuga­maður um byssur og átt fjöl­mörg skot­vopn.

Ástríðu­glæpur á Egils­stöðum – Börn voru á staðnum þegar sjó­maður var skot­inn af lög­reglu

Sept­em­ber

1. sept­em­ber – Kolbeinn steig loks­ins fram. Mannlíf birti yfir­lýs­ingu fót­bolta­manns­ins þar sem hann iðr­að­ist opin­ber­lega hegð­unar sinnar.

Kolbeinn Sig­þórs­son: „Ég harma mína hegðun“

Mannlíf opn­aði á mál skip­herra hjá Land­helg­is­gæsl­unni sem grun­aður er um kyn­ferð­is­lega áreitni gegn und­ir­mönnum sínum.

Mannlíf hefur eftir áreið­an­legum heim­ildum úr nokkrum áttum, að innan sjó­deildar Land­helg­is­gæsl­unnar hafi við­geng­ist ein­elti og kyn­ferð­is­leg áreitni gagn­vart kven­kyns starfs­mönnum. Margar hafi hrökkl­ast frá Gæslunni í gegnum tíð­ina eða verið sagt upp.

Einn við­mæl­andi Mannlífs lýsir ástand­inu þannig að konur séu þar ítrekað áreittar kyn­ferð­is­lega og teknar af þeim laumu­myndir á far­síma, við lík­ams­rækt um borð. Þeim myndum sé svo deilt á milli karl­kyns skip­verja. Annar við­mæl­andi vitnar um að kvæntir yfir­menn séu að fá lægra settar konur um borð upp í brú til sín, til að daðra og „klappa þeim“ og þær þori ekki öðru en láta það við­gang­ast, af hræðslu við að deila við skip­herr­ann. Einnig tíðk­ist áfeng­is­neysla skip­verja um borð og að yfir­menn líti fram hjá því.

Segja konur áreittar og nið­ur­lægðar á skipum Land­helg­is­gæsl­unnar

16. sept­em­ber – Mannlíf fór yfir frá­sögn fórn­ar­lambs Kolbeins sem lýsti hegðun lands­liðs­manns­ins:

„Ég barði á hurð­ina og ég man að það fyrsta sem ég sagði“: „Kolbeinn Sig­þórs­son er að drepa mig“

30. sept­em­ber – Mannlíf birtir yfir­lýs­ingu Arons Einars þar sem hann lýsir full­kom­lega yfir sak­leysi sínu af meintum kyn­ferð­is­brotum.

Aron seg­ist fórn­ar­lamb en ekki ger­andi: „Settur sak­laus til hliðar í nýrri úti­lok­un­ar­menn­ingu KSÍ“

Október

1. októ­ber – Mannlíf varpar ljósi á hvað Aroni Einari er gefið að sök. Hræði­legar lýs­ingar á kvöld­inu í Kaup­manna­höfn.

Þetta er það sem Aron fyr­ir­liði er sak­aður um – Lestu hræði­legar lýs­ingar meints þol­anda

2. októ­ber – Mannlíf greindi frá því að Gylfi hefði verið leystur úr varð­haldi lög­regl­unnar en hann greiddi trygg­ingu til að losna.

Laus gegn trygg­ingu til 16. októ­ber, hvað svo?

Mannlíf greindi frá máli Skúla Gunn­laugs­sonar, læknis á Land­spít­al­anum, en hann er nú rann­sak­aður af lög­reglu fyrir alvar­leg brot í starfi. Einnig greindi Mannlíf frá öðrum lækni sem grun­aður er um mann­dráp á geð­deild Land­spít­al­ans.

Mannlíf sendi nokkrar spurn­ingar er varða ráðn­ingu Skúla Gunn­laugs­sonar á Land­spít­al­ann en lög­reglu­rann­sókn á meintum, alvar­legum brotum hans í starfi sem yfir­læknir á sjúkra­sviði Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­lands, stendur nú yfir hjá lög­regl­unni. Alls hafa sex fjöl­skyldur kært Skúla en alvar­leg­ustu brotin snúa að ábyrgð hans á dauða sjúk­linga sinna. Hefur að minnsta kosti ein fjöl­skyldan kært hann fyrir mann­dráp af ásetn­ingi.

Land­spít­al­inn svar­aði engu um mál Skúla.

Land­spít­al­inn svarar engu um starfs­menn sem sæta lög­reglu­rann­sókn

19. októ­ber – Mannlíf greinir frá því að breska lög­reglan hefði fram­lengt rann­sókn sína á meintum kyn­ferð­is­brotum Gylfa til 16. jan­úar næst­kom­andi.

Lög­reglan rann­sakar Gylfa áfram til 16. jan­úar

22. októ­ber – Mannlíf greindi frá því að Eggert Gunnþór Jónsson, leik­maður FH, hefði verið í slag­togi með Aroni Einari, hið umdeilda kvöld í Kaup­manna­höfn 2010.

Eggert Gunnþór Jónsson sak­aður um nauðgun í sama máli og Aron Einar Gunn­ars­son

Nóvember

24. nóv­em­ber – Mannlíf greinir frá brott­rekstri Eiðs Smára úr starfi aðstoð­ar­lands­liðs­þjálf­ara.

Eiður Smári hættur með lands­liðið: „Síðasta ár hefur verið mjög krefj­andi“

26. nóv­em­ber – Mannlíf kann­aði hug þjóð­ar­innar til brott­rekstrar Eiðs Smára. Í ljós kom að þjóðin er veru­lega ósátt við með­ferð­ina á þjóð­hetj­unni.

Könnun Mannlífs – Þjóðin telur illa brotið á Eiði Smára

Desember

1. des­em­ber – Mannlíf varpar ljósi á atburða­rás­ina sem leiddi til brott­vikn­ingar Eiðs Smára hjá KSÍ.

Svona var atburð­ar­rásin þegar Eiður Smári var rek­inn

8. des­em­ber – Mannlíf segir frá yfir­hylm­ingu KSÍ í máli Arons og Eggerts. Reynt var að þagga málið niður því annar þeirra átti kær­ustu sem mátti ekki frétta af atvik­inu.

KSÍ lagði áherslu á að leyna atviki Arons og Eggerts „því annar leik­mað­ur­inn átti kær­ustu“

8. des­em­ber -Mannlíf birtir fréttir af því að KSÍ hafi vitað af meintri ofbeld­is­hegðun Ragnars Sig­urðs­sonar lands­liðs­manns. Ekkert var aðhafst í mál­inu.

Hótaði að brjóta fætur Ragnars – Lands­liðs­mað­ur­inn neitar við­tali um meinta ofbeld­is­hegðun

8. des­em­ber – Vanda Sig­ur­geirs­dóttir ræðir loks­ins brott­rekstur Eiðs Smára. Hún var buguð eftir brott­rekst­ur­inn og svaf ekk­ert um nótt­ina.

Vanda grét vegna Eiðs Smára: „Ég gat eig­in­lega ekk­ert sofið þessa nótt og leið ömur­lega“

8. des­em­ber – Mannlíf segir fyrst frá slá­andi afsök­un­ar­bréfi vin­konu Arons og Eggerts þar sem hún afsakar hegðun sína í garð meints fórn­ar­lambs knatt­spyrnu­mann­anna. Þeir vörp­uðu sök hvor á annan og báðu vin­kon­una um að ljúga fyrir sig.

Sjáðu slá­andi afsök­un­ar­bréf vin­konu Arons og Eggerts: „Ég var neydd til að ljúga fyrir þá“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fréttaannáll

Mest lesnu fréttir ársins – Harmleikir, húmor og hnupl
InnlentFréttaannáll

Mest lesnu fréttir árs­ins – Harm­leikir, húmor og hnupl

Árið 2024 var ár sorgar, harm­leika, veik­inda en líka popp­stjörn­unnar Bríetar ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Við höfum nú tekið saman tíu mest lesnu fréttir árs­ins en nokkrar fréttir stóðu upp úr en um leið vill rit­stjórn Mannlífs þakka kær­lega fyrir stuðn­ing­inn á árinu og óskum við þjóð­inni gæfu­ríks kom­andi árs, fullu af ást og birtu. 10. Spreng­ing heima hjá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins