„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landspítalinn svarar engu um starfsmenn sem sæta lögreglurannsókn

Landspítalinn svarar engu um starfsmenn sem sæta lögreglurannsókn

Ólafur Bald­urs­son, fram­kvæmda­stjóri lækn­inga við Land­spít­ala Íslands neitar að svara spurn­ingum Mannlífs um mál er snúa að ráðn­ingu Skúla Gunn­laugs­sonar á spít­al­ann en hann er nú rann­sak­aður af lög­reglu fyrir alvar­leg brot í starfi. Einnig var spurt um annan starfs­mann sem grun­aður er um mann­dráp á geð­deilt Land­spít­al­ans.

Mannlíf sendi nokkrar spurn­ingar er varða ráðn­ingu Skúla Gunn­laugs­sonar á Land­spít­al­ann en lög­reglu­rann­sókn á meintum alvar­legum brotum hans í starfi sem yfir­læknir á sjúkra­sviði Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­lands, stendur nú yfir hjá lög­regl­unni. Alls hafa sex fjöl­skyldur kært Skúla en alvar­leg­ustu brotin snúa um ábyrgð hans á dauða sjúk­linga sinna. Hefur að minnsta kosti ein fjöl­skyldan kært hann fyrir mann­dráp af ásetn­ingi.

Hér eru spurn­ing­arnar:

1.  Hvernig sam­ræm­ist það sjón­ar­miðum um öryggi sjúk­linga og heiður lækna­stétt­ar­innar að læknir sé við störf sem grun­aður er um að vera valdur að dauða sjúk­linga sinna?
2. Nú er lækn­ir­inn víst við störf á Land­spít­al­anum „undir eft­ir­liti“, hvernig er því eft­ir­liti háttað?
3. Þessari spurn­ingu er kannski helst beint að hjúkr­un­ar­fræði­deild­inni, hvernig líður sjúk­lingum Skúla að vita að lækn­ir­inn sem með­höndlar þá sé grun­aður um svo alvar­leg brot í starfi?
4. Fyrir nokkru kafn­aði sjúk­lingur á geð­deild Land­spít­al­ans. Er starfs­mað­ur­inn sem grun­aður er um að hafa valdið dauða sjúk­lings­ins, enn við störf hjá Land­spít­al­anum, undir eft­ir­liti eða án?

Í svari sínu segir Ólafur Bald­urs­son að upp­lýs­inga­lög kveði á um til­tekna upp­lýs­inga­skyldu stofn­ana um starfs­menn og störf þeirra. „Land­spít­ali mun ekki tjá sig um verk­efni og störf ein­stakra starfs­manna umfram það.“ Ólafur bætir við, „að öðru leyti er rétt að halda því til haga að spít­al­inn ber ábyrgð á starf­semi sinni, þar með talið ein­stökum starfs­mönnum sam­kvæmt lögum.“

Honum var sem sagt í lófa lagt að svara en kaus að gera það ekki. Mannlíf hefur nú sent almenn­ari spurn­ingar til Ólafs og Land­læknis og bíður spennt eftir svörum.

Mannlíf mun á næst­unni fjalla frekar um málið og mun þá meðal ann­ars birta upp­lýs­ingar úr gögnum sem ekki hafa komið fyrir almenn­ings­sjónir áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins