„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vanda grét vegna Eiðs Smára: „Ég gat eiginlega ekkert sofið þessa nótt og leið ömurlega“

Vanda grét vegna Eiðs Smára: „Ég gat eiginlega ekkert sofið þessa nótt og leið ömurlega“
Eiður Smári ætlar að leita sér hjálpar

Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður KSÍ, var gjör­sam­lega buguð eftir að hafa vikið Eiði Smára Gudjohn­sen, fyrrum aðstoð­ar­þjálf­ara karla­lands­liðs­ins í fót­bolta, úr starfi. Hún þurfti tíma til að ná sér og bað aðra um að fara í fjömiðla­við­töl fyrir sína hönd.

Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður KSÍ.

Þetta kom fram í máli Vöndu í við­tali í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun. Þar tjáði sig hún um brott­rekstur Eiðs Smára:

„Ég ætla vera hrein­skil­inn, ég var eig­in­lega buguð eftir þetta, fannst þetta hrika­lega leið­in­legt og var sorg­mædd í hjart­anu að við hefðum þurft að kom­ast að þess­ari sam­eig­in­legu nið­ur­stöðu. Ég hefði bara farið að gráta, ég var bara þar. Ég bað Ómar Smárason um að fara í við­tölin fyrir mig. Ég þurfti bara aðeins að ná mér. Ég gat eig­in­lega ekk­ert sofið þessa nótt og leið ömur­lega,“ sagði Vanda.

Sjá einnig: 

Svona var atburð­ar­rásin þegar Eiður Smári var rek­inn

Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, hringdi í alla með­limi stjórnar KSÍ og ræddi við þá um mál­efni Eiðs Smára Guðjohn­sen, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­þjálf­ara karla­lands­liðs­ins, í aðdrag­anda þess að stjórnin tók þá ákvörðun að Eiður léti af störfum.

Þetta kemur fram í fund­ar­gerð KSÍ sem gerð hefur verið opin­ber en það var eftir þann fund, 23. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, sem Eiður Smári var rek­inn. „Áfram Ísland,“ sagði Eiður í yfir­lýs­ingu inni á vef KSÍ vegna starfs­lokanna.

Starfs­lok Eiðs Smára og umræddan gleð­skap lands­liðs­ins hafa mikið verið til umræðu und­an­farið. Eiður var rek­inn fyrir viku síðan en í til­kynn­ingu frá KSÍ var sagt að upp­sögnin væri gerð með sam­komu­lagi stjórnar og Eiðs.

Sjá einnig: 

Eiður sagður vera undir áhrifum í beinni útsend­ingu – KSÍ og Síminn á flótta – Sjáðu atvikið

Líkt og Mannlíf greindi frá teng­ist brott­rekst­ur­inn hins vegar áfeng­is­neyslu í KSÍ-partý eftir leik lands­liðs­ins gegn N-Makedóníu um miðjan mán­uð­inn. Vanda for­maður var í partý­inu og sam­kvæmt funda­gerð­inni hringdi hún í alla stjórn­ar­menn eftir heim­kom­una. Eiður Smári var svo rek­inn eftir fund stjórnar.Eiður hefur verið í þjálf­arateymi A-lands­liðs karla frá des­em­ber 2020, en hann lék á sínum tíma 88 leiki fyrir liðið og skor­aði í þeim 26 mörk. Í sumar var Eiður sendur í tíma­bundið leyfi frá störfum, eftir að Mannlíf greindi frá mynd­bandi sem var í dreif­ingu af þjálf­ar­anum á sam­fé­lags­miðlum.

Sjá einnig:

Myndband af Eiði Smára í mið­bænum – Hneyksl­aði veg­far­endur með athæfi sínu

Myndband af Eiði í dap­ur­legu ástandi að létta á sér í mið­borg Reykja­víkur fór sem eldur um sinu á sam­fé­lags­miðlum. Eiður sást þar með bux­urnar á hæl­unum, að létta á sér á almanna­færi. Hann virð­ist vera í því ástandi að átta sig illa á umhverfi sínu. Fólki sem varð vitni að atburð­inum var brugðið en Eiður er í senn þjóð­hetja og starf­aði sem þjálf­ari lands­liðs karla og álits­gjafi Símans. Þá var einnig umtalað að Eiður hafi verið undir áhrifum í útsend­ingu sem knatt­spyrnu­sér­fræð­ingur í þætt­inum Vaktin í Sjón­varpi Símans. líkt og Mannlíf greindi frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins