„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lið Gylfa sendir staðfestingu – Everton staðfestir brottrekstur leikmanns félagsins

Lið Gylfa sendir staðfestingu – Everton staðfestir brottrekstur leikmanns félagsins

Everton stað­festir að leik­maður liðs­ins hafi verið hand­tek­inn, en hann er ekki nafn­greindur. Fram kemur hjá The Sun að leik­mað­ur­inn liggji undir grun að hafa mis­notað barn kyn­ferð­is­lega og að hann hafi verið hand­tek­inn síð­ast­liðin föstu­dag. Þá kemur fram að leik­mann­inum hafi verið sleppt gegn trygg­ingu en meint brot eru talin mjög alvar­leg.

Enska úrvals­deild­ar­fé­lagið Everton hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að félagið hafi rekið leik­mann liðs­ins, sem er byrj­un­ar­liðs­maður, eftir að hann var hand­tek­inn, grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn barni.

Félagið mun ekki tjá sig meira um málið að svo stöddu.

Sjá einnig: Slúðrað um Gylfa á sam­fé­lags­miðlum.

Líkt og Mannlíf greindi fyrst frá hefur und­an­farna daga verið slúðrað um að Gylfi Þór Sig­urðs­son lands­liðs­maður sé leik­mað­ur­inn sem um ræðir.

Enskir fjöl­miðlar greina frá því að leik­maður ensku úr­vals­deild­ar­innar hafi verið hand­tek­inn grun­aður um kyn­ferðis­brot gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Fjöl­miðlar ytra hafa ekki nafn­greint leik­mann­inn. en segja hann 31 árs gamlan og giftan. Leik­mað­ur­inn var hand­tek­inn síð­asta föstu­dag af lög­regl­unni í Manchester áður en honum var síðan sleppt gegn trygg­ingu.

Aðeins tveir leik­menn Everton eru 31 árs, þeir Gylfi Sig­urðs­son og Eng­lend­ing­ur­inn Fabian Delph.

Daily Mail hefur það þá eftir tals­manni liðs hans, sem fjöl­mið­ill segir heldur ekki hvert er, að leik­mað­ur­inn hafi verið leystur frá störfum á meðan lög­regla rann­sakar málið. Hann er í byrj­unar­liði liðs­ins og The Mirror segir hann einnig reyndan lands­liðs­mann í sínu heima­landi. The Sun fjallar einnig um málið en nafn­greinir leik­mann­inn ekki. Mið­ill­inn hefur það þó eftir heim­ildar­manni sínum að lög­regla hafi leitað á heim­ili manns­ins og gert nokkra hluti þar upp­tæka.

Mið­ill­inn Globalnews247 gengur síðan skref­inu lengra og nafn­greinir Gylfa Þór í grein um málið. Sami mið­ill birtir jafn­framt grein þar sem full­yrt er að Alex­andra Ívars­dóttir, eig­in­kona Gylfa Þórs, neiti stað­fast­lega að fót­bolta­mað­ur­inn íslenski hafi verið hand­tek­inn.

Síðustu daga hefur borið á ásök­unum á hendur fót­bolta­kapp­anum og lands­liðs­mann­inum Gylfa Þór á öllum helstu sam­fé­lags­miðlum, þar er því haldið fram að hann hafi verið að senda ungri stúlku eða stúlkum ósið­sam­leg skila­boð. Tekið skal fram að um óstað­festan orðróm að ræða og eru þetta meintar ásak­anir, fremur en nokkuð annað, að minnsta kosti eins og málin standa núna.

Hvort fréttir ensku miðl­anna eða slúð­ur­sögur síð­ustu daga hafi nokkuð að gera með Gylfa Þór er algjör­lega óstað­fest en síð­ustu daga hefur það hvergi feng­ist stað­fest né hrakið. Mannlíf mun áfram fjalla um málið ef stað­festar upp­lýs­ingar ber­ast eða útskýr­ingar á þessu upp­þoti á sam­fé­lags­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins