„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir tvo þjóðþekkta Íslendinga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

Segir tvo þjóðþekkta Íslendinga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

„Ég ligg and­vaka, get ekki hætt að hugsa um alla sem hafa þurft að upp­lifa það sama og ég. Upplifa skömm, reiði, sorg, upp­gjöf, van­trú á sínar eigin til­finn­ingar og upp­lif­anir“.

Á þessum orðum hefst frá­sögn konu sem stígið hefur fram í opinni færslu sem fórn­ar­lamb kyn­ferð­is­legrar mis­notk­unar af hendi tveggja þekktra íslenskra manna og er annar hinna meintu ofbeld­is­manna þjóð­þekktur að hennar sögn. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru þeir báðir lands­liðs­menn í knatt­spyrnu. Hún treystir sér hins vegar hvorki til að nafn­greina þá né koma fram undir nafni.

Konan segir að atvikið hafi átt sér stað árið 2010 af tveimur íslenskum mönnum en atvikið átti sér stað erlendis. Hún seg­ist hafa verið að skemmta sér og hefur þá grun­aða um að hafa sett eitt­hvað út í glasið sitt. „Ég ældi yfir annan þeirra í leigu­bílnum á leið á hót­elið þeirra, svo aftur í rúmið á hót­el­inu en þeir létu það ekki stoppa sig og skipt­ust á að nauðga mér þar sem ég lá í rúm­inu ber að neðan með ælu í hár­inu, and­lit­inu og föt­unum“.

Hún segir frá því að það fyrsta sem annar mann­anna hafi sagt við hana dag­inn eftir hafi verið „Vóóó ekki kæra mig fyrir nauðgun“ og hló. Hún segir að þó það séu nærri liðin 11 ár frá atvik­inu komi ekki sá dagur að þetta skjóti ekki upp koll­inum í huga hennar. „Þetta rændi mig svo mörgu. Sjálfs­traustinu, gleð­inni, tæki­færum og upp­lif­unum“.

Þá segir konan að staðið hafi til að kæra menn­ina og hún var komin með lög­fræð­ing, fór í skýrslu­töku hjá lög­reglu en hvar sem hún kom var henni tjáð það að þetta væri mjög erfitt mál, annað land og þeir tveir gegn mér.  Hún var einnig spurð um það hvort hún væri viss um að hún vildi leggja þetta á sig. „Eftir margra mán­aða bið ákvað ég svo að leggja málið niður, var ekki nógu sterk, gat ekki lagt meira á mig and­lega. Þessir menn voru þekktir, annar þeirra þjóð­þekktur í dag“.

Konunni var ítrekað bent á að ef hún myndi kæra þá hefði það áhrif á þeirra feril, þetta myndi fara í blöðin og þá myndu allir vita af þessu. Hún segir spurn­ingin sem sækir hvað fast­ast að henni frá þeim tíma þegar hún sagði frá vera:  Ertu viss ? og  athuga­semdin : Þú vildir þetta en sást svo eftir því.

„Ég má segja frá, ég má bara ekki nafn­greina. Mig langar ekki að burð­ast með þetta ein í hjart­anu, mig langar ekki að hugsa í hvert skipti sem ég fer meðal fólks „Ætli þau viti þetta, ætli þau trúi mér?“ því það er ógeðs­lega íþyngj­andi og heft­andi félags­lega. Ég er alltaf á varð­bergi“.

Konan segir að þennan dag hafi eitt­hvað verið tekið frá henni sem hún mun aldrei fá aftur en að hún ætli að halda áfram að vinna í sér.

„Ég skila loks­ins skömminni, FOKKIÐ YKKUR !!“.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

Tomasz þvertekur fyrir ásakanir um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetrators actually take responsibility“
Innlent

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
Gylfi Þór hættur hjá Everton
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna líkamsárásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í andlitið“
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins