„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stefán Karlsson er látinn: Minning um leiðtoga og yndislega manneskju lifir

Stefán Karlsson er látinn: Minning um leiðtoga og yndislega manneskju lifir
|
Stefán

Stefán Karlsson er lát­inn langt fyrir aldur fram. Greint er frá and­láti Stefáns á heima­síðu Vals. Stefán var fram­kvæmda­stjóri Vals í tvö ár og stjórn­ar­maður í hand­knatt­leiks­deild félags­ins.

Stefáni er lýst sem afar vönd­uðum manni, góð­hjört­uðum og ráða­góðum. Stefán var einnig mik­ill leið­togi og tók hann á móti öllum glað­beittur á svip og bros hans leið fólki seint úr minni.

Á Facebook-síðu Vals segir:

Stefán vann í rúm­lega 20 ár í kringum Knatt­spyrnu­fé­lagið Val í mörgum lyk­il­hlut­verkum. Hann var m.a. for­maður hand­knatt­leiks­deildar, fram­kvæmd­ar­stjóri félags­ins og fjár­mála­stjóri ásamt fjöl­mörgum hlut­verkum í ein­stökum verk­efnum og því sem snéri að vinnu á bak við tjöldin við að gera starf félags­ins betra.

Á heima­síðu Vals segir: „Knatt­spyrnu­fé­lagið Valur sendir sam­úð­ar­kveðjur til eig­in­konu Stefáns, Sig­ur­laugar Rún­ars­dóttur, sona þeirra, Krist­ó­fers, Rúnars, Ingimars og ann­ara fjöl­skyldu­með­lima og vina.

Missir þeirra er mik­ill.

Minning um frá­bæran leið­toga og ynd­is­legan félaga, einn okkar allra bestu, mun lifa meðal okkar í Vals­sam­fé­lag­inu.“

Fjöl­margir minn­ast Stefáns á sam­fé­lags­miðlum. Magnús Guð­munds­son skrifar: „Þetta eru skelfi­legar fréttir. Stefán var ein­stak­lega góður og vand­aður maður. Hans verður sárt saknað en minn­ingin um góðan dreng lifa. Inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur til fjöl­skyldu hans og vina.“

Ingvar Kristinn segir: „Brosandi and­litið sem ávallt tók á móti manni þegar maður hitti Stefán gleymir maður seint. Sann­kall­aður heiður að fá að kynn­ast honum. Sendi inni­legar sam­úð­ar­kveðjur til fjöl­skyldu Stefáns og allra Vals­manna.“

Hand­bolta­kempan Heimir Örn Árnason segir: „Sam­úð­ar­kveðjur til fjöl­skyldu og Vals­manna!! Stefán var gull af manni og það var heiður að vinna með honum!“

Hilmar Þór Norð­fjörð skrifar:

„Ég kynnt­ist Stebba þegar ég var með Sport.is en glað­leit­ari dreng var erfitt að finna. Hann tók alltaf á móti öllum með stóru brosi og var alltaf til í spjall eða leysa mál sem komu að fjöl­miðlum.

Það var því erfitt að sjá að þessi dáða­drengur hafi yfir­gefið okkur, langt fyrir aldur fram. Það sýnir okkur að ekk­ert er sjálf­sagt í þessu ferða­lagi okkar og hver sem er getur heltst úr lest­inni án fyr­ir­vara.

Ég sendi mínar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur til fjöl­skyldu og vina Stebba.

Hvíl í friði.

Þá segir einnig á heima­síðu Vals að liðið muni leika með sorg­ar­bönd þessa helgi.

„Blessuð sé minn­ing Stefáns Karls­sonar.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins