„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fötluð kona skilin eftir ein við ókunna blokk: „Ferðaþjónusta fatlaðra er til háborinnar skammar“

Fötluð kona skilin eftir ein við ókunna blokk: „Ferðaþjónusta fatlaðra er til háborinnar skammar“
Mynd / Skálatún

„Ferða­þjón­usta fatl­aðra er til hábor­innar skammar,“ skrifar systir 72ja ára konu sem er með þroska­hömlun og lík­am­lega illa á sig komin. Konan fór með Ferða­þjón­ustu fatl­aðra í gær­kvöld og átti að skila henni heim í Skálatún í Mos­fellsbæ. Bíllinn kom, að sögn systur kon­unnar klukku­tíma of seint til að sækja hana. „Hún var ein í bílnum og átti að fara í Norð­ur­hlíð/Skála­túni. En hún var skilin eftir með göngu­grind­ina í ókunn­ugri blokk um 11 leytið á aðfanga­dags­kvöld,“ skrifar systirin í ítar­legri færslu á Facebook.

Konan stóð ein og ráð­villt við húsið í göngu­grind sinni. Hún getur að sögn systur hennar ekki gert sig skilj­an­lega við ókunn­uga og er ekki fær um að segja hvar hún býr. Það vildi henni til happs að íbúi í fjöl­býl­is­hús­inu sá hvernig komið var og þekkti kon­una.

„Hún var ofboðs­lega hrædd“

„Til allrar ham­ingju var íbúi í blokk­inni sem sá hana og þekkti hana. Hann hringdi í 112 og gat sagt þeim að fyrir 20 árum hefði hún búið á Skála­túni. Hann hafði sam­band við náinn ætt­ingja (þá var búið að hringja í 112) og sagði frá því sem gerst hafði. Þess vegna frétti ég af því sem gerst hafði,“ skrifar systirin.

Hún segir að næt­ur­vaktin í húsi systur sinnar hafi þá verið nýbúin að hringja og undrað­ist að systir hennar var ekki komin heim. Hún vildi vita hvort hún væri enn í heim­sókn­inni.

„Í ókunnu blokk­ina komu sjúkra­flutn­ing­ar­menn og skil­uðu henni heim á Skálatún. Ég ræddi við systur mína í síma skömmu síðar og hún var ofboðs­lega hrædd. Skaðinn er skeður, ég er algjör­lega rasandi yfir þess­ari mann­fyr­ir­litn­ingu sem birt­ist í því að skilja mann­eskju sem ekki getur tjáð sig eftir aleina eftir í stiga­gangi í ein­hverri blokk. já ég er sjóð­andi reið en það vegur þyngra að systir mín hafi þurft að upp­lifa skelfi­legan ótta í alls ókunn­ugu umhverfi og án mögu­leika til að tjá sig,“ segir systir fötl­uðu kon­unnar í færslu sinni á Facebook í morgun. Hún seg­ist vera eilíf­lega þakk­lát mann­inum sem bar kennsl á hana og kom því til leiðar að hún kæm­ist heim til sín.

„Ég mun aldrei aftur reiða mig á Ferða­þjón­ustu fatl­aðra,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins