Heimspekingurinn Atli Harðarson velti fyrir sér Íslandsbankamálinu í nýlegri færslu á Facebook.

Færslan hefur vakið athygli og ekki ómerkilegri maður en Egill Helgason hefur deilt færslunni. Þar segist Atli treysta betur þeim sem „reyna að vera heiðarlegir en þeim sem reyna að afla sér trausts“ og á þá við umræðuna um að afla þurfi traust á bankakerfinu, eftir að kolsvört skýrsla Fjármálaeftirlitsins um Íslandsbankasöluna leit dagsins ljós á dögunum. Segir heimspekingurinn að slík viðleitni sé oftast dauðadæmd.
Færsluna má lesa hér að neðan.
„Nú er allmikið um það rætt að endurreisa þurfi traust á bankakerfinu.
Ég veit ekki hvað skal halda um þetta tal. Sjálfur treysti ég betur þeim sem reyna að vera heiðarlegir en þeim sem reyna að afla sér trausts.Að stefna á að öðlast traust er svolítið eins og að reyna að verða vinsæll eða hamingjusamur. Slík viðleitni er oftast dauðadæmd. Þetta eru hnoss sem mönnum hlotnast helst ef þeir hugsa meira um að reynast öðrum vel heldur en um sinn eigin ávinning.Væri ef til vill betra að reyna að endurreisa löghlýðni í bankakerfinu? Það er að minnsta kosti ofurlítil von til að það auki almennt traust og tiltrú.“




















Athugasemdir