„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mótmælt við Ríkisútvarpið: „Getur verið að Palestína sé tabú fjölmiðlasamfélagsins í dag?“

Mótmælt við Ríkisútvarpið: „Getur verið að Palestína sé tabú fjölmiðlasamfélagsins í dag?“
Frá mót­mæl­unum. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson

Í til­efni af alþjóð­legum bar­áttu­degi gegn refsi­leysi glæpa á blaða­mönnum.

Í dag mót­mælti fólk af því til­efni með tákn­rænum gjörn­ingi fyrir utan Útvarps­húsið í dag. Mót­mæl­endur vöktu athygli á þeim gríð­ar­lega fjölda blaða­manna sem skipu­lega hafa verið myrtir af Ísra­els­her á und­an­förnum tólf mán­uðum. 180 blaða­menn hafa verið drepnir á Gaza og hið minnsta 129 blaða­menn teknir til fanga.

Frá mót­mæl­unum. Sig­tryggur Ari Jóhanns­son

Mót­mæl­endur, lögð­ust á jörð­ina, með alþjóð­legt merki blaða­manna og lágu þar hreyf­ing­ar­lausir í 10 mín­útur. Yfir­lýs­ing var lesin upp þar sem fram kom gagn­rýni á frétta­flutn­ing meg­in­straum­smiðla af þjóð­ar­morð­inu.

Í frétta­til­kynn­ingu frá mót­mæl­endum segir meðal ann­ars: „Sá frétta­flutn­ingur sem almenn­ingi er boðið upp á er vill­andi og gefur ekki raunsanna mynd af þeim hrotta­legu stríðs­glæpum sem Ísra­els­her fremur.“

Hér fyrir neðan má lesa yfir­lýs­ingu mót­mæl­enda:

„Í dag eru 393 dagar liðnir. 

393 dagar, síðan sú hrina þjóð­ar­morðs sem hið svo­kall­aða Ísra­els­ríki fremur á Palest­ínsku þjóð­inni hófst. 

393 dagar, síðan að sá glæpur, sem svo aug­ljós­lega hefur verið fylgitungl þess­arar þjóð­ar­morðs­hr­inu, þögg­unin um þjóð­ar­morðið hófst.

Þöggunin sem megnið af vest­rænum meg­in­straums­fjöl­miðlum hefur gerst sek um að beita. 

Þöggun sem beitt er með því að villa bæði með­vitað og ómeð­vitað um fyrir almenn­ingi, með “umfjöllun” og eða “umfjöll­un­ar­leysi” af þeim hrotta­legu stríðs­glæpum sem framdir eru í akkorði af Ísra­els­her á Gaza og á Vest­ur­bakk­anum.

Um glæp gegn mann­kyni, sem fram­inn er fyrir augum okkar allra.

Fjöl­miðlar hafa tekið afstöðu með kúg­ar­anum og þannig normalíserað hryll­ing­inn í félagi við stjórn­völd og aðrar ábyrgar sam­fé­lags­stofn­anir. 

Hvernig?

Jú með því að beita aðferðum eins og „engri umfjöllun“ t.d. á morðum á öllum þessum fjölda blaða­manna sem skipu­lega hafa verið drepnir, pynt­aðir og höfðu fram að því lifað við gengd­ar­lausar hót­anir um dráp á þeim sem og fjöl­skyldum þeirra. 

„Að flytja ekki frétt­ina“ er önnur aðferð. 

Þegar Ísra­els­her brenndi fólk lif­andi með því að skjóta eld­vörðum inn í spít­ala sem einnig var skjól fyrir flótta­fólk, þá var frétt­ina um það hvergi að finna. 

Það var ekki fyrr en viku síðar, lík­lega fyrir til­stilli gagn­rýni almenn­ings, sem var yfir­þyrmdur af hryll­ingi, að frétt af voða­verk­inu var troðið inn í tíu­fréttir á RÚV, viku síðar!

„Að nefna aðeins hluta upp­lýs­inga“, „að veita rangar upp­lýs­ingar“, „að leið­rétta ekki rang­færslur“, sam­an­ber þá hryll­ings­frétt um afhöfðuð börn frá 7.októ­ber, sem rann­sóknir hafa sýnt fram á fyrir löngu, að var upp­spuni frá rótum, étinn beint upp úr áróð­urma­sk­ínu ísra­el­skra stjórn­valda. 

„Orðalag“, það að not­ast stans­laust við orðið stríð (sem þetta er ekki), átök og hryðju­verka­sam­tök. 

Þar að auki er það regla fremur en til­hneig­ing hjá frétta­stofum að nota ann­ars vegar orðið  “gísl” þegar talað er um Ísraela sem teknir hafa verið höndum, en hins vegar orðið “fangi” notað þegar dæm­inu er snúið við. 

„Að nefna 7.októ­ber statt og stöðugt sem upp­haf þjóð­ar­morðs­ins“. 

Þessi atriði ein og sér gera það að verkum að alröng mynd er gefin upp af þjóð­ar­morð­inu. og það er „normalíserað“.

Mjög hættu­legur leikur. Mikill ábyrgð­ar­hluti.

Frétta­stjóri RÚV hefur borið því við í við­tali að ástæðan þessa geti mögu­lega verið að engir frétta­menn eru á þeirra vegum á Gaza og þess vegna erfitt að flytja „traustar fréttir“ þaðan.

Þetta er ekki rétt.

Alþjóð­lega frétta­stofan AL Jazeera sem frétt­stofa RÚV hefur nefnt sem eina af sinni heim­ilda­frétta­veitu hefur frétta­menn á Gaza á sínum snærum. 

Einnig flytja sjálf­stæðir frétta­menn fréttir af Gaza. 

Má þar nefna Emmy-verð­launa­hafann Bizan Owda, Motaz Azaiza, Yousef Alhelou og Khaled Beydoun.

Meg­in­þorri almenn­ings hefur horft í 393 daga á börnum slátrað í umvörpum, for­eldrum þeirra slátrað, Þau eru svelt með skipu­lögðum hætti, tekin til fanga pyntuð á ólýs­an­legan hátt. Sjúkra­hús, grunn­skólar háskólar, moskur, kirkjur, bak­arí, vatns­lagnir eyði­lagðar, raf­magn tekið. 

Allt sam­fé­lags­legt grunn­kerfi Gaza hefur verið sprengt í loft upp.

ÞVÍ EYTT.

ÖLLU EYTT.

Samkvæmt nákvæmri áætlun ísra­el­skra stjórn­valda, og allt í beinni útsend­ingu!

Um 1000 fjöl­skyldur hafa skipu­lögðum hætti verið þurrk­aðar út úr reg­isteri Palest­ínu! 

Síðan 7. októ­ber fyrir rúm­lega ári hafa 129 frétta­menn verið teknir til fanga. 

11.400 manns teknir bara á síð­ast­liðnu ári til fanga, bæði börn og full­orðnir sem pynt­aðir eru í fanga og pynt­inga­búðum Ísrael sem líkt hefur verið við Guant­anamo.

Engu að síður heyrir maður jafn­vel minna fjallað um þjóð­ar­morðið í íslenskum meg­in­straums­fjöl­miðlum en “lista­lífið” í Reykja­vík eða íþrótta­afrek knatt­spyrnu­manna í Evrópu.

Það er nokkuð sér­kenni­legt að það séum við, almenn­ingur, sem finnum okkur knúin til þess að mót­mæla hryll­ingnum og minn­ast þeirra 180 frétta­manna sem hafa skipu­lega verið drepnir á síð­ustu 393 dögum. 

Aldrei hafa fleiri blaða­menn verið drepnir á stríðs­tímum frá upp­hafi mæl­inga. 

Eðlilegt þætti manni að kollegar þeirra frétta­manna, væru þeir sem hér lægju á jörð­inni og tjáðu sig á þennan tákn­rænan hátt, en svo er ekki.

Eðlilegt væri að fjöl­miðlar fjöll­uðu um þessa aðför að frjálsri blaða­mennsku!

Það er stríðs­glæpur að myrða blaða­menn og það er brot á alþjóða­sam­þykktum að hindra frétta­flutn­ing. 

Stríð­glæpi fremur Ísrael í akkorði, meðal ann­ars með því að strá­fella blaða­menn og hleypa engum blaða­mönnum inn á Gaza. 

Þann 8. nóv­emer 2023, eða fyrir tæp­lega ári sendi Blaða­mann­fé­lag Íslands frá sér yfir­lýs­ingu þar sem félagið “for­dæmir dráp á blaða­mönnum í ÁTÖKUM Ísra­els­manna og Hamas þar sem þá 39 blaða­menn höfðu látið lífið, lang­flestir í linnu­lausum loft­árásum Ísra­els­hers á Gaza. 

Síðan þá hefur ekki spurst til Blaða­manna­fé­lags­ins. 

Ekki þótt aldrei í sögu blaða­mennsku hafi hví­lík blóð­taka verið skráð.

Þykir það kannski ekki frétt­næmt?

Eða þykir blaða­mönnum bara engin ástæða vera nú til aðgerða að hálfu fjöl­miðla­fólks?

Frétta­menn á Gaza eru eitt af skot­mörkum Ísra­els­hers, eins og börnin og fatlað fólk og allur almenn­ingur, fólkið sem kerf­is­bundnar árásir eru gerðar á.

Það er skipu­lögð her­ferð sem gerð er til að þagga niður í þeim sem þora að skrá­setja raun­veru­leika stríðs og eyði­legg­ingar.

Þannig er gerð bein árás á grund­vall­ar­rétt okkar til upp­lýs­inga og til að eyða sög­unni,“

Nýleg lýs­ing frétta­manns sem birt var á Al Jazeera á því hvernig skila­boð hljóma frá Ísra­els­her, um hvernig hann verði „eltur uppi, drep­inn og öll fjöl­skyldan líka, þeirra lífi eins og allra, verði eytt af yfir­borði jarðar“ svo vitnað sé beint í skila­boð ísra­elska hers­ins. Þetta er dæmi um reglu­legar frá­sagnir frétta­manna, þetta er ekki und­an­tekn­ing.

Ísrael hefur ekki ein­asta bannað einni helstu heim­ild heims­ins um það sem er að ger­ast á Gaza, frétta­stofu Al Jazeera, að starfa innan Ísrael heldur hafa þeir líka drepið þrjá frétta­menn þeirra og tveir liggja í lífs­hættu eftir árásir og er bannað að flytja þá til aðhlynn­ingar ann­ars­staðar.

Einnig réð­ust þeir inn á krif­stofur þeirra á Vest­ur­bakk­anum og lok­uðu þeim.

Umfjöllun um þetta er lítil sem engin í íslenskum fjöl­miðlum!

Veit fjöl­miðla­fólk almennt ekki að það er stríðs­glæpur, að drepa fjöl­miðla­fólk!

Af hverju fjallið þið ekki um þjóð­ar­morðið í hlut­falli við stærð­argráðuna?

Þennan glæp gegn mann­kyni sem við okkur blasir.

Það er sann­ar­lega ykkar hlut­verk.  

Engin umfjöllun eða frétta­skýr­ingar um afstöðu íslenskra stjórn­valda hefur verið gerð hér svo vitað sé.

Stjórn­mála­fólk er ekki krafið skýr­inga um “hvers vegna þau for­dæmi ekki þjóð­ar­morðið?”

Það er ekki spurt um “Hvar þings­á­lykt­un­ar­til­laga um við­skipta­þving­anir á Ísrael sé stödd í utan­rík­is­mála­nefnd?” 

Enginn hefur spurt  Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, hvað eig­in­lega hún átti við þegar hún, í ræðu sinni hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum, ýjaði að því að það væri Palest­ínu­mönnum um að kenna að sjúkra­hús þeirra væru sprengd í loft upp? 

Hefur ein­hver spurt dóms­mála­ráð­herra, utan­rík­is­ráð­herra eða for­sæt­is­ráð­herra hvort þeim finn­ist eðli­legt að brott­vísa Palest­ínu­mönnum nú, undir þessum kring­um­stæðum?

RÚV, ásamt fleiri íslenskum miðlum, hefur gerst sekt um grafal­var­lega umfjöllun um mót­mæl­endur, umfjöllun sem málar þá upp sem óeirða­seggi eða óþjóða­lýð. 

Tvö dæmi um þetta koma upp í hug­ann:

Þegar RÚV át upp eftir lög­reglu að mót­mæl­endur hefðu hindrað för lög­reglu í for­gangsakstri. 

Svo alvar­legar ásak­anir að allar frétta­stofur sem telja sig óhlut­drægar hljóta að leita sér frek­ari upp­lýs­inga, fá þær til dæmis hjá sjón­ar­vottum.

Hitt dæmið er þegar RÚV blés upp frétt um að þing­maður hefði orðið fyrir árás fyrir utan þing­húsið. 

Einnig alger­lega ein­hliða umfjöllun þar sem málið var dramat­íserað og að hluta til farið með rangt mál. 

Svona frétta­flutn­ingur ýtir undir svo­kall­aða skautun í sam­fé­lag­inu, mjög svo hættu­lega og á RÚV því sinn þátt í henni.

Spurning dags­ins er:

Getur verið að Palest­ína sé tabú fjöl­miðla­sam­fé­lags­ins í dag?

Áhuga­vert umfjöll­un­ar­efni út af fyrir sig.

Vaknið!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Slóvakar minnast morðsins á rannsóknarblaðamanninum Ján Kuciak: „Slóvakía er Evrópa“
HeimurMótmæli

Slóvakar minn­ast morðs­ins á rann­sókn­ar­blaða­mann­inum Ján Kuciak: „Slóvakía er Evrópa“

Mótmæli sem kölluð eru „Slóvakía er Evrópa“ fara fram á morgun, 21. febr­úar til að minn­ast þess að sjö ár eru liðin frá morð­inu á Ján Kuciak og Martinu Kušnírová. Friður til Úkraínu sam­tökin mun vinna með félag­inu For a Decent Slovakia við að skipu­leggja „Slóvakía er Evrópa“ mót­mæla­fund­inn sem áætl­aður er á morgun 21. febr­úar í Brat­islava til að...
Aðalmeðferð máls mótmælenda gegn íslenska ríkinu hefst á föstudag – Hvetja fólk til að fjölmenna
InnlentMótmæli

Aðal­með­ferð máls mót­mæl­enda gegn íslenska rík­inu hefst á föstu­dag – Hvetja fólk til að fjöl­menna

No Borders Iceland hvetur fólk til að fjöl­menna í dóm­sal við aðal­með­ferð máls mót­mæl­enda gegn íslenska rík­inu gegn rík­inu vegna til­efn­is­lausra árása og ofbeldis lög­reglu. Samtökin No Borders Iceland biðlar til fólks að fjöl­menna í dóm­sal næst­kom­andi föstu­dag en þá hefst aðal­með­ferð máls fólks sem mót­mæltu þjóð­ar­morði Ísraela á Palest­ínu­mönnum, vegna til­hæfu­lausra árása og ofbeldis lög­reglu en lög­reglan þótti að...
Dansari truflaði atriði Kendrick Lamar með fána Palestínu og Súdan – MYNDSKEIÐ
HeimurMótmæli

Dansari trufl­aði atriði Kendrick Lamar með fána Palest­ínu og Súdan – MYNDSKEIÐ

Aðgerð­ar­sinni reyndi að stela sen­unni þegar rapp­ar­inn Kendrick Lamar tróð upp í hálf­leik Ofur­skálar­innar sem haldin var í New Orleans í Louisiana-fylki Banda­ríkj­anna. Maður, sem ekki hefur verið nafn­greindur hljóp inn á svæðið þar sem dans­arar sem fylgdu Lamar í atriði hans, og veif­aði fána Palest­ínu og Súdan og hljóp fram og til baka, þar til hann var tækl­aður af...
Fimm samtök boða mótmæli við bandaríska sendiráðið: „Ofbeldið læðist að okkur eins og þoka“
InnlentMótmæli

Fimm sam­tök boða mót­mæli við banda­ríska sendi­ráðið: „Ofbeldið læð­ist að okkur eins og þoka“

Fimm sam­tök boða mót­mæli við banda­ríska sendi­ráðið. Á morgun, laug­ar­dag­inn 8. febr­úar er boðað til mót­mæla við banda­ríska sendi­ráðið á Engja­teigi 7, Reykja­vík. Fimm sam­tök standa á bak­við mót­mælin sem hefj­ast klukkan 14:00 en þar á meðal eru sam­tökin No Borders Iceland og Félagið Ísland-Palest­ína. Í lýs­ingu á við­burð­inum á Facebook segir að ótal mann­rétt­indi hafi nú þegar verið framin...
Fjölmargir mættu á kröfufund til stuðnings Palestínu: „Helför Ísraels á Gaza verður að stöðva!“
Innlent

Fjöl­margir mættu á kröfufund til stuðn­ings Palest­ínu: „Helför Ísraels á Gaza verður að stöðva!“

Um þús­und manns safn­að­ist saman við Hlemm í dag og gengu sam­stöðu­göngu á Aust­ur­völl til stuðn­ings Palest­ínu. Fjöl­margir mættu á kröfufund­inn.Mynd: Björgvin Gunn­ars­son Félagið Ísland-Palest­ína boð­aði til sam­stöðu­göngu frá Hlemmi að Aust­ur­velli klukkan 14:00 í dag en um þús­und manns mætti en á Aust­ur­velli var síðan hald­inn kröfufundur. Á fund­inum var þess kraf­ist að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra, standi við...
Kröfufundur vegna þjóðarmorðsins í Palestínu í dag: „Nú er komið að því að efna gefin loforð!“
Innlent

Kröfufundur vegna þjóð­ar­morðs­ins í Palest­ínu í dag: „Nú er komið að því að efna gefin lof­orð!“

Félagið Ísland-Palest­ína boðar sam­stöðu­göngu með palest­ínsku þjóð­inni í dag klukkan 14:00. Gengið verður frá Hlemmi að Aust­ur­velli í sam­stöðu með palest­ínsku þjóð­inni og þess kraf­ist að nýja rík­is­stjórnin efni gefin lof­orð og grípi til aðgerða gegn þjóð­ar­morði Ísraels í Palest­ínu. Á Aust­ur­velli verður síðan sam­stöðu- og kröfufundur. Í við­burð­ar­lýs­ingu Félags­ins Ísland-Palest­ína segir eft­ir­far­andi: „Í bar­átt­unni gegn þjóð­ar­morð­inu höfum við öll...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins