Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
InnlentÞjóðhátíð aflýst – Gríðarlegt tap fyrir barna og unglingastarf ÍBV15. júlí 2020 Framkvæmdastjóri ÍBV segir ákvörðun um að aflýsa Þjóðhátíð vera fjárhagslegan skell fyrir félagið. „Við erum með alla anga úti núna til að auka tekjurnar og draga úr kostnaði á móti, sú vinna er í fullum gangi,“ segir Hörður Orri Grettisson framkvæmdastjóri íþróttafélagsins ÍBV, í samtali við Fréttablaðið, í ljósi frétta þess efnis að ákveðið hafi verið að aflýsa Þjóðhátíð í...
InnlentÁnægður með baráttuna gegn COVID-19 á Íslandi: „Það hefur náðst ótrúlegur árangur“14. júlí 2020 Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir síðustu vikur sýna að baráttan gegn útbreiðslu COVID-19 á Íslandi gangi vel, en í dag var greint frá því á upplýsingafundi Almannavarna að til standi að fjölga löndum á lista yfir þau lönd sem verða undanskilin frá landamæraskimunum. Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að fara varlega í sakirnar. „Það hefur náðst ótrúlegur árangur,“ sagði Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu...
InnlentLandspítalinn tekur við landamæraskimunum í dag14. júlí 2020 Landspítalinn tekur við skimunum á Keflavíkurflugvelli í dag. Hingað til hefur Íslensk erfðagreining séð um að greina öll sýni sem tekin eru á landamærunum. Í gær ræddi fréttastofa Vísis við Kára Stefánsson forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar í ljósi þess að Landspítalanum hafði ekki tekist að koma upp búnaði á spítalanum til að taka við skimun Íslenskrar erfðagreiningar fyrir daginn í dag....
InnlentAndrés Ingi skýtur föstum skotum á Útlendingastofnun og dómsmálaráðherra12. júlí 2020 Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka, hrósar umsjónarmanni sóttvarnarhúsa fyrir manneskjulegt viðmót í umræðu um stöðu hælisleitenda. Segir þingmaðurinn að munur væri ef dómsmálaráðherra og Útlendingastofnun temdu sér samskonar viðmót í garð þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi. „Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður sóttvarnarhúsanna, bregst við þessu með manneskjulega viðmótinu sem væri svo óskaplega gott að sjá á hælismálunum...
InnlentVigdís segir íslenskar fjölskyldur skulda margar milljónir vegna COVID-aðgerða yfirvalda10. júlí 2020 Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, segir að COVID-19 aðgerðir íslenskra stjórnvalda muni kosta íslenskra fjölskyldur háar upphæðir. Segir Vidís borgina hafa veitt misvísandi uppýsingar þegar hún vildi fá að vita hvað aðgerðirnar kæmu til með að kosta fjögurra manna fjölskyldu í Reykjavík. „Hver fjögurra manna fjölskylda í Reykjavík skuldar tæpar 10,4 milljónir fyrir Covid aðgerðir borgarinnar. Hver fjögurra...
InnlentMargir glíma við langvarandi slappleika og orkuleysi eftir að hafa smitast af COVID-198. júlí 2020 Fjöldi Íslendinga glímir við viðvarandi slappleika og orkuleysi eftir að hafa smitast af kórónuveirunni, að því er fram kemur í Fréttablaðinu. Í frétt á vef Fréttablaðsins er fjallað um málið og vísað í umræður í Facebook-grúpunni Við fengum Covid þar sem notendur kvarta meðal annars undan brengluðu bragð og / eða lyktarskyni og fyrrnefndum einkennum í kjölfar þess að hafa...
InnlentSteinunn Ólína úthúðar Katrínu – „Stórhættulegur forsætisráðherra“7. júlí 2020 Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, ritstjóri Kvennablaðsins, birtir pistil á vef í dag, þar sem hún segir Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, engan veginn valda starfi sínu. Segir hún Katrínu vera með tilætlunarsemi og yfirlæti og hún sé hreinlega stórhættulegur forsætisráðherra. ,,Skrípaleikurinn í kringum skimanir á landamærum Íslands verður sífellt skrýtnari og umræðan enn skringilegri. Um margra mánuða skeið hefur ríkisstjórn Íslands reitt sig...
InnlentKári svarar fyrir „frekjukastið“ – „Við björguðum því sem bjargað varð“7. júlí 2020 Um fátt hefur verið meira rætt í samfélaginu í dag og í gær en ákvörðun Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, um að hætta skimunum og slíta samstarfi við landlæknisembættið frá og með næsta mánudegi. Ákvörðunin hefur fengið misjafnar undirtektir, margir skilja ákvörðun Kára, meðan aðrir telja hann einfaldlega í frekjukasti. Þeirra á meðal Smári McCarthy, þingmaður Pírata, en Kári svarar...
InnlentÁkvörðun Kára veldur Boga áhyggjum: Það má ekki koma bakslag7. júlí 2020 Ákvörðun Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, um að hætta skimunum þriðjudaginn 13. júlí og slíta samstarfi við landlæknisembættið hefur hlotið misjafnar undirtektir í samfélaginu. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segist hafa áhyggjur af því að landamæraskimun sé komin í uppnám. „Við fylgjumst með á hliðarlínunni og vonum þetta haldi áfram eins og verið hefur,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair,...
InnlentAfstaða Kára umdeild7. júlí 2020 Ákvörðun Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, um að hætta skimunum og slíta samstarfi við landlæknisembættið fær vægast sagt misjafnar undirtektir meðal almennings. Margir telja ákvörðun Kára réttmæta en sumir eru þeirrar skoðunar að sé forstjórinn sé ef til vill fullharður í afstöðu sinni. „Frá og með deginum í dag 6. júlí munum við hætta öllum samskiptum við sóttvarnarlækni og landlækni...
InnlentSóttvarnalæknir segir að taka þurfi upp aðra nálgun í skimunum6. júlí 2020 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að taka þurfi upp aðra nálgun í skimunum fyrir COVID-19 veirunni í ljósi fregna þess efnis að Íslensk erfðagreining ætli að hætta skimunum þann 13. júlí. „Það er ljóst að við þurfum að taka upp aðra nálgun í ljósi þessa,“ segir Þórólfur, í samtali við Vísi. Spurður hvort þetta hafi verið viðbúið, í ljósi þess sem...
InnlentKári Stefáns við forsætisráðherra: „Þetta gengur einfaldlega ekki“6. júlí 2020 Íslensk erfðagreining hættir að skima og slítur samskiptum við embætti landlæknis. „Frá og með deginum í dag 6. júlí munum við hætta öllum samskiptum við sóttvarnarlækni og landlækni út af SARS-CoV-2. Síðustu sýnin sem við munum afgreiða eru þau sem berast til okkar á mánudaginn 13. júlí,“ skrifar Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, ÍE, í opnu bréfi til Katrínar Jakobsdóttur,...