Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
InnlentVítalía stígur fram og lýsir áreiti frægra manna: „Fóru yfir öll mörk sem hægt er að fara yfir“4. janúar 2022 Meintur brotaþoli þjóðþekktra manna sem Mannlíf fjallaði um fyrr í dag, hefur nú komið fram með frásagnir sínar undir nafni. Vítalía Lazareva steig fram í hlaðvarpinu Eigin konur í dag og sagði frá kynferðisbrotum og áreiti sem hún varð fyrir af hendi þjóðþekktra manna. Háværar sögur af mönnunum hafa undanfarið reikað um samfélagsmiðla. Vítalía segist í viðtalinu hafa átt í...
InnlentKynferðisbrotÞjóðþekktir Íslendingar sakaðir um kynferðisbrot: „Ég hef ekki tíma til að tala um þetta“4. janúar 2022 Á samfélagsmiðlum hefur undanfarið verið mikið rætt um þjóðþekkta menn sem sakaðir eru um misferli gagnvart ungri konu. Um er að ræða tvö aðskilin atvik. Meintur brotaþoli á að hafa átt í ástarsambandi við einn mannanna, sem er kvæntur. Fyrr í vetur birtust frásagnir af því að hún hafi hitt elskhuga sinn og vini hans á óþekktum stað og farið...
InnlentKynferðisbrotDæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir nauðgun: Braut á vinkonu sinni meðan hún svaf19. desember 2021 Síðastliðinn föstudag staðfesti Landsréttur dóm héraðsdóms yfir manni sem var sakfelldur fyrir að hafa nauðgað konu í september árið 2019. Maðurinn hlaut átján mánaða fangelsisdóm og var dæmdur til að greiða brotaþola eina og hálfa milljón króna í bætur. Maðurinn er á þrítugsaldri en var 22 ára þegar brotið var framið. Fram kemur í dómnum að hann og konan hafi...
InnlentKynferðisbrotGarðabær reynir að hafa upp á gömlum tilkynningum: „Það er hluti af úttekt sem er hafin hjá okkur“6. desember 2021 Garðabær skoðar nú hvar tilkynningar vegna Hjalteyris hjónanna séu niðurkomnar. Kemur fram í tilkynningu frá foreldrum barns sem dvaldi við Montessori- leikskóla árið 2006 að þau hafi margsinnis haft samband við Garðabæ en hjónin Beverly og Einar ráku leikskólann. Þá sagði Ragnar Gunnarsson í viðtali við Vísi að hann hafi einnig gert Garðabæ viðvart um hjónin, fyrst árið 2005 en...
InnlentAron og Eggert hafna sekt: „Reikna með að málið verði fellt niður“2. desember 2021 Sagt var frá því í dag að Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði og Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH, hefðu gefið skýrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eru þeir sakaðir um grófa nauðgun í Kaupmannahöfn fyrir 11 árum. Einar Oddur Sigurðsson, lögmaður þeirra, sendi stutta yfirlýsingu til fjölmiðla í dag fyrir hönd þeirra beggja, þar sem hann hefur ekki haft möguleika á að...
InnlentKynferðisbrotAron Einar og Eggert búnir að segja lögreglu sögu sína vegna kynferðisbrots2. desember 2021 Samkvæmt fréttastofu RÚV hafa þeir Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, og Eggert Gunnþór Jónsson, knattspyrnumaður hjá FH, báðir gefið skýrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu er varðar rannsókn á meintu kynferðisbroti í Kaupmannahöfn fyrir ellefu árum síðan. Mannlíf opnaði á málið og greindi fyrst frá frásögn fórnarlambsins. Greint var frá því í lok september að lögregla hefði tekið...
InnlentKynferðisbrotHópnauðgunum fjölgar stöðugt – Algengt að fólk horfi aðgerðalaust á svívirðuna26. október 2021 Það sem af er ári 2021 hafa nítján leitað til Neyðarmóttöku vegna hópnauðgunar. Árið 2020 voru þrettán sem leituðu til Neyðarmóttökunnar og árið þar á undan voru það sex. Hrönn Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri á Neyðarmóttöku, segir fjölgunina ógnvænlega. Þá segir hún að dæmi séu um að einstaklingar hafi horft upp á svívirðuna án þess að gera nokkuð til að...
InnlentKynferðisbrot„Hann grípur sem sagt í klofið á mér“ – Formaður KSÍ sagði ósatt um ofbeldismann í landsliðinu:27. ágúst 2021 Landsliðsmaður sem braut kynferðislega gegn ungri konu viðurkenndi brot sitt og greiddi miskabætur. Hann var valinn í landsliðið eftir atvikið. Guðni Bergsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, sagði ósatt í Kastljósi í gær þegar hann fullyrti að engin erindi vegna ofbeldis landsliðsmanna hefðu borist inn á borð sambandsins. Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, steig fram í fréttum Sjónvarpsins, og upplýsti um það hvað hefði...
InnlentKynferðisbrotAuður sakaður um siðleysi og tvískinnung: Meint ofbeldi hans til skoðunar hjá Þjóðleikhúsinu7. júní 2021 Meint ofbeldi tónlistarmannsins Auðuns Lútherssonar, betur þekkts sem Auður, í garð kvenna og meintar tilraunir hans til að fá ólögráða stúlkur til kynferðislegra athafna gegn undirritun þöggunarsamnings er komið á borð hjá stjórnendum Þjóðleikhússins og er til skoðunar hjá leikhúsinu. Þetta staðfestir Jón Þ. Kristjánsson, forstöðumaður samskipta hjá Þjóðleikhúsinu við DV í dag. Auður, sem er verktaki hjá Þjóðleikhúsinu sér...
InnlentÍslendingum á Kanaríeyjum afar brugðið eftir hópnauðgun: „Við þjöppum okkur saman“5. mars 2021 Mennirnir, sem kærðir voru fyrir að nauðga íslenskri konu á Kanaríeyjum, eru innflytendur. Vegna slæmrar hegðunar höfðu þeir verið reknir í burtu af hótelum Rauða Krossins sem ætluð eru innflytjendum. Einn mannanna hefur verið kærður áður fyrir svipað athæfi. Mennirnir eru frá Norður-Afríku, af Maghreb uppruna. Fólki er að vonum brugðið í samfélagi sem allajafna er friðsælt og öruggt. „Þetta...
InnlentKynferðisbrotBrotið kynferðislega gegn íslenskri konu á Kanarí – Fjórir karlmenn ákærðir5. mars 2021 Fjórir karlmenn hafa verið ákærðið á Gran Canaria eyjunni, einni af ferðamannaeyjunum í Kanaríeyjaklasanum, fyrir kynferðisbrot gegn íslenskri konu sem þar er búsett. Konan er 36 ára gömul og hefur búið með fjölskyldunni sinni á suðurhluta eyjarinnar til margra ára. Það er Morgunblaðið sem greinir frá þessu og vísar til spænskra fjölmiðla. Allir hafa mennirnir fjórir verið ákærðir fyrir kynferðisbrot...
SlúðurDularfullt bréf til Bryndísar Schram: „Ungur kennari sem ærslaðist í stelpunum“26. janúar 2021 Hjónin Jón Baldvin Hannibalsson og Bryndís Schram standa í hreinni nauðvörn vegna ásakana fjölda kvenna um káf og kynferðislega áreitni ráðherrans fyrrverandi í gegnum tíðina. Jón Baldvin hefur þurft að verjast dóttur sinni og fjölda annara kvenna. Bryndís hefur staðið sem klettur að baki manni sínum og fullyrðir að konurnar ljúgi öllu upp. Á dögunum hljóp á snærið hjá Bryndísi...