„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vítalía stígur fram og lýsir áreiti frægra manna: „Fóru yfir öll mörk sem hægt er að fara yfir“

Vítalía stígur fram og lýsir áreiti frægra manna: „Fóru yfir öll mörk sem hægt er að fara yfir“

Meintur brota­þoli þjóð­þekktra manna sem Mannlíf fjall­aði um fyrr í dag, hefur nú komið fram með frá­sagnir sínar undir nafni.

Vítalía Lazareva steig fram í hlað­varp­inu Eigin konur í dag og sagði frá kyn­ferð­is­brotum og áreiti sem hún varð fyrir af hendi þjóð­þekktra manna. Háværar sögur af mönn­unum hafa und­an­farið reikað um sam­fé­lags­miðla.

Vítalía seg­ist í við­tal­inu hafa átt í ást­ar­sam­bandi í um sextán mán­uði við 48 ára gamlan, giftan mann. Þau kynnt­ust í rækt­inni og hún skráði sig í einka­þjálfun hjá honum. Vítalía er sjálf 24 ára gömul.

Í gegnum sam­band þeirra lýsir Vítalía ámæl­is­verðri fram­komu hans í hennar garð, sem og and­legu ofbeldi. Hún seg­ist hafa orðið ást­fangin af mann­inum og hann hafi sagt henni það sama. Maðurinn er þekktur í sam­fé­lag­inu og Vítalía seg­ist hafa litið upp til hans.

Áreiti í heitum potti

Eitt kvöld fyrir rúmu ári síðan segir Vítalía mann­inn hafa boðið sér að koma að hitta hann í sum­ar­bú­stað þar sem hann var að skemmta sér með fjórum vinum sínum. Hún hafi komið þangað nokkuð seint um kvöldið og ást­maður hennar hafi fljót­lega farið nak­inn í heita pott­inn og beðið hana um að koma með. Hún hafi beðið vini hans, sem hún þekkti nán­ast ekki neitt, um að biðja hann um að fara í föt; henni hafi þótt þetta óþægi­legt.

Eftir að mað­ur­inn hafði verið nokkuð lengi einn í pott­inum var ákveðið að þau færu öll saman í pott­inn; Vítalía, mað­ur­inn og vinir hans fjórir. Maðurinn er yngstur af þessum vinum; hinir eru allir eldri en 48 ára.

„Það á alveg að vera hægt að fara í pott­inn, fjórir karl­menn eða fjórar konur með einum manni. Það á alveg að vera hægt án þess að það sé vesen,“ segir Vítalía í við­tal­inu.

„Þetta var eig­in­lega orð­inn nekt­ar­pottur áður en maður vissi af. Ég veit ekki alveg afhverju þetta var þannig, en svona var þetta bara. Einn ein­stak­ling­ur­inn er nak­inn og þá eru bara hinir naktir. En þó þetta sé nekt­ar­pottur þá er það ekki afsökun fyrir því að það sé verið að fremja brot eða slíkt í pott­inum. Það er alveg skýr lína, eða ætti að vera, þar á milli,“ segir Vítalía.

Í pott­inum fóru menn­irnir að koma við Vítalíu án hennar sam­þykkis. „Maður segir ekki neitt í þessum aðstæðum og ein­hvern veg­inn frýs. Svo horfi ég á þennan mann sem ég er að mæta þarna fyrir og hann segir ekki neitt.“

Samkvæmt Vítalíu fóru menn­irn­irnir fljót­lega „yfir öll mörk sem hægt er að fara yfir“. Hún segir þá meðal ann­ars hafa stungið fingrum sínum upp í enda­þarm hennar. Maðurinn sem hún var í sam­bandi með gerði ekk­ert til þess að stöðva þá atburði sem áttu sér stað.

Vítalía segir þessa menn alla mæta reglu­lega í sömu lík­ams­rækt­ar­stöð og hún. Hún hafi átt afar erfitt með að mæta þangað eftir að brotin áttu sér stað og dag­legt líf hafi oft verið henni þung­bært.

„Hefði ég ekki kynnst þessum manni þá hefði ég ekki kynnst vinum hans og upp­lifað það sem ég upp­lifði.“

Bauð vini sínum aðgang að líkama hennar

Hitt atvikið sem hún lýsir átti sér stað í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Þá var ást­mað­ur­inn staddur í golf­ferð með hópi af vinum sínum. Hann hafði fengið Vítalíu til að lauma sér óséð inn á hót­elið sem hóp­ur­inn gisti á svo þau gætu verið saman á her­bergi hans. Þessu mátti eng­inn vita af og mikið haft fyrir því að fela hana. Hún segir að vinum hans hafi verið farið að þykja grun­sam­legt hversu miklum tíma mað­ur­inn varði inni á hót­el­her­bergi og að lokum hafi einn vin­ur­inn fengið her­berg­is­lykil afhentan í afgreiðsl­unni og gengið inn á þau.

Í kjöl­farið hafi ást­maður hennar farið að hugsa upp leiðir til að kaupa þögn vin­ar­ins. Sá er þjóð­þekktur og fasta­gestur á sjón­varps­skjám lands­manna.

Að end­ingu bauð ást­mað­ur­inn vini sínum að koma inn á her­bergi þeirra. Það næsta sem Vítalía segir hafa gerst er að hún hafi verið seld vin­inum, í skiptum fyrir þögn hans. Vininum hafi verið boðið að snerta hana og að þau væru öll ber saman.

„Hann dregur spil úr ein­hverju kyn­líf­s­leikja­spili, sem er ein­hver svona mönun; eitt­hvað sem maður á að gera. Þá á ég bara að fara að sjúga á mann­inum typpið og hann að fara niður á mig. Og þetta er gert til þess að hann fái að halda þögn; svo þessi vinur hans fari ekki og segi kon­unni hvað er í gangi. Ég horfi í augun á honum og segi: Ég vil ekki meira, viltu hætta þessu. Hann sagði bara: Vítalía, þetta er allt í lagi, ég er með þér.

Ég get ekki meira og ég er að fara að gráta og hann segir bara: Þetta er allt í lagi, því ég er með þér.“

Hún segir vin­inn hafa tekið fullan þátt og að honum hafi þótt þetta skemmti­legt. Hún segir þann mann vera í sjón­varpi lands­manna á nán­ast hverjum ein­asta degi. „Hann er það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Kennari misnotaði sérkennslunemanda – Skipaði honum að mæta með byssu og skjóta samstarfsmann
HeimurKynferðisbrot

Kennari mis­not­aði sér­kennslu­nem­anda – Skipaði honum að mæta með byssu og skjóta sam­starfs­mann

Kennari sem beitti 16 ára nem­anda kyn­ferð­is­legu ofbeldi og skip­aði honum að koma með byssu inn í skól­ann til að skjóta sam­starfs­mann hefur verið dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi. Imagine Kay Ewer, 28, sat fyrir ung­lingnum, sem nýtur sér­kennslu í námi, og átti „tíð kyn­ferð­is­leg kynni“ með honum í nokkrar vikur. Dómstóll sagði að Ewer hafi verið í trún­að­ar­stöðu, eitt­hvað...
Tilkynningum um kynferðisbrot gegn börnum fjölgar á milli ára
InnlentKynferðisbrot

Til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­brot gegn börnum fjölgar á milli ára

Um 10 pró­sent aukn­ing á til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­brot varð á milli áranna 2023 og 2024. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra. Skýrsla rík­is­lög­reglu­stjóra um kyn­ferð­is­brot hefur nú verið birt. Í skýrsl­unni má finna upp­lýs­ingar um fjölda til­kynn­inga til lög­reglu vegna kyn­ferð­is­brota árið 2024. Tilkynnt brot voru 568 tals­ins, sem er 10% aukn­ing til­kynn­inga frá 2023. Lög­reglan skráir bæði hvenær...
Héraðssaksóknari þegir þunnu hljóði um meint kynferðisbrot á þroskahamlaðri konu
InnlentKynferðisbrot

Hér­aðs­sak­sókn­ari þegir þunnu hljóði um meint kyn­ferð­is­brot á þroska­haml­aðri konu

Vara­hér­aðs­sak­sókn­ari svarar ekki hvort hópur manna verði ákærðir vegna gruns um kyn­ferð­is­brot gegn þroska­haml­aðri konu sem starf­aði fyrir einn mann­anna. Sjá einnig: Versl­un­ar­stjóri grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn fatl­aðri starfs­konu sinni Karl Ingi Vil­bergs­son, vara­hér­aðs­sak­sókn­ari, hefur ekki enn svarað spurn­ingum Mannlífs sem hann fékk sendar fyrir ell­efu dögum síðan og ítrekun nokkrum dögum síðar. Þá hefur Mannlíf einnig hringt í emb­ættið...
Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“
Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot í jólaboði – Kom grátandi og skelkuð á sjúkrahús
InnlentKynferðisbrot

Dæmdur í tveggja ára fang­elsi fyrir kyn­ferð­is­brot í jóla­boði – Kom grát­andi og skelkuð á sjúkra­hús

Í síð­ustu viku var karl­maður dæmdur sekur fyrir hér­aðs­dóm­stól Aust­ur­lands, um gróft og alvar­legt kyn­ferð­is­brot gagn­vart ungri konu. Brotið framdi hann í jóla­boði fyr­ir­tækis í des­em­ber síð­ast­liðnum. Maðurinn var dæmdur í tveggja ára fang­elsi og þarf að greiða miska­bætur. Samkvæmt Aust­ur­frétt kom konan grát­andi og hrædd á sjúkra­húsið í Nes­kaups­stað aðfar­arnótt 16. des­em­ber í fyrra eftir að brotið hafði verið...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins