„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot í jólaboði – Kom grátandi og skelkuð á sjúkrahús

Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot í jólaboði – Kom grátandi og skelkuð á sjúkrahús
Hér­aðs­dómur Aust­ur­lands

Í síð­ustu viku var karl­maður dæmdur sekur fyrir hér­aðs­dóm­stól Aust­ur­lands, um gróft og alvar­legt kyn­ferð­is­brot gagn­vart ungri konu. Brotið framdi hann í jóla­boði fyr­ir­tækis í des­em­ber síð­ast­liðnum. Maðurinn var dæmdur í tveggja ára fang­elsi og þarf að greiða miska­bætur.

Samkvæmt Aust­ur­frétt kom konan grát­andi og hrædd á sjúkra­húsið í Nes­kaups­stað aðfar­arnótt 16. des­em­ber í fyrra eftir að brotið hafði verið á henni fyrr um nótt­ina. Ókunnur erlendur aðili hafði brotið á henni inni á hót­el­her­bergi Aust­an­lands en hún vakn­aði við að mað­ur­inn var að hafa við hana kyn­ferð­is­mök en hún gat lítið gert til að stöðva mann­inn, sökum ölv­unar og svefn­drunga. Maðurinn hafði sáð­lát í rúm­inu á meðan hún þótt­ist sofa.

Um leið og mað­ur­inn lét sig hverfa fór konan inn á kló­sett hót­el­her­berg­is­ins og hringdi í vin sinn sem ráð­lagði henni að hringja strax í lög­reglu, sem hún gerði. Í fram­haldi af því fór hún á sjúkra­hús til skoð­unar.

Ótrúverðugur framburður

Maðurinn, sem hefur aldrei áður komið við sögu lög­reglu, neit­aði sök í mál­inu en breytti fram­burði sínum tals­vert á meðan rann­sóknin stóð yfir. Þótti dómnum það mjög ótrú­verð­ugt en fram­burður manns­ins var í algjörri mót­sögn við fram­burð kon­unnar.

Í dóms­orði segir að það sé „mat dóms­ins að frá­sögn brota­þola hafi í öllum aðal­at­riðum, og þá í ljósi lýstra aðstæðna, verið ein­læg, var­færin og trú­verðug. […] Að ofan­greindu virtu er að mati dóms­ins ekki var­huga­vert að leggja frá­sögn brota­þola til grund­vallar um atvik máls í öllum aðal­at­riðum. […] Hefur ákærði enga hald­bæra og trú­verð­uga skýr­ingu gefið á hinum sýni­legu lífs­sýnum sem vísað hefur verið til í rann­sókn­ar­gögnum lög­reglu eða á rann­sókn­ar­nið­ur­stöð­unni. Hefur ákærði að mati dóms­ins verið ótrú­verð­ugur í hinum breytta fram­burði sínum og að auki eru skýr­ingar hans harla ósenni­legar í ljósi sér­fræði­gagn­anna.“

Vegna veru­legrar til­finn­inga­rösk­unar og and­legs þján­ingar vegna kyn­ferð­is­brot­ins, krafð­ist konan fjög­urra millj­óna króna miska­bóta. Dómarinn taldi hins vegar að bætur upp á 2,2 millj­ónir dyggðu. Að auki þarf hinn dæmdi að greiða allan sak­ar­kosnað, sem nam í heild sinni 5,2 millj­ónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Kennari misnotaði sérkennslunemanda – Skipaði honum að mæta með byssu og skjóta samstarfsmann
HeimurKynferðisbrot

Kennari mis­not­aði sér­kennslu­nem­anda – Skipaði honum að mæta með byssu og skjóta sam­starfs­mann

Kennari sem beitti 16 ára nem­anda kyn­ferð­is­legu ofbeldi og skip­aði honum að koma með byssu inn í skól­ann til að skjóta sam­starfs­mann hefur verið dæmdur í fjög­urra ára fang­elsi. Imagine Kay Ewer, 28, sat fyrir ung­lingnum, sem nýtur sér­kennslu í námi, og átti „tíð kyn­ferð­is­leg kynni“ með honum í nokkrar vikur. Dómstóll sagði að Ewer hafi verið í trún­að­ar­stöðu, eitt­hvað...
Tilkynningum um kynferðisbrot gegn börnum fjölgar á milli ára
InnlentKynferðisbrot

Til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­brot gegn börnum fjölgar á milli ára

Um 10 pró­sent aukn­ing á til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­brot varð á milli áranna 2023 og 2024. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra. Skýrsla rík­is­lög­reglu­stjóra um kyn­ferð­is­brot hefur nú verið birt. Í skýrsl­unni má finna upp­lýs­ingar um fjölda til­kynn­inga til lög­reglu vegna kyn­ferð­is­brota árið 2024. Tilkynnt brot voru 568 tals­ins, sem er 10% aukn­ing til­kynn­inga frá 2023. Lög­reglan skráir bæði hvenær...
Héraðssaksóknari þegir þunnu hljóði um meint kynferðisbrot á þroskahamlaðri konu
InnlentKynferðisbrot

Hér­aðs­sak­sókn­ari þegir þunnu hljóði um meint kyn­ferð­is­brot á þroska­haml­aðri konu

Vara­hér­aðs­sak­sókn­ari svarar ekki hvort hópur manna verði ákærðir vegna gruns um kyn­ferð­is­brot gegn þroska­haml­aðri konu sem starf­aði fyrir einn mann­anna. Sjá einnig: Versl­un­ar­stjóri grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn fatl­aðri starfs­konu sinni Karl Ingi Vil­bergs­son, vara­hér­aðs­sak­sókn­ari, hefur ekki enn svarað spurn­ingum Mannlífs sem hann fékk sendar fyrir ell­efu dögum síðan og ítrekun nokkrum dögum síðar. Þá hefur Mannlíf einnig hringt í emb­ættið...
Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“
Verslunarstjóri grunaður um kynferðisbrot gegn fatlaðri starfskonu sinni
InnlentKynferðisbrot

Versl­un­ar­stjóri grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn fatl­aðri starfs­konu sinni

Lög­reglan rann­sak­aði mál þar sem hópur manna er grun­aður um að hafa brotið kyn­ferð­is­lega á þroska­haml­aðri konu. Málið er nú á borði hér­aðs­sak­sókn­ara. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var karl­maður sem starfað hafði sem versl­un­ar­stjóri í þekktri versl­un­ar­keðju, nýlega rann­sak­aður af lög­regl­unni vegna gruns um kyn­ferð­is­brot gegn þroska­haml­aðri konu sem starf­aði í versl­un­inni. Ævar Pálmi Pálmason aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hjá kyn­ferð­is­brota­deild lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins