Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
SlúðurorðrómurVeruleikaflótti Hildar25. febrúar 2025 Það getur verið gríðarlega mikilvægt fyrir fólk, sérstaklega í stjórnmálum, að sýna bjartsýni. Slíkt getur verið gott veganesti í að fá annað fólk með sér í lið. Hins vegar er stutt á milli bjartsýni og ranghugmynda, sérstaklega í stjórnmálum. Hlustendur Bylgjunnar fengu að kynnast því þegar Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, lét þau orð falla að hún hefði í...
SlúðurorðrómurSálarlaus Stefán Máni22. febrúar 2025 Þá er Heiða Björg Hilmisdóttir orðin borgarstjóri Reykjavíkur en tilkynnt var um það á fréttamannafundi sem „Kryddpíurnar“ héldu í gær, einmitt á afmælisdegi Heiðu. Á fundinum voru ræddar áherslur þessa nýja meirihluta og er nokkra áhugaverða hluti þar að finna og má kannski helst nefna þá stórkostlegu ákvörðun að leggja niður hin gagnslausu íbúaráð hverfa Reykjavíkur sem hafa lítið gert...
SlúðurorðrómurSamsæriskenning Stefáns Einars21. febrúar 2025 Það er margt hægt að segja um Stefán Einar Stefánsson, fjölmiðlamann Morgunblaðsins, en hann hefur fengið mikla athygli á undanförnum mánuðum fyrir þáttinn Spursmál sem er sýndur á vefsíðu Morgunblaðsins. Sitt sýnist hverjum um gæði þáttarins en greinilegt er að hann hefur vakið lukku hjá mörgum hægri mönnum á landinu. Ábyrgð Stefáns er mikil enda er trúverðugleiki fjölmiðlamanna gífurlega mikilvægur,...
SlúðurorðrómurÍslenska Höllu forseta20. febrúar 2025 Það getur verið erfitt að vera forseti og hefur Halla Tómasdóttir fengið að kynnast því frá því að hún tók við embættinu í fyrra. Nýjasta vesen Höllu kom upp í janúar þegar hún ákvað að sóla sig í Dóminíska lýðveldinu í fjölskyldufríi í stað þess að mæta í minningarathöfn um helförina í Auschwitz. Þá hjálpuðu óskýr svör embættisins um skipulag...
SlúðurorðrómurGuðrún slapp frá súrmatnum19. febrúar 2025 Eins og greint var frá í Mannlífi kom upp matareitrun á þorrablóti Jökuldælinga í Brúarásskóla fyrir austan þar sem Guðrún Hafsteinsdóttir, alþingismaður og frambjóðandi til formennsku í Sjálfstæðisflokknum, var stödd. Mannlíf hefur ítrekað reynt að ná sambandi við Guðrúnu til að fá upplýsingar um ástand hennar. Hún hefur í engu svarað og var uppi ótti um að óværan hefði lagst...
SlúðurorðrómurPirraður Júlí Heiðar18. febrúar 2025 Mikil spenna ríkir meðal Íslendinga vegna Eurovision og kemur í ljós á laugardaginn hvaða flytjendur taka þátt í keppninni fyrir hönd Íslands. Ef marka má hlustanir á Spotify og athygli á samfélagsmiðlum þá stefnir í að VÆB bræðurnir Matthías Davíð og Hálfdán Helgi Matthíassynir sigri auðveldlega. Vinsældir þeirra meðal almennings virðast vera talsvert meiri en annarra keppenda. Hafa vinsældir þeirra...
SlúðurorðrómurSkafti og Skrímsladeildin17. febrúar 2025 Einhver undartlegustu samtök landsins eru Samtök skattgreiðenda sem rísa upp með reglulegu millibili til að ganga erinda Skrímsladeildar Sjálfstæðisflokksins sem gjarnan er talin vera til heimilis í Hádegismóum. Fótgönguliði samtakanna og skráður formaður er Skafti nokkur Harðarson sem heldur sig í skugganum á milli verkefna. Eftir að stjórnlagaþing lauk störfum sínum með skynsamlegri niðurstöðu voru samtök Skafta kölluð til að...
SlúðurorðrómurHallarbylting Áslaugar16. febrúar 2025 Gríðarleg harka er hlaupin í formannsslag þeirra Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur og Guðrúnar Hafsteinsdóttur. Á hverfisfundi í Fossvogi í fyrradag þykjast stuðningsmenn Guðrúnar merkja að smalað hafi verið fyrir Áslaugu til að tryggja að hennar fulltrúar næðu inn á landsfund. Barist er um öll sæti á landsfundinum þar sem fulltrúarnir munu ráða hver verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins í stað Bjarna Benediktssonar...
SlúðurorðrómurHrollvekja hjá Herdísi15. febrúar 2025 Staðan hjá fjölmiðlarisanum Sýn er beinlínis skelfileg ef litið er til gengis hlutabréfa félagsins á markaði. Hlutabréfin náðu sögulegum botni á föstudaginn. Verðmæti félagsins er nú einungis þriðjungur þess sem talið er að fáist með því að leysa það upp. Ofan á vantrú markaðarins bætist að fólksflótti er frá félaginu. Nú síðast tók Heimir Már Pétursson fréttamaður hatt sinn og...
SlúðurorðrómurHulduherinn með Guðrúnu14. febrúar 2025 Það stefnir í æsispennandi baráttum um formannsstólinn hjá Sjálfstæðisflokknum. Eins og staðan er núna þá stefnir í einvígi á milli þingmannanna Guðrúnar Hafsteinsdóttur og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur. Þar gæti orððið jafnt á munum. Guðrún var með kynningu á framboði sínu í Salnum í Kópavogi. Troðfullt var á fundinum og stuðningsmenn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar var áberandi. „Gullafólk, þingmenn og kanónur klöppuðu...
SlúðurorðrómurSkúffusamtök gegn Ingu13. febrúar 2025 Mogginn heldur áfram herferð sinni á hendur Ingu Sæland og Flokki fólksins með uppslætti dagsins þar sem því er lýst að Samtök skattgreiðenda skori á ríkissaksóknara að hjóla í þá sem hafa ólöglega fengið styrki úr ríkissjóði vegna stjórnmálastarfs. Flokkur fólksins er þar efstur á blaðið og verður gjaldþrota ef til þess kemur að hann þurfi að endurgreiða. Vandinn er...
SlúðurorðrómurHeimir í faðm Ingu12. febrúar 2025 Heimir Már Pétursson fréttamaður, einn lykilmanna fréttastofu Stöðvar 2, er flúinn í faðm Ingu Sæland og verður framkvæmdastjóri Flokks fólksins. Heimir, sem kominn er af léttasta skeiði, bætist þar með í stóran hóp starfsmanna Sýnar sem yfirgefa vinnustaðinn. Ólga hefur verið innan Sýnar og stöðugur fólksflótti. Þá er gengi félagins á hlutabréfamarkaði það lægsta sem verið hefur um langt árabil...