Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
SlúðurorðrómurÞarfleysa Snorra10. janúar 2025 Það er ekki á hverjum degi sem alþingismenn ákveða að birta þúsund orða grein á Vísi vegna hugleiðinga almennings á samfélagsmiðlum um framtíð Íslands en það er nákvæmlega það sem Snorri Másson, tilvonandi þingmaður Miðflokksins, gerði í gær. Sá einstaklingur sem ritaði hugleiðinguna er Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrum þingmaður Samfylkingarinnar, en hann sat á Alþingi fyrir flokkinn frá...
SlúðurorðrómurStarfsmenn flýja Herdísi10. janúar 2025 Ólga er innan stjórnendateymis fjölmiðlarisans Sýnar. Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri samsteypunnar, kom til starfa um miðjan janúar 2024. Ári síðar brenna eldar óyndis innan Sýnar og lykilfólk segir upp störfum. Orðrómurinn á göngum Sýnar er að nýji forstjórinn ráði illa við starfið. Hún er sökuð um klíkuráðningar, meðal annars þegar hún réði Kristjönu Thors Brynjólfsdóttur, sem framkvæmdastjóra Miðla og efnisveitna....
SlúðurorðrómurLeyndarmál Þorvaldar9. janúar 2025 Mikil gremja er byrjuð að myndast í hjörtum stuðningsmanna íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu en rúmar sex vikur eru síðan Åge Hareide tilkynnti um að hann myndi hætta þjálfun liðsins. Ljóst var um leið að Arnar Gunnlaugsson og Freyr Alexandersson yrðu ofarlega á blaði hjá KSÍ í leitinni að næsta landsliðsþjálfara. Þrír menn voru að lokum boðaðir í viðtal hjá sambandinu...
SlúðurorðrómurSótt að Sigurði Inga9. janúar 2025 Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, er á hengiflugi þess að vera felldur úr embætti ef hann lætur ekki segjast og stígur til hliðar eftir afhroð Framsóknarflokksins. Afsögn Bjarna Bendiktssonar eykur enn þrýsting á Sigurð að axla sína ábyrgð. Mikil óánægja er innan flokksins. Varaformaðurinn, Lilja Alfreðsdóttir, staðfesti í fjölmiðlum óánægjuna og sagði að sterkur vilji væri meðal flokksmanna að flýta...
SlúðurorðrómurÞöggunarkynslóð Mörtu Maríu8. janúar 2025 Fjölmiðlakonan Marta María Winkel Jónasdóttir gefur lítið fyrir þá gagnrýni sem hún fékk eftir að hafa sett út á klæðnað Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, á máta sem mörgum fannst ósmekklegt og ósæmandi blaðamanni. Það má þó vera að Marta hafa bakað sér enn meiri vandræði með nýjustu ummælum sínum um málið en í Spursmálum sagði hún gagnrýnendur sína vera...
SlúðurorðrómurHannes og örvæntingin8. janúar 2025 Uppgjörið við Bjarna Benediktsson innan Sjálfstæðisflokksins er hafið. Leitað er ákaft að nýjum formanni sem hafi til þess burði að leiða flokkinn til þess hásætis sem var áratugum saman. Vandinn er sá að í valdakjarna flokksins er enginn sýnilegur til að taka við kaleiknum. Sú gamla speki um að fátt þrífist í skjóli stóru eikarinnar er í fullu gildi. Örvænting...
SlúðurorðrómurHvalreki Guðmundar Ara7. janúar 2025 Mikið hefur verið sagt og skrifað um þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar að hætta á Alþingi og sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Ljóst er að slíkt mun hafa í för með sér miklar breytingar innan flokksins og líklegt að hörð barátta verði um formannsstólinn. Þetta hefur hins vegar í för með sér að Jón Gunnarsson mun halda þingsæti sínu en hann skipaði fimmta...
SlúðurorðrómurBrandarinn um Stefán E.7. janúar 2025 Sú ákvörðun Bjarna Benediktssonar, nýkjörins alþingismanns, að hætta sem formaður virðist hafa komið einhverjum í opna skjöldu. Þetta hefur þó legið í loftinu og gríðarleg óánægja hefur verið með stjórntök hans og fylgistap flokksins sem þykir vera til háðungar. Bjarni var sjálfur kokhraustur fram til þess síðasta og sagði í Kryddsíldinni að það væri „blaðamannablaður“ að óánægja grasseraði í flokknum....
SlúðurorðrómurHjartalag Þorgerðar6. janúar 2025 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttur utanríkisráðherra ákvað í gær að að Ísland myndi greiða framlög til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna fyrr en stefnt var að. Þessi ákvörðun ráðherrans er tekin í ljósi þessu hörmulega ástands sem ríkir á á Gasasvæðinu þar sem Ísraelsmenn eru sakaðir um þjóðarmorð. Þorgerður Katrín heldur því fram að öruggt sé að alþjóðalög hafi verið brotin á svæðinu og...
SlúðurorðrómurHannes afhjúpar sig5. janúar 2025 Hannes Hólmsteinn Gissurarson, fyrrverandi prófessor, hefur aldrei verið eins hamingjusamur og þessa dagana. Þetta kemur fram í viðtali Kolbrúnar Bergþórsdóttur, blaðamanns Morgunblaðins, við hann. Hannes hefur verið duglegur að pósta á Facebook myndum af sér og öðrum glæsimennum í Brasilíu. Hann segist í viðtalinu búa til skiptis á Íslandi og í Brasilíu. Á ýmsu hefur þó gengið á ferðalögum hans...
SlúðurorðrómurSparnaður Sigríðar5. janúar 2025 Sigríður Andersen er mætt aftur á Alþingi Íslendinga en í þetta sinn fyrir hönd Miðflokksins eftir að kom í ljós að hún hafði ekki lengur hljómgrunn í Sjálfstæðisflokknum. Í tilefni þess að Valkyrjustjórnin opnaði samráðsgátt þar sem almenningur er hvattur til að setja fram hugmyndir um sparnað í ríkisfjármálum stakk dómsmálaráðherrann fyrrverandi upp á því í viðtali að leggja niður...
SlúðurorðrómurFramtíð Svandísar4. janúar 2025 Það er ýmislegt hægt að segja um Svandísi Svavarsdóttur, formann Vinstri Grænna og fyrrverandi ráðherra, en það verður seint sagt að hún láti í minni pokann fyrir mótmælti. Slíkt er greinilegt í pistli sem ráðherrann fyrrverandi skrifaði til flokksmanna nú um áramótin. Í pistlinum er skýrt að hún vill halda áfram sem formaður flokksins þrátt fyrir að hann hafi misst...