Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
MenningÓðinn Jóns: „Nú er tækifæri, hugsar Einar, en gleymir kannski að aðrir gætu haft aðrar hugmyndir“10. febrúar 2025 Óðinn Jónsson segir það ekki koma á óvart að Einar Þorsteinsson „langi aftur heim til sjallanna“. Fyrrverandi fréttastjóri RÚV, Óðinn Jónsson, skrifaði í gær Facebook-færslu þar sem hann hálf partinn eignar sér árangur Einars Þorsteinssonar í borgarpólitíkinni. „Stundum hef ég hugsað með sjálfum mér og jafnvel upphátt að Einar Þorsteinsson hefði i mesta lagi orðið bæjarstjóri sjálfstæðismanna í Kópavogi en...
InnlentGengi Sýnar ekki verra í mörg ár – Herdís sögð vera á hættusvæði10. febrúar 2025 Gengi hlutabréfa í Sýn hefur ekki verið lægra síðan sumarið 2020 eftir að gengi þess tók dýfu í kjölfar afkomuviðvörunar sem fyrirtækið sendi frá sér á föstudaginn. Gengi félagsins er í dag 24,6 krónur og er það tæplega 50% lægra en fyrir ári síðan. Ljóst er að starf Herdís Drafnar Fjeldsted forstjóra er í mikilli hættu en hún tók við...
InnlentAfkomuviðvörun og örvænting hjá Sýn – Rætt um að loka útvarpsstöðvum og breyta nafni Stöðvar 28. febrúar 2025 Ákveðin örvænting er ríkjandi innan Sýnar eftir að komið er á daginn að afkoman er mun verri en Herdís Fjeldsted forstjóri og stjórn félagsins hafði haldið fram. Félagið sendi frá sér afkomuviðvörun í gær þar sem tíundað er að sala auglýsinga sé undir markmiðum og áskriftasala hafi brugðist. Þá er eldsvoða kennt um verri fjárhag. . Gert er ráð fyrir...
InnlentSkotárásBendir á misræmi í umfjöllun um fjöldaskotárásir: „Kannski ættum við að giska á hvers vegna …“7. febrúar 2025 Karen Kjartansdóttir bendir á misræmi í fréttaumfjöllun um fjöldaskotárásir og veltir fyrir sér af hverju Rickard Andersson, sem skaut 10 til bana í Örebro á dögunum, hafi ekki verið sagður hafa fylgt róttækri hugmyndafræði en hann heyrðist öskra á sýrlensk fórnarlömb sín um að fara aftur heim til sín. Stjórnendaráðgjafinn Karen Kjartansdóttir skrifaði Facebook-færslu í gær þar sem hún talar...
InnlentþjóðarmorðLastar blaðamannafund Trumps: „Djöfullinn sá situr við hlið hans, brosandi stoltur þjóðarmorðingi“6. febrúar 2025 Hallgrímur Helgason gagnrýnir bandaríska fjölmiðla sem lét Donald Trump komast létt frá blaðamannafundi hans og Benjamins Netanyahu í Hvíta húsinu í gær. Donald Trump heldur áfram að sjokkera heiminn með aðgerðum sínum og orðum en í gær lýsti hann þeim draumi sínum að reka alla Gaza-búa af Gaza og búa þar til sumarleyfisparadís í eigu Bandaríkjanna. Mörgum fannst blaðamenn sleppa...
InnlentHallgrími bannað að gagnrýna Morgunblaðið1. febrúar 2025 Undanfarnar vikur hefur Inga Sæland verið í bobba vegna tveggja mála sem upp hafa komið en hægt að kalla þau „Styrkjamálið“ og „Skómálið“ og eins og eðlilegt þykir hafa íslenskir fjölmiðlar verið duglegir við að fjalla um þau mál. Sumum þykir þó Morgunblaðið hafi farið of hart í Ingu og blaðamenn sakaðir um að tækla manninn fremur en boltann. Þá...
InnlentFjölmiðlanefnd afhjúpaði nafn kvartanda – Persónuvernd krefst svara29. janúar 2025 Fjölmiðlanefnd taldi sig knúna til þess að gefa upp nafn kvartanda þrátt fyrir að hafa boðið honum nafnleynd. Einstaklingur sendi kvörtun til Fjölmiðlanefndar í september 2023 vegna meints hagsmunaáreksturs hjá mbl.is. Þar hafði blaðamaður Morgunblaðsins birt pistil um ferð sína um vínekrur úti í löndum en svo vildi til að sami blaðamaður flutti sjálfur inn sum þeirra vína sem hann...
MenningKúltúrinnSkýtur föstum skotum á Morgunblaðið: „Segðu nei takk“28. janúar 2025 Björn Birgisson gefur Facebook-vinum sínum ráð ef ske kynni að Morgunblaðið óskaði eftir viðtali. Samfélagsrýnirinn og fyrrverandi ritstjórinn Björn Birgisson skrifaði færslu í dag þar sem hann skýtur föstum skotum á Morgunblaðið, sem hefur að undanförnu fjallað af áfergju um styrkjamál Flokk fólksins en nú hefur komið í ljós að fleiri flokkar hafi þegið styrki án þess að fara í...
InnlentReynir Grétarsson er einn aðaleigenda Sýnar: „Ég hef áhyggjur ef ég heyri að fólk sé að hætta“26. janúar 2025 „Ég hef áhyggjur ef ég heyri að fólk sé að hætta í fyrirtækinu og að fólki líði ekki vel af einhverjum ástæðum. Það er aldrei gott,“ segir Reynir Grétarsson, einn aðaleigenda fjölmiðlarisams Sýnar, í samtali við Morgunblaðið. Mikil ólga er innan fyrirtækisins og fjöldi lykilstarfsmanna er hættur störfum. Fyrirtækið hefur ekk traust fjárfesta og er lágt metið á markaði. Reynir...
InnlentInga Sæland lætur „falsfjölmiðla“ heyra það: „Koma fram við fólk eins og fífl“22. janúar 2025 Inga Sæland lætur Morgunblaðið heyra það í Facebook-færslu sem hún birti í kvöld. „Ég vil senda ykkur öllum hjartans þakkir fyrir að standa vaktina með okkur þegar þeir sem tapað hafa völdum eyða allri sinni orku í að sverta Flokk fólksins sem mest þeir mega. Alþingi ekki einu sinni komið saman hvað þá að þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar hafi komið fram.“ Þannig...
InnlentBróðir Kolbrúnar látinn fjúka frá Sýn – Starfsmenn sagðir óttast atvinnumissi22. janúar 2025 Steini Kára Ragnarssyni og Ingva Steinari Ólafssyni, viðskiptastjórum hjá Sýn, hefur verið sagt upp störfum hjá fyrirtækinu en DV greindi frá uppsögn Steins fyrr í dag og einnig að öðrum viðskiptastjóra hafi verið sagt upp. Heimildir Mannlífs herma að sá maður sé Ingvi Steinar Ólafsson en hann vildi ekki tjá sig við Mannlíf þegar hann var spurður út í málið....
InnlentKolbrún segist kveðja starfsmenn Sýnar með söknuði: „Ég læt mér ekki leiðast“21. janúar 2025 Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir er hætt sem yfirmaður auglýsingamála Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar en frá þessu greindi DV í gær. Kolbrún Dröfn er því fjórða konan sem gegnir lykilstöðu innan fyrirtæksins sem hættir á árinu. Auk Kolbrúnar hafa Þóra Björg Clausen, Eva Georgs. Ásudóttir og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir allar tilkynnt á árinu um starfslok sín hjá Sýn. Heimildir Mannlífs herma...