„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gengi Sýnar ekki verra í mörg ár – Herdís sögð vera á hættusvæði

Gengi Sýnar ekki verra í mörg ár – Herdís sögð vera á hættusvæði
Herdís Dröfn Fjeld­sted, for­stjóri Sýnar.

Gengi hluta­bréfa í Sýn hefur ekki verið lægra síðan sum­arið 2020 eftir að gengi þess tók dýfu í kjöl­far afkomu­við­vör­unar sem fyr­ir­tækið sendi frá sér á föstu­dag­inn. Gengi félags­ins er í dag 24,6 krónur og er það tæp­lega 50% lægra en fyrir ári síðan.

Ljóst er að starf Herdís Drafnar Fjeld­sted for­stjóra er í mik­illi hættu en hún tók við starf­inu í jan­úar 2024 og ekki tek­ist að rétta hlut félags­ins en aðeins tvö og hálft ár eru síðan það var daðra við gengi upp á 70 krónur.

Mikil starfs­manna­velta hefur verið hjá fólki í lyk­il­stöðum hjá Sýn síðan Herdís tók við en að minnsta kosti 13 lyk­il­starfs­menn hafa hætt hjá fyr­ir­tæk­inu á þeim tíma. Meðal þeirra sem hafa horfið á braut eru Kristín Frið­geirs­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri félags­ins, Sesselía Birg­is­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Vodafone fjar­skipta og Vilborg Helga Harð­ar­dóttir en hún stýrði vef­miðlum og útvarpi hjá Sýn.

Samdráttur í áskriftum

Heim­ildir Mannlífs herma að innan félags­ins sé ákveðið ráða­leysi og ákaft leitað leiða til að snúa við óheilla­þró­un­inni. Kvisast hefur út að til standi að breyta nafni og vöru­merki Stöðvar.

„Við fengum þær fréttir á göng­unum að það ætti að fara í rebr­and­ing á félag­inu,“ segir heim­ild­ar­maður Mannlífs sem vill ekki koma fram undir nafni af ótta við að vera rek­inn. Þá er full­yrt að til skoð­unar sé að loka tveimur útvarps­stöðvum, FM957 og X977 sem báðar hafi verið reknar með tapi. Þetta er þó ekki stað­fest.

Samkvæmt til­kynn­ingu sem Sýn sendi Kaup­höll­inni hefur ekki gengið jafn vel og gert var ráð fyrir vegna lækk­unar aug­lýs­inga­tekna, sam­dráttar í áskrift­ar­tekjum sjón­varps, minni eign­færslna á launa­kostn­aði og óvænts tjóns vegna elds­voða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins