Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
InnlentSegir skrif efnahagsráðgjafa VR vekja furðu: „Stenst enga skoðun“22. júlí 2020 Aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins furðar sig á skrifum efnahagsráðgjafa VR um Samtök atvinnuvinnulífsins í tengslum við kjaraviðræður Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair. Henni finnst nær að sammælast um að bjarga störfum í landinu heldur en að bera á samtökin tilhæfulausar ásakanir. „Það er auðvitað fráleitt að halda því fram að við séum að hafna samningum við íslenskt launafólk. Ég skil ekki hvernig...
InnlentRagnar Þór krefur Jóhannes um svör: „Hverjir fengu greiddar tæpar 685 milljónir í þóknanir“21. júlí 2020 Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Jóhannes Stefánsson, framkvæmdastjóri Lindarvatns ehf., hafa átt í hörðum skoðanaskiptum á samfélagsmiðlum vegna framkvæmda á Landssímareitnum. Deilur þeirra hófust með skrifum Ragnars Þórs í gær um meint „brask og brall“ stjórnenda Icelandair og Samtaka atvinnulífsins og aðkomu þeirra að uppbyggingu á Landsímareitnum Ragnar Þór sagði þar að 700 milljónum króna hefði verið skotið undan....
Innlent„Ef Boga tekst að berja svo niður laun annars starfsfólks verður hann örugglega verðlaunaður“21. júlí 2020 Gunnar Smári Egilsson hjólar í Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair. „Ef Boga tekst að berja svo niður laun annars starfsfólks og krækja í ríkisframlag fyrir nýja eigendur verður hann örugglega verðlaunaður með nýjum kauprétti, líklegast enn stærri hlut í endurreistu félagi,“ segir sósíalistaforinginn Gunnar Smári Egilsson, með vísan í kjaradeilu Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair. Gunnar Smári tjáir sig um málið...
InnlentCovid-19Vilja klára alla samninga fyrir mánaðarmót21. júlí 2020 Icelandair vinnur að því að klára samninga við lánardrottna, stjórnvöld og Boeing fyrir næstu mánaðamót. Framkvæmdastjóri fjármálasviðs Icelandair segir viðræður við umrædda aðila ganga vel. Icelandair stefnir að því að klára samninga við fimmtán lánardrottna, stjórnvöld og flugvélaframleiðandann Boeing fyrir næstu mánaðamót áður en farið verður í hlutafjárútboð í ágúst, að þvi er fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Þar...
InnlentSegir lausnina í deilum Icelandair og flugfreyja vera eitur í beinum aðgerðarsinna20. júlí 2020 Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra og þingmaður lætur verkalýðshreyfinguna heyra það. Segir að „jaðarsettu verkalýðsrekendurnir sem vildu níðast á Icelandair með fé lífeyrissjóðseigenda“ í kjaradeilu Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands hljóti að sæta rannsókn fjármálaeftirlitsins. „Öfgafullum andstæðingum Icelandair verður tíðrætt um „afleik“ Icelandair. Hann leiddi þó til niðurstöðu og lausnar sem er eitur í beinum aðgerðarsinnanna,“ skrifar Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra og...
InnlentVilhjálmur segir atvinnulífið hafa notað lífeyri launafólks eins og botnlausan sparibauk20. júlí 2020 Formaður Verkalýðsfélags Akraness gefur lítið fyrir „hneykslan“ margra fulltrúa atvinnulífsins vegna vilja verkalýðshreyfingarinnar til að „verja samningsrétt hins vinnandi manns“. Hann segir þá greinilega hafa gleymt því að lífeyrissjóðirnir hafi tapað 500 milljörðum í bankahruninu vegna botnlausrar græðgi atvinnulífsins. „Nú stendur bunan og hneykslan upp úr fulltrúum atvinnulífsins vegna þess að verkalýðshreyfingin vildi verja grunvallar réttindi launafólks sem er samningsrétturinn....
InnlentCovid-19Ólíklegt að Icelandair verði gjaldþrota20. júlí 2020 Sérfræðingur í flugrekstri telur litlar líkur á því að flugrekstur Icelandair stöðvist vegna áhrifa COVID-19. „Ríkisstjórnin mun örugglega gera allt sem þarf til að styðja við fyrirtækið í ljósi mikilvægi þess fyrir landið. Icelandair er líka þekkt vörumerki og með gott orðspor líkt og ráðamenn þjóðarinnar eru vafalítið meðvitaðir um. Eyríki í miðju Atlantshafi getur heldur ekki tekið áhættuna hvað...
InnlentRagnar Þór vill atvinnurekendur úr stjórnum lífeyrissjóðanna20. júlí 2020 Formaður VR vill að félagar lífeyrissjóða kjósi sjálfir stjórnir sjóðanna. „Það er löngu tímabært að sjóðfélagar rísi upp og krefjist þess að atvinnurekendur fari úr stjórnum lífeyrissjóðanna,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. Ragnar Þór tjáir sig um málið á Facebook og segir ástæðuna einfalda. „Lífeyrissjóðir landsmanna hafa verið misnotaðir með skelfilegum hætti af fjárglæframönnum atvinnulífsins árum og áratugum saman,“...
InnlentCovid-19Flugfreyjur og Icelandair undirrita nýjan samning: „Nú fer vonandi að sjást til sólar“19. júlí 2020 Samninganefnd Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair hafa undirritað nýjan kjarasamning. Uppsagnir flugfreyja hafa verið teknar til baka. „Þetta eru búnir að vera mjög erfiðir dagar. Nú fer vonandi að sjást til sólar og við förum að horfa á bjartari tíma,“ sagði Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, FÍÍ, í samtali við RÚV eftir að samninganefnd félagsins og Icelandair undirrituðu nýjan kjarasamning...
InnlentCovid-19Sólveig Anna hvetur flugmenn til að taka ekki þátt í svívirðilegri framkomu Icelandair18. júlí 2020 Formaður Eflingar gagnrýnir harkalega ákvörðun Icelandair að segja upp flugfreyjum og láta flugmenn tímabundið starfa sem öryggisliða um borð í vélum sínum. „Ég hef aldrei vitað annað eins: Karlar ætla að ganga í störf kvenna sem verða fyrir eins ógeðslegri framkomu og hægt er að hugsa sér, eru reknar úr starfi eins og eitthvað drasl, þrátt fyrir ára og áratuga...
InnlentDrífa Snædal um ákvörðun Icelandair: „Þetta verður ekki látið viðgangast“17. júlí 2020 Forseti ASÍ segir að ákvörðun Icelandair, um að segja upp flugfreyjum og láta flugmenn tímabundið starfa sem öryggisliða um borð í vélum sínum, verði mætti með hörku. „Þeir eru að sýna starfsfólki sínu fullkomna lítilsvirðingu og þetta verður ekki látið viðgangast. Það er verið að leita allra leiða til að bregðast harkalega við þessu,“ segir Drífa Snædal, forseti ASI, í...
InnlentSegja Icelandair verða að ganga til samninga við starfsfólk sitt17. júlí 2020 ASÍ segir Icelandair ekki hafa val um annað en að ganga til samninga við starfsfólk. „Icelandair er nauðugur sá kostur að virða sitt starfsfólk og ganga til kjarasamninga við stéttarfélög þeirra ef fyrirtækið ætlar að vera húsum hæft í íslensku samfélagi,“ segir í yfirlýsingu sem var send út eftir fund forsetateymis ASÍ ásamt formönnum fjögurra stéttarfélaga í gær. Þar var...