„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir skrif efnahagsráðgjafa VR vekja furðu: „Stenst enga skoðun“

Segir skrif efnahagsráðgjafa VR vekja furðu: „Stenst enga skoðun“
Ásdís Krist­jáns­dóttir, bæj­ar­stjóri Kópavogs

Aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins furðar sig á skrifum efna­hags­ráð­gjafa VR um Samtök atvinnu­vinnu­lífs­ins í tengslum við kjara­við­ræður Flug­freyju­fé­lags Íslands og Icelandair. Henni finnst nær að sam­mæl­ast um að bjarga störfum í land­inu heldur en að bera á sam­tökin til­hæfu­lausar ásak­anir.

„Það er auð­vitað frá­leitt að halda því fram að við séum að hafna samn­ingum við íslenskt launa­fólk. Ég skil ekki hvernig það getur verið nið­ur­staða efna­hags­ráð­gjafa VR. Það stenst bara enga skoðun,“ segir Ásdís Krist­jáns­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins um pistil Guðrúnar Johnsen, dokt­ors í hag­fræði og efna­hags­ráð­gjafa VR, Veröld sem verður, sem birt­ist á Kjarn­anum þann 20. júlí.

„Í stað þess að saka okkur um að mæra samn­inga umfram aðra væri ekki lag ef við sam­mæl­umst um að bjarga störfum í land­inu.“

Gagnrýndi forystu Samtaka atvinnulífsins

Í pistl­inum gerir Guðrún athuga­semdir við skoð­anapistil Ásdísar, Veröld sem var, sem birt­ist á Vísi þann 14. júlí, þar sem Ásdís segir að þau flug­fé­lög, sem Icelandair ber sig helst saman við, hafi á liðnum árum gert veiga­miklar breyt­ingar á kjara­samn­ingum við flug­á­hafnir, flug­menn og flug­freyjur, sem fela í sér minni kostnað fyrir fyr­ir­tækin.

„Sú þróun er nauð­syn­leg og eðli­legt fram­hald af því að síð­ustu tutt­ugu ár hefur fjöldi flug­fé­laga sprottið upp með allt annað og ódýr­ara launa­fyr­ir­komu­lag en áður þekkt­ist,“ skrifar Ásdís í pistli sínum í Frétta­blað­inu og bætir við að dor­svars­menn Play hafi gefið út að félagið hafi gert kjara­samn­ing um störf flug­freyja og flug­þjóna sem fela í sér allt að 27 pró­sent lægri launa­kostnað en tíðk­að­ist hjá Wow air vegna sömu starfa. „En Wow air var með um 30 pró­sent hag­stæð­ari samn­inga við FFÍ en Icelandair.“

Guðrún staldrar við þessi ummæli Ásdísar og segir að „með því að mæra samn­inga milli flug­fé­lags sem ekki hefur hafið dag­legan rekstur um veru­lega lækkun launa þeirra starf­stétta ófag­lærðra, sem einmitt er fjallað um í rann­sóknum Case og Deaton, niður á ósjálf­bært plan miðað við íslenskan veru­leika er ekki hægt að skilja það öðru vísi en svo að núver­andi for­ystu­fólk SA hvetji aðild­ar­fé­lög sín til að hafna samn­ingum við íslenskt launa­fólk.“

Brýnt að bjarga störfum í landinu

Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Ásdís vera undr­andi á þessum skrifum Guðrúnar og segir það lengi hafa legið fyrir að Icelandair þyrfti að aðlag­ast breyttu lands­lagi í flug­heim­inum líkt og önnur erlend flug­fé­lög hafa verið að gera.

„Hjá Icelandair eru greidd há laun og hærri en þau sem við sjáum hjá öðrum erlendum flug­fé­lögum fyrir sam­bæri­leg störf,“ bendir hún á. „Ef Icelandair bregst ekki við breyttum veru­leika verður félagið ein­fald­lega undir í sam­keppn­inni og þá verða engin laun greidd áfram til þeirra fimm þús­und starfs­manna sem starfa í dag hjá félag­inu.

Í stað þess að saka okkur um að mæra samn­inga umfram aðra væri ekki lag ef við sam­mæl­umst um að bjarga störfum í land­inu. Hjá Icelandair starfa þús­undir félags­manna VR og það verður að segj­ast eins og er að þessi skrif efna­hags­ráð­gjafa VR vekja furðu.“

Rangt að SA sé loka á aðgang aðildarfélaga að íslensku fjármagni

Í sam­tali við Mannlíf segir Ásdís enn­fremur að flug­freyjur og flug­þjónar hjá Icelandair fái jafnan hærri laun en hjá sam­bæri­legum flug­fé­lögum fyrir sömu störf. Þá séu laun þeirra í dag almennt hærri en með­al­laun í land­inu og laun háskóla­mennt­aðra ein­stak­linga, enda lengi verið mikil ásókn í þessi störf m.a. hjá háskóla­mennt­uðu fólki. Gangi áform Icelandair eftir verði flug­freyjur og flug­þjónar áfram með há laun en félagið þó sam­keppn­is­hæf­ara á alþjóða mörk­uðum.

„Það er því óskilj­an­legt hvernig efna­hags­ráð­gjafi VR kemst að þeirri nið­ur­stöðu að með breyt­ingum á kjörum starfs­manna verði nið­ur­þjöppun launa hér á landi svo mikil að hún leiði til auk­innar fátæktar og ójöfn­uðar sem sam­ræm­ist ekki mark­miðum SÞ,“ segir Ásdísar og vísar þar til þeirra orða Guðrúnar að SA loki leiðum fyrir aðild­ar­fé­lög sín til að njóta aðgengis að íslensku fjár­magni, að stærstum hluta, „enda sam­ræm­ist nið­ur­þjöppun launa sem leiðir til auk­innar fátæktar og ójöfn­uðar ekki mark­miðum SÞ um sjálf­bæra þróun, sjálf­bæran hag­vöxt án aðgrein­ingar, fullri, arð­bærri og mann­sæm­andi atvinnu fyrir alla, né heldur meg­in­reglum um ábyrgar fjár­fest­ingar, sem íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafa geng­ist undir í fjár­fest­ing­ar­stefnum sínum. Það geti varla verið vilji aðild­ar­fé­lag­anna sjálfra?“

„Það er því óskilj­an­legt hvernig efna­hags­ráð­gjafi VR kemst að þeirri nið­ur­stöðu að með breyt­ingum á kjörum starfs­manna verði nið­ur­þjöppun launa hér á landi svo mikil að hún leiði til auk­innar fátæktar og ójöfn­uðar sem sam­ræm­ist ekki mark­miðum SÞ.“

Ásdís furðar sig á þessum skrifum Guðrúnar. „Ég myndi fremur ætla að ef félagið hefði ekki gripið til nauð­syn­legra aðgerða þá væri eng­inn fjár­festir, hvorki líf­eyr­is­sjóðir né aðrir, að fara að setja fjár­magn inn í ósjálf­bæran rekstur, hvort sem er hjá Icelandair ná öðrum fyr­ir­tækjum sem þurfa að sækja sér fjár­magn. Það er því ill­skilj­an­lega full­yrð­ing hjá ráð­gjafa VR að halda því fram að SA sé að loka á aðgang aðild­ar­fé­laga að íslensku fjár­magni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

frétt

Gunnar í Krossinum í lífshættu: „Læknirinn sagði að ég væri heppinn að vera á lífi“
Innlentfrétt

Gunnar í Kross­inum í lífs­hættu: „Lækn­ir­inn sagði að ég væri hepp­inn að vera á lífi“

„Um þetta leyti í fyrra var mér tæp­ast hugað líf,“ segir Gunnar Þor­steins­son, Gunnar í Kross­inum, í við­tali við Reyni Trausta­son. Hann hefur mest­megnis dvalið á Spáni und­an­farin tvö ár en þó með hléum og var orð­inn það veikur í fyrra­vor að hann átti erfitt með að fara á milli húsa. Hann fór á sjúkra­hús í Tor­revi­eja þar sem hann...
Gunnar Þorsteinsson fyrirgaf morðingja móður sinnar: „Hann var bara kolóður“
Innlentfrétt

Gunnar Þor­steins­son fyr­ir­gaf morð­ingja móður sinnar: „Hann var bara kolóður“

Móðir Gunnars Þor­steins­sonar, Gunnars í Kross­inum, var myrt fyrir rúmum tveimur ára­tugum. Í við­tali við Mann­lífið með Reyni Trausta­syni segir Gunnar að það fyrsta sem hann hafi gert hafi verið að fyr­ir­gefa morð­ingja hennar. „Ég ætla ekki að fara að hata ein­hvern mann og vera bund­inn ein­hverri hat­ur­s­taug. Það versta var vikan eftir morðið þegar fjöl­miðlar voru á mér dag...
Leit björgunarsveita að starfsfólki Veðurstofunnar, fólkið fundið
Innlentfrétt

Leit björg­un­ar­sveita að starfs­fólki Veð­ur­stof­unnar, fólkið fundið

Um­fangs­mik­il leit björg­un­ar­sveita stóð í dag yfir á Reykja­nesskaga í grennd við Keili, þar sem karl og kona, starfs­fólk Veð­ur­stofu Íslands var týnt Meðal ann­ars var þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar ræst. Vís­inda­menn­irnir voru við rann­sóknir á jarð­skálfta­svæð­inu en þegar ljóst var að þau voru týnd var gripið til mik­ils við­bún­aðar, ekki síst vega mjög slæms veð­urs og lélegs skyggnis. Har­ald­ur Har­alds­son svæðis­stjóri...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins