Mannlífið Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
InnlentÖrsagaStundum er betra en alltaf11. desember 2021 Hann: Ástin er góð, vináttan betri en kærleikurinn er bestur. Snilligáfa er víða en það er ekki hægt að festa hana við eitthvað eitt, ekki frekar en múrverk. Hún: Alveg eins og gaddavír, þú prjónar ekki mikið úr honum. Hann: Ég skil þig mjög vel, veit þetta er viðkvæmt. Eigum við að mála eldhúsið í sumar? Hún: Það er erfitt....
InnlentÖrsagaSíðdegi3. desember 2021 „Hann var ágætur fyrripart kvöldsins, mun skemmtilegri en hann lítur út fyrir að vera,“ sagði hún og fékk sér smók og hellti smá koníaki í tvö glös, rétti vinkonu sinni annað en bar hitt að vörum sínum. „En eftir nokkur glös breyttist hann mikið, tók að iða í sæti sínu og augun urðu brjálæðislegri og brjálæðislegri með hverjum sopanum.“ Vinkonan...
InnlentÖrsagaTúnfiskurinn kattanna29. nóvember 2021 Stakk af frá sjálfum mér í um það bil tvo klukkutíma í dag því ég var hugsi og áhyggjufullur. Veðrið var ekki gott að flestra mati, kuldi og vindur, en svoleiðis veður elska ég meira en ristað brauð með smjöri, osti og rabarbarasultu. Fljótlega eftir að ég skilaði mér til baka skrapp ég út í búð og keypti tvær dósir...
InnlentÖrsagaÉg hef dansað við þig of lengi21. nóvember 2021 „Ég hef dansað við þig of lengi, það er ekkert meira að segja,“ sagði hann þungum rómi, opnaði útidyrahurðina og gekk rösklega frá bænum og í átt að þjóðveginum. Hann hafði vaknað með þessi orð á vörum undanfarna daga en þennan morgun var eins og í þeim væru skýr skilaboð að finna. Þessi vera hans í sveitinni hafði dregist svo...
SkoðunSvanur Már SnorrasonÉg er villingur16. nóvember 2021 Hann lék sér í sandkassanum en fann þá nálgast. Skynjaði ógnina og undirbjó sig fyrir að mæta henni. Þeir voru þrír og kölluðu ekki allt ömmu sína. Voru með sitt umráðasvæði á hreinu á leikskólanum Kató í Hafnarfirði um miðjan áttunda áratug síðustu aldar. Hér dugðu engin vettlingatök enda heimurinn harður þarna – hér mátti ekkert út af bregða ef...
InnlentÖrsagaBÚÐARFERÐIN4. nóvember 2021 Eftir að hafa daðrað við þunglyndið og þrifið klósettið þennan þunga sunnudag í febrúar tók Sigurgeir Páll þá ákvörðun að bregða sér í búðarferð; hætta sér út í óveðrið sem geisaði, þótt degi væri tekið að halla. Hann skrifaði á miða það helsta sem vantaði: nýmjólk, sælgæti og appelsínusafa. Hélt svo af stað fótgangandi, enda dekkin á jeppanum hans slitin....
InnlentÖrsagaÉg bið að heilsa2. nóvember 2021 Langaði að senda þér línu því ég hef stundum áhyggjur af þér. Geri það nú. Vona þú takir því vel. Eftir því sem þú sekkur dýpra og dýpra niður í depurðina kemur þessi ró sem þú ert alltaf að leita eftir. Hugsanirnar eru fallegar og viðkvæmar. Og þarna í depurðinni er ekki þann vonda óvin kvíðann að finna – þú...
InnlentÖrsagaDrengurinn og frændi hans í þorpinu28. október 2021 Serbneski drengurinn biður frænda sinn að fara í ríkið fyrir sig, en hann tekur það ekki í mál. „Þú ert alltof ungur, þú átt að dansa, ekki drekka,“ segir frændinn reiðilega. „En það er svo leiðinlegt að dansa ódrukkinn,“ svarar drengurinn að bragði. „Farðu nú, ég má ekki vera að þessu, ég hef öðrum hnöppum að hneppa“ og tónninn hjá...
InnlentÖrsagaSíðasti bíltúrinn22. október 2021 „Ég ætla í bíltúr,“ sagði hann hásum rómi.“ Enginn mótmælti né tók undir með honum. Hann tók snöggt af stað í afturhjóladrifna Benzanum sínum krafmikla; CLK, átta cylindra Ameríkutýpa, árgerð 2000; alltof kraftmikill og eyðslusamur. Hann skeytti engu um þótt úti væri dimmt, hálka og mikil snjókoma. Vildi bara fara. Í útvarpinu hljómaði Miles Davis á hæsta styrk, en þrátt...