„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Eplabaka með möndlukremi

Þessi fal­lega epla­baka sómir sér vel á hvaða köku­borði sem er og er skemmti­leg afþrey­ing þegar tím­inn er nægur og hægt að dunda sér við helg­ar­bakst­ur­inn.

Eplabaka með möndlukremi

Eplabaka með möndlu­kremi
6-8 sneiðar

Skel
200 g hveiti
60 g flór­sykur
½ tsk. salt
140 g ósaltað smjör, kalt og skorið í ten­inga
1 eggjarauða
50 g dökkt súkkulaði (sett ofan á skel­ina eftir bakstur)

Hitið ofn­inn í 180°C. Setjið hveiti, flór­sykur, salt og smjör í mat­vinnslu­vél og vinnið saman í stuttum slögum, 10-15 sinnum, eða þar til blandan tekur á sig kornótta áferð. Setjið eggjar­auð­una út í og vinnið saman í stuttum slögum þar til hún hefur bland­ast saman við. Deigið verður líkt og sandur á þessu stigi en mun loða saman þegar því er þrýst ofan í botn­inn á form­inu.
Hvolfið deig­inu ofan í böku­form (25 cm) með lausum botni og þrýstið deig­inu vel ofan í og með­fram hlið­unum. Gætið samt að hafa hlið­arnar ekki of þykkar. Setjið í frysti og geymið í eina klukku­stund.
Leggið svo bök­un­ar­pappír ofan á skel­ina og hellið því næst þurrk­uðum baunum eða öðru fargi ofan á. Bakið í 20 mín­útur. Fjar­lægið þá papp­ír­inn og fargið og setjið aftur inn í ofn og bakið í 10 mín­útur. Takið úr ofni og lækkið hit­ann niður í 150°C.

Frangipane (möndlu­krem)
100 g ósaltað smjör, við stofu­hita
100 g sykur
100 g möndlu­mjöl, fínmalað
20 g hveiti
1 egg, hrært

Þeytið saman smjör, sykur, möndlu­mjöl og hveiti þar til allt hefur bland­ast vel saman. Bætið egg­inu saman við og þeytið á lægstu still­ingu á hræri­vél­inni. Látið möndlu­kremið hvíl­ast í a.m.k. 15 mín­útur. Smyrjið möndlu­krem­inu jafnt yfir böku­skel­ina.

Epli
2-3 epli, óflysjuð og skorin í þunna báta
2 msk. apríkósusulta

Raðið eplunum ofan á skel­ina. Gott er að raða epla­sneið­unum þétt þar sem þær eiga eftir að skreppa saman í ofn­inum. Setjið bök­una inn í ofn­inn og bakið í 30-35 mín­útur. Hitið apríkósusult­una þar til hún verður seig­fljót­andi og penslið síðan yfir eplin eftir að bakan kemur úr ofn­inum. Látið bök­una kólna áður en hún er fjar­lægð úr form­inu.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður