„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Feiknaflott íbúð í hjarta Reykjavíkur

Blaða­maður og ljós­mynd­ari Húsa og híbýla heim­sóttu fal­legt hús við Hverf­is­götu í Reykja­vík.

Feiknaflott íbúð í hjarta Reykjavíkur

Í þessu reisu­lega húsi var hér áður fyrr starf­rækt kaup­fé­lag. Íbúðin er á annarri hæð og það er bæði hægt að taka stig­ann upp eða gamla, græna og mjög svo sjar­mer­andi lyftu sem okkur skilst að sé ein elsta lyfta lands­ins. Sólveig Andrea inn­an­húss­arki­tekt tók að sér að hanna þessa feikna­flottu íbúð í hjarta Reykja­víkur þar sem iðandi mann­lífið er beint fyrir neðan glugg­ana, Sólveig tók á móti tvíeyk­inu frá blað­inu, ásamt smekk­döm­unni sem þarna býr ásamt eig­in­manni sínum og dóttur.

Hjónin keyptu íbúð­ina vorið 2016 eftir að hafa haft auga­stað á henni í nokkurn tíma. Þau ákváðu strax að taka hana alla í gegn og fluttu svo inn rúmu ári seinna. Það er hátt til lofts og fal­legir stórir gluggar setja sterkan svip á rýmið sem er allt nýupp­gert. Það fer ekki á milli mála að þarna búa fag­ur­kerar sem hafa nef fyrir fal­legri hönnun því íbúðin er öll ofboðs­lega smekk­leg, stíll­inn er töff en samt hlý­legur og örlítið róm­an­tískur. Hlýlegt parket, krist­als­ljósakrónur, mildir brúnir tónar hér og þar, mottur, mál­verk og íburða­mikil og klass­ísk hús­gögn.

Íbúðin er öll ofboðs­lega smekk­leg, stíll­inn er töff en samt hlý­legur og örlítið róm­an­tískur.

En hvað var það sem eig­end­urnir voru að sækj­ast eftir, voru ákveðnar hug­myndir eða kröfur frá þeim?

„Já, þeir voru að sækj­ast eftir þessum svo­kall­aða loft-íbúða til­finn­ingu; rýmið opið, loftin frekar hrá og ófrá­gengnir veggirnir, það er að segja ekki púss­aðir og spartsl­aðir. Það var samt ákveðið að mála alla vegg­ina, líka þessa hráu og halda hrá­leik­anum í loft­unum og upp­runa­legu útliti glugg­ana. Glugga­kistan í eld­hús­rým­inu var svona djúp og þau vildu halda henni þannig enda mjög flott svona djúp og mikil. Eig­end­urnir vildu í raun­inni halda í allt það sem gerði íbúð­ina að iðn­að­ar­hús­næði,“ segir Sólveig og labbar með okkur um íbúð­ina.

Arkitektinn gæti vel hugsað sér að búa þarna

Ertu ánægð með útkom­una á þess­ari íbúð við Hverf­is­göt­una?

„Já, alveg svaka­lega, líka af því hús­ráð­endur eru svo rosa­lega smekk­legir. Það var svo gaman að koma þegar allt var til­búð og þau flutt inn og sjá útkom­una því það er allt svo smekk­legt hjá þeim. Þau voru mjög opin fyrir mínum hug­myndum og höfðu skoð­anir og áhuga á öllu sem þurfti að gera og ákveða í ferl­inu. Við útfærðum margt í sam­ein­ingu og annað kom alfarið frá þeim eins og til dæmis brúni lit­ur­inn sem er á nokkrum veggjum, hann er frá Slipp­fé­lag­inu.“

Það er hátt til lofts og fal­legir stórir gluggar setja sterkan svip á rýmið sem er allt nýupp­gert.

Við spyrjum við Sólveigu hvort hún sjálf gæti hugsað sér að búa í þess­ari íbúð? „Já, ekki spurn­ing. Kannski ekki með þrjú börn en ég væri til í það þegar börnin eru farin að heiman. Stað­setn­ingin er ekki mjög barn­væn en þetta er æðis­legt ef maður er barna­laus eða með upp­komin börn,“ svarar hún bros­andi og við kveðjum þessar smekkkonur og gamla sjarma­húsið við Hverf­is­göt­una.

Texti / Sigríður Elín Ásmunds­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arkitektúr

Hönnunargalli í Smiðju olli hræðslu í heimsókn Úkraínuforseta: „Ekki er öll vitleysan eins“
Innlent

Hönn­un­ar­galli í Smiðju olli hræðslu í heim­sókn Úkra­ínu­for­seta: „Ekki er öll vit­leysan eins“

Hönn­un­ar­galli í nýju Alþing­is­bygg­ing­unni olli hræðslu þegar Volody­myr Zelenskyy Úkra­ínu­for­seti var í heim­sókn hér á landi. Inga Sæland, félags­mála­ráð­herra segir í Facebook-færslu á Facebook-síðu Flokks fólks­ins, frá ansi sér­stökum hönn­un­ar­galla í Smiðju, nýju húsi Alþingis. „Snemma í des­em­ber sátum við „val­kyrjur“ á fimmtu hæð í nýju bygg­ingu Alþingis, Smiðju. Við höfðum óskað eftir fundi með full­trúum fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Frá­far­andi rík­is­stjórn hafði...
Bendir á eitt atriði varðandi Smiðju, sem truflar hann: „Ansi hrokafull nálgun hjá arkitektum“
Menning

Bendir á eitt atriði varð­andi Smiðju, sem truflar hann: „Ansi hroka­full nálgun hjá arki­tektum“

Smiðja, nýtt skrif­stofu­hús Alþingis var opnað almenn­ingi á dög­unum en fjöl­margir nýttu sér opn­un­ina og kíktu í heim­sókn. Sitt sýn­ist hverjum um ágæti bygg­ing­ar­innar en Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur er nokkuð ánægður, fyrir utan eitt ákveðið atriði. Stefán segir að fólk kepp­ist við að hafa skoðun á hinu nýja skrif­stofu­húsi Alþingis en hann sé nokkuð sáttur: „Ég hef aðeins fengið að...
Arkitektúruppreisnin: „Meirihluti fólks þykir hefðbundinn arkitektúr fallegri – kosning á morgun“
Innlentarkitektúr

Arki­tekt­úr­upp­reisnin: „Meiri­hluti fólks þykir hefð­bund­inn arki­tektúr fal­legri – kosn­ing á morgun“

Umræða um arki­tektúr og borg­ar­skipu­lag hefur tölu­vert verið í umræð­unni síð­ustu miss­eri og hefur hópur komið sér saman sem kallar sig Arki­tekt­úr­upp­reisnin. Hreyf­ingin og stefnur hennar er hægt að finna á öllum Norð­ur­löndum, en hún á upp­runa sinn í Svíþjóð. Þau sem standa að þess­ari „upp­reisn“ leit­ast við að end­ur­vekja hefð­bund­inn arki­tektúr og afneita þeirri hug­mynd að hefð­bund­inn arki­tektúr sé...
Íslenskt hönnunarfyrirtæki þróar sýningu fyrir stærsta safn í N-Evrópu: „Kom okkur öllum á óvart“
Innlentarkitektúr

Íslenskt hönn­un­ar­fyr­ir­tæki þróar sýn­ingu fyrir stærsta safn í N-Evrópu: „Kom okkur öllum á óvart“

Íslenska hönn­un­ar­fyr­ir­tækið Gagarin hefur þró­aði átta yfir­grips­miklar og fræð­andi inn­setn­ingar á sýn­ing­una “Once Upon a Sea” á sædýra­safn­inu Den Blå Planet, sem er eitt stærsta og metn­að­ar­fyllsta sædýra­safn í Norður-Evrópu, stað­sett í Kaup­manna­höfn. Auk inn­setn­ing­anna sá Gagarín um alla graf­ískri hönnun og mynd­lýs­ingu á sýn­ing­unni. „Eins og í flestum verkum Gagarín var helsta áskor­unin að miðla umfangs­miklum vís­inda­legum upp­lýs­ingum til...
„Mikill misskilningur að lítil rými þurfi eingöngu að vera í ljósum litum“
Mannlífið

„Mikill mis­skiln­ingur að lítil rými þurfi ein­göngu að vera í ljósum litum“

Í litlum rýmum er mik­il­vægt að hönn­un­ar­lausnir séu góðar. Gott skipu­lag er einnig lyk­il­at­riði en auk þess þarf rým­is­upp­lifunin að vera ánægju­leg. Við tókum Katrínu Ísfeld inn­an­húss­arki­tekt tali og báðum hana um að gefa les­endum góð ráð varð­andi hönnun á litlum rýmum. Katrín Ísfeld inn­an­húss­arki­tekt útskrif­að­ist með BSc í inn­an­húss­arki­tektúr frá Art Institute of Fort Lauder­dale á Flórída en að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður