„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Birta og Nonni eltu ævintýraþrána

Það þarf hug­rekki til að pakka saman heilli fjöl­skyldu og fyr­ir­tæki og flytja til Spánar.

Birta og Nonni eltu ævintýraþrána

Það má segja að ævin­týra­þráin hafi rekið Birtu og Nonna á nýjar slóðir, börnin þeirra tvö, Stormur Björn og Ylva Vár, fóru að sjálf­sögðu með og gamli hamst­ur­inn þeirra. Nú eru sex ár liðin síðan fjöl­skyldan sigldi með fullan bíl af búslóð á vit sól­ríkra ævin­týra og lífið er svo ljúft í furu­skóg­inum þar sem þau búa á Spáni að þau eru ekk­ert á leið­inni heim.

Birta og Nonni höfðu lengi íhugað að flytja erlendis.

Birta er enn þá að hanna og sauma föt, mála og nú það nýjasta, að gera upp hús ásamt eig­in­manni sínum sem er húð­flúr­lista­maður og þús­und­þjala­smiður. Blaða­maður heyrði í Birtu og fékk að heyra meira um lífið í sól­inni á Spáni.

„Við vorum búin að hugsa um að flytja erlendis í mörg ár, okkur lang­aði að prófa eitt­hvað nýtt og vorum með ævin­týra­þrá, vissum bara ekki hvert. Sér­stak­lega þegar sólin hafði varla sést í marga mán­uði í skamm­deg­inu, þá spurðum við hvort annað hvað við værum eig­in­lega að gera á Íslandi?“

Fjöl­skyldan nýtur þess að vera með nátt­úr­una allt í kring.

Búa í furuskógi umkringd íkornum og uglum

Birta segir að lífið á Spáni sé ótrú­lega gott, upp­haf­lega hafi þau bara ætlað að búa úti í 1-2 ár en árin eru nú orðin sex! „Við búum, má segja, í miðjum furu­skógi með nátt­úr­una fyrir utan hjá okkur, það fylgir því mikil kyrrð og ró. Við erum mikið nátt­úru- og dýra­fólk og það hentar okkur öllum mjög vel að vera hér. Við erum með mörg dýr á heim­il­inu og allt í kringum okkur er mikið líf,  það eru íkorn­arnir í trjánum, uglur „húandi“ á nótt­unni og jafn­vel villisvínin sem eru brölt­andi á göt­unum.
Lífið er afar þægi­legt og stress­laust. Krakk­arnir eru í skóla rétt hjá og eru altalandi á bæði kata­lónsku og spænsku.“

Lífið er afar þægi­legt og stress­laust.

Hún segir að það sé ynd­is­legt að vakna allan árs­ins hring í birtu og heitu lofti.

Birta og Nonni keyptu húsið fyrir tveimur árum.

„Lífið hér er mikið utandyra og félags­lega er það tölu­vert öðru­vísi en heima á fróni. Veislur og mat­ar­boð fara fram utandyra mestan hluta árs­ins og börnin eru alltaf með. En án efa söknum við samt oft Íslands og hvað lífið er ein­falt heima, sér­stak­lega tungu­mála­lega séð því það eru töluð tvö tungu­mál í Kata­lóníu og nóg sem þarf að læra til að geta bjargað sér.

Þótt við séum sæmi­leg í spænsk­unni þá getum við tak­markað tekið þátt í djúpum mat­ar­boðsum­ræðum.

Við erum búin að eign­ast marga góða vini hér úti, bæði Katalóna og fólk frá öðrum löndum. Megnið af okkar vinum eru þó útlend­ingar sem eru í svip­aðri stöðu og við. Fólk sem hefur búið í Barcelona eða sveit­inni í kring í mörg ár. Spænsku vin­irnir okkar hafa valist meira eftir ensku­kunn­áttu því þótt við séum sæmi­leg í spænsk­unni þá getum við tak­markað tekið þátt í djúpum mat­ar­boðsum­ræðum. Loksins þegar maður er búinn að setja saman skemmti­legt svar við ein­hverju er löngu búið að skipta um umræðu­efni,“ segir hún og hlær sínum smit­andi hlátri.

Lífið er ljúft og stress­laust á Spáni að sögn Birtu.

Ný og spennandi verkefni fram undan

Birta var áber­andi í tísku­heim­inum hér heima og seg­ist hafa í mörgu að snú­ast á Spáni. Hún er enn þá að hanna og sauma föt undir eigin merki, By Birta, og selur bæði á íslenskan og erlendan markað. Það vita eflaust ekki allir að Birta er líka mjög fær með pensil­inn.

Viðtalið við Birtu má lesa í heild sinni í jóla­blaði Húsa og híbýla.

„Ég er að mála portrait-myndir en síð­ustu tvö ár hefur tím­inn minn samt aðal­lega farið á að gera upp húsið okkar. Það eru nú samt breyt­ingar í vændum því við erum að fara af stað með nýtt verk­efni sem felur í sér að kaupa hús hér úti, gera þau upp og selja. Ég get eig­in­lega sagt það að inn­an­húss­hönnun eigi allan hug minn þessa dag­ana og get ég ekki beðið með að henda mér í drullugall­ann, rífa út gamlar inn­rétt­ingar, gera upp og smíða nýtt fín­irí,“ útskýrir hún spennt og bætir við að hennar verk­svið muni að mestu snú­ast um hönn­un­ina og hand­verkið en und­an­farið hefur hún æ meira verið að gera hlut­ina sjálf og við­ur­inn heillar hana sér­stak­lega.

„Ég elska að vinna hluti úr tré,“ segir hún alsæl í sól­inni á Spáni.

Fleiri myndir af fal­lega hús­inu þeirra og allt við­talið við Birtu má lesa í jóla­blaði Húsa og híbýla sem fæst á sölu­stöðum til 13. des­em­ber.

Myndir / Birta Björns­dóttir

Lífið er svo ljúft á Spáni að þau eru ekk­ert á leið­inni heim að sögn Birtu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

heimili

Innlit: Stórglæsilegt einbýli í Garðabæ á rúmlega 800 fermetra lóð
Menning

Innlit: Stór­glæsi­legt ein­býli í Garðabæ á rúm­lega 800 fer­metra lóð

Við Garða­flöt 21 stendur ein­býl­is­hús sem nú hefur verið sett á sölu. Flat­irnar eru eitt eft­ir­sóttasta hvefið í Garðabæ enda er það bæði gróið og fjöl­skyldu­vænt. Húsið er skráð 201 fer­meter en lóðin er gríð­ar­lega stór eða 805 fer­metar. Fast­eigna­salan Lind er með eign­ina á skrá hjá sér en húsið er hið glæsi­leg­asta að innan. Líkt og sjá má er...
Gull og marmari – innlit á ótrúlegt heimili Drake
Menning

Gull og marmari – inn­lit á ótrú­legt heim­ili Drake

Heims­frægi rapp­ar­inn Drake á ótrú­legt heim­ili í Toronto en hefur hvert ein­asta smá­at­riði verið vand­lega hugsað og útfært. Á heim­ili rapp­ar­ans má finna körfu­bolta­völl, sund­laug, bíó­sal og marm­ara í miklu magni. Kanadíski arki­tekt­inn og inn­an­hús­hönn­uð­ur­inn, Ferris Rafauli sá um að inn­rétta heim­ili Drake og sá hefur fengið frjálsar hendur eins og sjá má hér að neðan. Borð­stofu­borðið er af stærri...
Ítölsk og rómantísk stemmning í Þingholtsstræti – Sushi innan seilingar
Innlentheimili

Ítölsk og róm­an­tísk stemmn­ing í Þing­holts­stræti – Sushi innan seil­ingar

Sjar­mer­andi er orð sem lýsir íbúð að Þing­holts­stræti 8 sér­stak­lega vel. Íbúðin er stað­sett í hjarta mið­borg­ar­innar með gluggum til þriggja átta og grónum garði til vest­urs. Lind fast­eigna­sala hefur þessa fal­legu eign á skrá. Við­ar­fjal­irnar á gólf­inu og hleðslu­steinn­inn á veggjum skapa róm­an­tíska stemn­ingu og minnir það helst á hlaðin hús í ítölskum stíl. Stof­urnar eru tvær, sam­liggj­andi með...
Jólin eru í hátíðarblaði Húsa og híbýla – Glys og glamúr um hátíðarnar
Mannlífið

Jólin eru í hátíð­ar­blaði Húsa og híbýla – Glys og glamúr um hátíð­arnar

Hátíð­ar­blað Húsa og híbýla er komið út. Blaðið er stút­fullt af fal­legum inn­litum, hug­myndum, inn­blæstri og við­tölum við fag­ur­kera. Þetta er blaðið sem kemur ykkur í hátíð­ar­skap. Við förum víða í nýja blað­inu, til dæmis heim­sækjum við hlý­legt og smart heim­ili á Dalvík og skoðum töff nýbygg­ingu í Reykja­nesbæ þar sem hver hlutur hefur verið val­inn af kost­gæfni. Við hittum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður