„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fólk sem talar við hundana sína er ekki brjálað

Fólk sem talar við hundana sína er ekki brjálað
||

Ný rann­sókn sýnir fram á að fólk sem talar við hunda sína í háum tónum er í raun að hjálpa hvutt­unum sínum að halda athygli. Þetta gæti einnig hjálpað til við að bæta sam­band á milli hunda­eig­enda og gælu­dýr­anna.

Rann­sak­endur við York háskóla í Bret­landi ákváðu að láta á það reyna hvort að hunda­tal hefði sömu jákvæðu áhrif á hundana og þegar full­orðnir tala við ung­börn.

„Auðvitað vitum við að hundar geta ekki lært að tala, þannig að við vildum vita hvort hunda­tal virk­aði fyrir hunda, eða hvort það er bara eitt­hvað sem við notum á hundana okkar, þar sem við lítum á hunda sem hluta af fjöl­skyld­unni, eins og feldi klædd börn,“ segir for­svars­maður rann­sókn­ar­innar, Alex Benjamin, í sam­tali við Huffington Post.

Mikil nánd mynd­ast oft á milli hunda­eig­enda og hunda.

Sam­skipti manna við hunda hafa áður verið rann­sökuð og þá hefur meðal ann­ars komið fram að það að tala við hunda í háum tónum, líkt og við gerum við börn, hefur góð áhrif á hvolpa, en að það skipti ekki máli þegar talað er við gamla hunda. Nið­ur­stöður Alex og teymis hennar sýna fram á að þetta sam­spil sé örlítið flókn­ara en áður hefur verið haldið fram.

Það er gott að tala við hunda.

Teymið fram­kvæmdi radd­próf á 69, full­orðnum hundum. Þau fóru þannig fram að hund­arnir hlust­uðu á eina mann­eskju sem tal­aði háum tónum og not­aði frasa sem var beint að hund­unum, eins og: Þú ert góður hundur, og Eigum við að fara í göngutúr? Önnur mann­eskja not­aði mennska frasa sem tengd­ust hund­unum ekki neitt, eins og Ég fór í bíó í gær. Rann­sak­endur fylgd­ust með hvert athygli hund­anna leit­aði á meðan mann­eskj­urnar voru að tala og fylgd­ust með hvaða mann­eskju þeir dróg­ust að.

Því næst blönd­uðu rann­sak­endur saman hunda­frösum og mennskum frösum til að sjá hvort það væri tónn radd­ar­innar sem hund­arnir löð­uð­ust að, eða frasarnir sjálfir. Loks komust rann­sak­endur að því að hund­arnir voru lík­legri til að lað­ast að mann­eskj­unni sem not­aði frasa sem var beint að hund­unum.

„Við höfum sýnt fram á að hundar skynja þessa týpu af tali og það gæti verið gagn­legt að nota hana þegar þú hittir hund í fyrsta sinn, eða ef þú ert að leika við hund vinar þíns til dæmis,“ segir Alex og bætir við orðum sem margir hafa eflaust þráð að heyra lengi:

„Og ef þú ert nú þegar að tala við þinn eig­inn hund eins og barn get­urðu notað þessa rann­sókn til að rétt­læta að þú ert ekki brjáluð hunda­mamma!“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hundar

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“
Landið

Heldur enn í von­ina um að Luna og Stitch finn­ist: „Ég er ekki alveg reiðu­búin að afskrifa þá ennþá“

Setter-hund­arnir Luna og Stitch hurfu þann 11. des­em­ber frá umsjón­ar­fólki sínu á Djúpa­vogi en þeir sáust þann dag á hlaupum inn í Geit­hellna­dal. Hefur ekk­ert til þeirra spurst síðan. Sjá einnig: Enn er tveggja hunda leitað á Aust­ur­landi: „Það er sem jörðin hafi gleypt þá“ Samkvæmt Aust­ur­frétt hafa fjöldi fólks, vinir, ætt­ingjar og jafn­vel ókunn­ugir, frá þeim tíma svip­ast um...
Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“
Menning

Hund­ur­inn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi“

Hollywood-stjarnan Dwayne „The Rock“ Johnson minn­ist hunds­ins síns, sem lést í gær. Ein stærsta Hollywood-stjarnan, á tvenna vegu, Dwayne „The Rock“ Johnson birti í morgun ljúfsárar ljós­myndir af hund­inum hans, Hobbs, sem lést í gær, á Instagram-reikn­ingi sínum. „Hvíl í friði, Hobbs. Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi, en við erum svo þakk­lát fyrir hvern ein­asta eyri af hreinni...
Hundar velja sér jólaleikfang – MYNDBAND
Menning

Hundar velja sér jóla­leik­fang – MYNDBAND

Það eru ekki bara við mann­fólkið sem fær jóla­gjafir um hátíð­ina sem nú gengur senn í garð. Instagram-síðan Upworthy birtir jákvæð og upp­líf­gangi mynd­skeið á sam­fé­lags­miðl­inum sem gott er að kíkja á í dimmasta skamm­deg­inu, jafn­vel þó að dag­ur­inn sé nú loks far­inn að lengj­ast. Í nýjasta mynd­bandi sínu má sjá hóp hunda velja sér jóla­leik­fang af fjöl­mörgum leik­föngum sem...
Enn er tveggja hunda leitað á Austurlandi: „Það er sem jörðin hafi gleypt þá“
Landið

Enn er tveggja hunda leitað á Aust­ur­landi: „Það er sem jörðin hafi gleypt þá“

Tveir setter-hundar sem struku frá Djúpa­vogi þann 9. des­em­ber síð­ast­lið­inn, hafa enn ekki fund­ist, þrátt fyrir mikla leit fjöl­margra aðila á stóru svæði. Settar-hund­arnir Luna og Stitch struku frá umsjón­ar­manni sínum 9. des­em­ber og til að byrja með tóku þeir stefn­una suður. Þetta kemur fram í Aust­ur­frétt. Síðast sást til þeirra á hlaupum í Geit­hella­dal þann 11. des­em­ber en síðan...
Ágúst mælir með hundalífi: „Gleðin, félagsskapurinn, dyntirnir, hlýjan, hárin og öll útiveran“
Menning

Ágúst mælir með hunda­lífi: „Gleðin, félags­skap­ur­inn, dynt­irnir, hlýjan, hárin og öll úti­veran“

Ágúst Ólafur Ágústs­son, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar er hæst ánægður með hafa fengið sér hund fyrir tveimur árum. Ágúst Ólafur birti á Facebook skemmti­legar ljós­myndir af sér og hund­inum Loka sem hann eign­að­ist fyrir tveimur árum. Á annarri mynd­inni heldur hann á Loka þegar hann var lít­ill hvolpur og á hinni heldur hann á mun stærri Loka. Við færsl­una skrif­aði hann:...
Anna kærði hundaeigendur til MAST: „Vesalings hundurinn var enn í búrinu í steikjandi sól“
Innlent

Anna kærði hunda­eig­endur til MAST: „Ves­al­ings hund­ur­inn var enn í búr­inu í steikj­andi sól“

Áhyggju­full kona kærði hunda­eig­anda til Mat­væla­stofn­unar eftir að hafa séð hund­inn í steikj­andi hita í litlu búri án vatns og ekki í fyrsta skipti. Anna nokkur birti í gær ljós­mynd af hundi í pínu­litlu búri úti við, í Facebook-hópnum Hunda­sam­fé­lagið. Var hún að biðja um ráð því hún var ekki viss hvað hún ætti að gera. Hún hafði áður rætt...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“