„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sjö ávanar para sem lifa frábæru kynlíf

Sjö ávanar para sem lifa frábæru kynlíf
Mynd úr mynda­banka

Því er oft haldið fram að kyn­lífið sitji á hak­anum í lang­tíma sam­böndum, enda þarf að vinna að því að halda neist­anum lif­andi í svefn­her­berg­inu.

Í grein á vef­síð­unni Huffington Post tala kyn­lífs­þerapistar um sjö ávana para sem hafa verið saman lengi en lifa enn mjög góðu kyn­lífi.

1. Þau leyfa sér að verða spennt saman, jafnvel þegar ekki á að stunda kynlíf

Stephen Snyder, kyn­lífs­þerapisti í New York, segir að pör sem ná að halda neist­anum lif­andi lengi stríði oft hvort öðru á almanna­færi þegar ekki er hægt að stunda kyn­líf.

„Fyrir ástríðu­fyllstu pörin er kyn­líf bara topp­ur­inn á ísjak­anum. Þau njóta þess að örva hvort annað, jafn­vel þegar ekki er mögu­leiki að stunda kyn­líf eða fá full­næg­ingu,“ segir Stephen.

2. Þau prufa nýja hluti á hverju ári

Pör sem kunna að halda hita­stig­inu háu í svefn­her­berg­inu eru sífellt að leita nýrra leiða til að stunda kyn­líf og njóta hvors ann­ars.

„Eitt par sem við unnum með sagði: Á hverju ári verðum við meira kinkí,“ segir Celeste Hirschman, kyn­lífs­þerapisti. „Þú þarft að hafa vilja til að vera frum­legur til að kyn­lífið sé frá­bært til lengri tíma litið og fest­ist ekki í viðjum van­ans. Talið sóða­lega. Prófið eitt­hvað nýtt. Gerið það sem þið þurfið til að halda kyn­lífi fersku og skemmti­legu og kyn­lífið þitt verður sjóð­heitt löngu eftir að aðrir brenna út,“ bætir hún við.

3. Þau hugsa vel um sig

Pör sem lifa geggj­uðu kyn­lífi skilja að gott sjálfs­traust er hluti af því. Þess vegna passa þau vel uppá sig sjálf og rækta sig sjálf, jafn­mikið og þau rækta sam­bandið.

„Stór­kost­legt kyn­líf snýst ekki bara um sam­band þitt við mak­ann. Það snýst líka um sam­band þitt við þig sjálfan. Þú verður að hugsa um þig. Það getur þýtt að taka frá tíma fyrir dekur, að koma vel fram við lík­amann, kom­ast yfir skömm eða sekt­ar­kennd í svefn­her­berg­inu eða læra eitt­hvað nýtt, eins og hvernig á að láta full­næg­ingu end­ast lengur,“ segir Vanessa Marin, kyn­lífs­þerapisti.

Það er svo mik­il­vægt að hlæja saman.

4. Þau hlæja í svefnherberginu en líka utan þess

Stundum ger­ast fyndnir hlutir þegar tveir lík­amar slást saman í hita leiks­ins. Svo ekki sé minnst á öll fyndnu hljóðin sem fylgja kyn­lífi. Þess vegna er mik­il­vægt fyrir pör að geta hlegið saman, að sögn kyn­lífs­þerapist­ans Kimberly Resnick Anderson.

„Húmor er frá­bært frygð­ar­lyf. Hlæjið á meðan þið stundið kyn­líf. Pör sem skilja streit­una eftir á svefn­her­berg­is­þrösk­uld­inum og njóta kyn­lífs sem athafnar sem er skemmti­leg og tíma­bund­inn flótti úr raun­veru­leik­anum eru full­nægð­ari en þeir sem geta ekki skipt um gír og skilið streitu, reiði og óánægj­una í dag­lega líf­inu eftir frammi.“

5. Þau fróa sér í kynlífi

Sál­fræð­ing­ur­inn og kyn­lífs­þerapist­inn Shannon Chavez segir að sjálfs­fróun sé skemmti­legri þegar aðrir eru með. Þá er það frá­bært tæki­færi fyrir mak­ann að sjá hvernig best sé að full­nægja elsk­huga sínum.

„Pör sem fróa sér saman, hald­ast saman,“ segir Shannon.

6. Þau kanna fantasíur hvors annars

„Pör sem hafa verið lengi saman og lifa æðis­legu kyn­lífi vita að hver mann­eskja er með sjálf­stætt, eró­tískt ímynd­un­ar­afl,“ segir fyrr­nefnd Celeste Hirschman. Hún bætir við að þessi pör geri það sem þarf til að upp­fylla fantasíur hvors ann­ars og leggi mikið á sig til að gleðja elsk­hug­ann.

7. Þau kyssast og snertast yfir daginn til að sýna væntumþykju

Shannon Chavez segir það skipta miklu máli að pör sýni hvort öðru ást sína á öllum tímum sól­ar­hrings­ins, hvort sem það er á sóf­anum yfir frétt­unum eða yfir fyrsta kaffi­boll­anum á morgn­ana. Inni­legir kossar og snert­ing er mjög mik­il­væg.

„Þegar þið snertið hvort annað eruð þið nán­ari og sýnið hvort öðru meiri ást. Þetta sýnir að þið viljið vera náin maka ykkar. Í stuttu máli er fólk sem snertir, heldur í hendur, kyssir, nuddar, strýkur og kjassar hvort annað án þess að búast við kyn­lífi rólegra, meira kyn­ferð­is­lega örvað og tengd­ara í sam­bandi.“

Oft getur lít­ill koss eða faðm­lag gert krafta­verk.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“