„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

BBC segir Rúrik blöndu af Brad Pitt, Channing Tatum og Chris Hemsworth

BBC segir Rúrik blöndu af Brad Pitt, Channing Tatum og Chris Hemsworth

„Hvað færðu þegar þú blandar saman Chris Hemsworth og Brad Pitt, með dass af Channing Tatum? Hinn íslenska Rúrik Gíslason.“ Svona byrjar grein á vef BBC um nýj­ustu sam­fé­lags­miðla­stjörnu Íslands, knatt­spyrnu­kapp­ann Rúrik Gíslason. Brad Pitt þarf vart að kynna en Chris Hemsworth er hvað þekkt­astur fyrir að leika þrumu­goðið Þór og Channing Tatum þekkja margir úr kvik­mynd­unum Magic Mike.

Rúrik sprengdi næstum því Instagram eftir leik­inn gegn Argent­ínu um síð­ustu helgi. Rúrik átti um fjöru­tíu þús­und fylgj­endur á sam­fé­lags­miðlum fyrir leik en nálg­ast nú óðum milljón fylgj­endur og nær því eflaust áður en heims­meist­ara­mót­inu lýkur.

Í kjöl­far þessa gríð­ar­legu vin­sælda hefur athuga­semdum við myndir hans á Instagram fjölgað til muna og virð­ast margar þeirra koma frá argent­ínskum not­endum mið­ils­ins. Því virð­ist sem Rúrik hafi með útliti sínu náð að milda höggið fyrir argent­ínska lands­liðið, alla­vega ef marka má athuga­semdir við mynd­irnar hans.

„Hann gerir mig brjál­aða,“ skrifar einn not­andi við mynd Rúriks á meðan annar not­andi er frekar frakkur: „Ég sendi þér núm­erið mitt í einka­skila­boðum. Kossar.“

Þá vill einn not­andi sam­fé­lags­mið­ils­ins vita hvernig sjampó mað­ur­inn notar, enda hefur vel hirt hár kappans vakið athygli. Margir sem sjá sig knúna til að skrifa athuga­semdir við myndir Rúriks kalla hann ein­fald­lega sæl­gæti.

Blaða­maður BBC fer yfir þessar vin­sældir Rúriks í pistli sínum og kallar hann hjartaknús­ara. Bendir hann rétti­lega á að Rúrik eigi nú flesta fylgj­endur á Instagram í lands­lið­inu. Þetta Rúriks æði sem gripið hefur um sig á heims­meist­ara­mót­inu minnir um margt á hve eft­ir­sóttur liðs­fé­lagi hans Birkir Bjarna­son var á Evr­ópu­mót­inu í knatt­spyrnu fyrir tveimur árum síðar. Þá gerði Birkir allt vit­laust á öðrum sam­fé­lags­miðli, nefni­lega Twitter, þar sem honum var líkt við NFL-stjörn­una Tom Brady til að mynda. Þá skrif­aði Daily Mail heila grein um kapp­ann og líkti honum við þrumu­goðið Þór og ungan Brad Pitt, eins og BBC um Rúrik nú, og breski fat­ar­is­inn ASOS bauð Birki fyr­ir­sætu­störf.

Birkir á þó langt í land með að ná Rúrik í Instagram-vin­sældum þar sem sá fyrr­nefndi er aðeins með rúm­lega hund­rað þús­und fylgj­endur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“