„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Danir vara við heimagerðu slími

Heima­gert slím nýtur mik­illa vin­sælda hjá börnum. Hjúkr­un­ar­fræð­ingur segir kemíska blöndu geta valdið áreiti í húð barna. For­eldrar verði að passa hvað börnin leiki sér með.

Danir vara við heimagerðu slími

Astma- og ofnæm­is­sam­tök Dan­merkur vara við heima­gerðu slími. Slímgerð í heima­húsum nýtur mik­illa vin­sælda hjá börnum. Til marks um það var slím­gerð í þriðja sæti yfir fyr­ir­spurnir á víd­eó­vefnum YouTube á síð­asta ári.

Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem Danir vara við leik­föngum og föndri fyrir börn. Fyrr í þessum mán­uði var­aði Umhverf­is­stofnun Dan­merkur við kreisti­leik­fang­inu Squishy eftir að eit­ur­efni fund­ust í því. Neyt­enda­stofa sendi í kjöl­farið út fyr­ir­spurn til leik­fanga­sala og inn­flytj­enda leik­fanga og óskaði upp­lýs­inga um hvort leik­föngin fáist hér. Reynist svo vera, eigi að taka hana af mark­aði og farga leik­föng­unum.

Í umsögn Astma- og ofnæm­is­sam­taka Dan­merkur um heima­gerða slímið segir að í heima­gerðu slími sé lím, rak­sápa og mat­ar­sódi. Húð barna sé við­kvæm fyrir rak­sápu og lími, það geti valdið ofnæmi hjá þeim og þau fengið útbrot á hendur. Í fær­eyska Kringi­varp­inu er haft eftir dönskum fjöl­miðlum að for­eldrar hafi auga með því hvort börn klæi eftir slím­gerð, húð þeirra fái rauðan lit, útbrot eða að jafn­vel mynd­ist sár.

Umhverf­is­stofnun Dan­merkur og mat­væla­eft­ir­lit lands­ins taka undir áhyggjur Astma- og ofnæm­is­sam­tak­anna og vara við slím­gerð barna. Þau eigi ekki að leika sér með rak­sápu, mat­ar­sóda og lím, hvað þá blanda efn­unum saman.

Einfalt er fyrir börn að verða sér úti um efni til að búa til slím. Leið­bein­ingar um slím­gerð má finna á YouTube og á íslenskum vef­síðum og vef­síðum fönd­ur­búða. Inni­haldið í slím­inu er í nær öllum til­vikum hið sama og dönsku Astma- og ofnæm­is­sam­tökin vara við, það er, lím og mat­ar­sódi ásamt öðru. Í sumum upp­skriftum er húð­krem sett í upp­skrift­ina í stað rak­sápu.

„Þetta eru svo nýlegar fréttir að við erum rétt að byrja að kynna okkur þetta,“ segir Tonie Gertin Sørensen hjúkr­un­ar­fræð­ingur sem er starfs­maður Astma- og ofnæm­is­fé­lags Íslands. Hún sá frétt um þetta í dönskum frétta­tíma í vik­unni. Hún segir engar fyr­ir­spurnir eða ábend­ingar hafa borist félag­inu vegna þessa. Mjög stutt sé síðan umræðan kom upp í Danmörku og þurfi félagið að kynna sér málið frekar. Hún bendir á að það segi sig sjálft að þegar kemískum efnum er blandað saman geti orðið til blanda sem valdi áreiti á húð.

„En sem for­eldri myndi ég segja að við verðum að vera á varð­bergi gagn­vart því sem börnin okkar leika sér með,“ segir Tonie.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“