„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ætlaði í hjáveituaðgerð en þarf þess ekki: „Þetta er ekki of seint”

Ætlaði í hjáveituaðgerð en þarf þess ekki: „Þetta er ekki of seint”
||||||||

Laura Micetich var aðeins 22ja ára þegar hún steig á vigt­ina og sá að hún var að nálg­ast 140 kíló. Hún glímdi við ýmsa heilsu­kvilla, svo sem of háan blóð­þrýst­ing og for­syk­ur­sýki. Hún vissi að hún þyrfti að breyta um lífs­stíl til að geta lifað góðu lífi um aldur og ævi.

Laura glímdi við ýmsa kvilla.

„Ég ákvað að taka stjórn­ina í mínu eigin lífi og breyta til. Eftir að hafa reynt að ná tökum á heils­unni minni margoft, og mis­tek­ist, var þetta orðið það alvar­legt að ég íhug­aði að fara í maga­hjá­veitu­að­gerð,” skrifar Laura á vef­síðu sinni. Hún byrj­aði hins vegar á því að fara í rækt­ina og fljótt varð ljóst að hún þyrfti ekki aðgerð.

Hún ætl­aði að fara í maga­hjá­veitu­að­gerð.

„Það sem byrj­aði sem pæl­ingar um maga­hjá­veitu­að­gerð varð að ástríðu fyrir heilsu­sam­legum lífs­stíl, þreki og nær­ingu. Ég byrj­aði að fara í rækt­ina, lyfta lóðum og borð­aði hreina fæðu sem var klæð­skera­sniðin að þörfum lík­am­ans. Það tók mig bara nokkrar vikur að átta mig á að ég þurfti ekki að leggj­ast undir hníf­inn. Ég þurfti að leggj­ast undir stöng­ina.”

Stöngin varð besti vinur hennar.

Lagaði mataræðið

Fyrsta árið létt­ist Laura um 45 kíló og los­aði sig við ýmsa óheil­brigða ávana.

Lík­ams­rækt varð að lífs­stíl.

„Ég er nú laus við alla kvilla og lífið mitt hefur breyst til hins betra með því að átta mig á að það sem við viljum og það sem við gerum er eitt­hvað sem við stjórnum algjör­lega,” skrifar Laura, en matar­æðið spil­aði stórt hlut­verk í lífs­stíls­breyt­ingu hennar.

„Ég lag­aði matar­æðið mitt. Ég borð­aði mikið af hreinum mat og tók alla sterkju og unn­inn sykur úr fæð­unni. Ég hætti að fara út að borða. Ég hætti að borða skyndi­bita. Ég hætti að kaupa rusl í búð­inni. Ég hætti að drekka áfengi með vinum. Ég hætti að oféta rusl. Þannig er nú það.”

Laura æfir á hverjum degi.

Innblástur á Instagram

Laura er í dag tæp 90 kíló og er afar vin­sæl á Instagram, með um 330 þús­und fylgj­endur. Á sam­fé­lags­miðl­inum deilir hún alls kyns ráðum og skila­boðum sem eru full af inn­blæstri. Eins og til dæmis þessum:

„Það er ekk­ert sem heitir til­búin/n. Það er bara núið,” skrifar Laura við eina mynd á Instagram. Við aðra skrifar hún:

Lengst til vinstri er hún sem þyngst. Í miðj­unni er hún grennst, rúm 80 kíló og lengst til vinstri er mynd af Lauru eins og hún er í dag, tæp 90 kíló.
„Þú ert ekki of gam­all/gömul. Þetta er ekki of seint.”

Hún segir einnig á Instagram að þessi veg­ferð hafi verið erfið en algjör­lega þess virði. Hún segir í lagi að eiga slæma daga svo lengi sem maður læri að taka sér pásu, en ekki gefa allt upp á bát­inn. Hún er fylgj­andi því að fólk skapi sína eigin vel­gengni og lifir eftir mottó­inu:

Ekki gef­ast upp, segir Laura.

„Þú ert sá/sú sem þú velur að vera.”

Hér má sjá veg­ferð þess­arar ungu konu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“