„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fjögur pör sem giftu sig á Bahama-eyjum

Fjögur pör sem giftu sig á Bahama-eyjum
||||

Helgin var stút­full af róm­an­tík, en bæði stór­söngv­ar­inn Justin Bieber og knatt­spyrnu­kapp­inn Gylfi Þór Sig­urðs­son fóru á skelj­arnar á Bahama-eyjum.

Justin bað fyr­ir­sæt­unnar Hailey Baldwin en Gylfi sinnar heittelsk­uðu, Alexöndru Helgu Ívars­dóttur. Báðar sögðu kon­urnar já og því svífa bæði pörin eflaust um á rós­rauðu ham­ingju­skýi.

Bæði Gylfi og Alex­andra deildu fal­legri mynd rétt eftir bón­orðið og skrif­aði Alex­andra við sína mynd:

„Eftir ful­kom­inn dag á Bahama­eyjum ját­að­ist ég besta vini mínum. Get ekki beðið eftir að gift­ast þér, elskan!“

Justin Bieber opn­aði sig einnig á Instagram og deildi mynd af sér og Hailey þar sem hann skrif­aði meðal ann­ars:

„Þú ert ástin í líf­inu mínu Hailey Baldwin og ég myndi ekki vilja eyða ævinni með nokkrum öðrum. Þú gerir mig að betri manni og við pössum svo vel saman!“

Pörin tvö eru langt frá því að vera fyrstu pörin til að trú­lofa sig á Bahama-eyjum, en það er afar vin­sæll áfanga­staður ást­fang­inna turtil­dúfa. Spenn­andi verður að vita hvort að þau ætli einnig að inn­sigla ást­ina á eyj­unum, en nokkur stjörnupör hafa einmitt gengið í það heilaga á þessum fal­lega stað.

Penelope Cruz og Javier Bardem

Leik­arap­arið byrj­aði að stinga saman nefjum árið 2007 og giftu sig í byrjun júlí árið 2010. Athöfnin var lítil og aðeins nán­ustu boðið, en her­leg­heitin fóru fram heima hjá vini þeirra á Bahama-eyjum.

Cindy Crawford og Rande Gerber

Cindy og Rande ját­uð­ust hvort öðru árið 1998 á strönd á Bahama-eyjum. Cindy klædd­ist afar ein­földum en fal­legum kjól frá John Galliano og gengu þau hjónin saman upp að alt­ar­inu.

Mariah Carey og Nick Cannon

Söng­konan gekk að eiga þús­und­þjala­smið­inn á heim­ili þeirra á eyj­unni Windermere á Bahama-eyjum þann 30. apríl árið 2008. Sex árum seinna var ást­ar­bloss­inn þó slokkn­aður og Nick sótti um skilnað sem gekk í gegn árið 2016.

Jewel og Ty Murray

Söng­konan og kúrek­inn gengu í það heilaga á strönd á Bahama-eyjum árið 2008, eftir ára­langt sam­band. Árið 2014 var gam­anið hins vegar búið og þau skildu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“