„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Opnar sig um baráttu sonarins við krabbamein: „Ég hef farið í gegnum helvíti“

Opnar sig um baráttu sonarins við krabbamein: „Ég hef farið í gegnum helvíti“
|

Söngv­ar­inn Michael Bublé opnar sig um bar­áttu fjög­urra ára sonar síns, Noah, við lifra­krabba­mein í við­tali við ástr­alska dag­blaðið Herald Sun, en Noah greind­ist með krabba­mein í lok árs 2016.

Michael og eig­in­kona hans, leik­konan Luisana Lopilato, hættu að vinna þegar Noah greind­ist. Í við­tali við Herald Sun segir söngv­ar­inn að hann hafi nán­ast afskrifað það að snúa aftur í tón­list­ar­brans­ann þegar sonur hans barð­ist fyrir lífi sínu. Þá kallar hann son sinn ofur­hetju.

„Ég tala ekki um alla sög­una, ekki einu sinni við vini mína, því það er of sárt. Þetta er strák­ur­inn minn. Hann er ofur­hetja og hann þarf ekki að end­ur­lifa þetta aftur og aftur. En ég hef farið í gegnum hel­víti. Og veistu hvað, mér finnst hel­víti bara nokkuð góður sum­ar­leyf­is­staður miðað við hvað við höfum gengið í gegnum,“ segir söngv­ar­inn, sem var einn sá vin­sæl­asti í heim­inum um ára­bil.

Hér eru hjónin með syn­ina Noah og Elias.

„Ég hélt í alvör­unni að ég myndi aldrei snúa aftur í tón­list­ar­brans­ann,“ segir hann í við­tal­inu og bætir við að fjöl­skyldan hafi verið í algjörum for­gangi.

„Fjöl­skylda er það sem skiptir máli. Heilsa barn­anna minna er númer eitt. Sam­bandið við fjöl­skyld­una mína, eig­in­konu mína, trúna mína – allt þetta er að sjálf­sögðu númer eitt.“

Eiga von á barni

Michael segir að hann hafi gengið í gegnum mikla sjálfs­skoðun í gegnum veik­indi son­ar­ins. Hann rifjar upp eitt atvik við sjúkra­beð sonar síns þar sem hann hugs­aði af hverju í ósköp­unum hann hefði ein­hvern tím­ann haft áhyggjur af plötu­sölu eða hvað fólk væri að segja um hann.

„Allt í einu varð þetta svo skýrt. Þessi skýr­leiki gaf mér færi á að finna ást mína fyrir tón­list aftur. Ég ætla að snúa aftur í það sem ég var skap­aður til að gera. Ég ætla að snúa aftur í heim sem þarfn­ast ástar og róm­an­tíkur og hlát­urs meira en hann hefur þarfn­ast þess í langan tíma.“

https://www.youtube.com/watch?v=SPUJIbXN0WY

Michael og Luisana eiga einnig son­inn Elias, tveggja ára, og eiga von á sínu þriðja barni innan skamms. Söngv­ar­inn segir að Noah líði vel, en for­eldr­arnir þurfi að fylgj­ast grannt með líðan hans næstu mán­uði og árin.

„Þetta er krabba­mein þannig að við þurfum að fylgj­ast grannt með en ég myndi ekki snúa aftur í tón­list ef það væri ekki í lagi með hann.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“