„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

10 Instagram-síður sem þú ættir að skoða áður en þú ferð í klippingu

10 Instagram-síður sem þú ættir að skoða áður en þú ferð í klippingu

Það getur verið stressandi að breyta um hár­greiðslu, hvort sem það er í lit eða klipp­ingu. Því getur verið gott að skoða heim hárs­ins á inter­net­inu til að kom­ast að því hvernig maður vill að hárið sitt líti út, áður en maður heim­sækir hár­greiðslu­meist­ar­ann.

Hér eru tíu Instagram-síður sem þið ættuð að fylgja ef þið eruð í hár­greiðslu­hug­leið­ingum. Nú, eða ef ykkur finnst gaman að skoða hár, hár, hár.

1.@hairbymisskellyo

Það er unun að skruna í gegnum síð­una hjá stílist­anum Kelly O’Leary-Woodford. Þar er að finna alls kyns retró hár­greiðslur, sem og alla liti regn­bog­ans. Þessi veitir sko inn­blástur!

2. @juliuscaesar

Rakarinn Julius Arriola býr í Los Angeles og veitir karl­mönnum mik­inn inn­blástur, hvort sem um er að ræða vel snyrt and­lits­hár eða þykkan og óreiðu­kenndan lubba.

3. @leysahairandmakeup

Stelpur og strákar með krullur ættu að kíkja á síð­una hjá stílist­anum Leysa Carrillo. Hún býður upp á frá­bærar lausnir fyrir þá sem glíma við lið­ina allan lið­langan dag­inn.

4. @livedinhair

Stílisti stjarn­anna, Anh Co Tran er snill­ingur í að láta hárið líta út eins og ekk­ert hafi verið átt við það. Hann býr í Los Angeles og er meist­ari í hár­leng­ingum að eigin sögn.

5. @hairbykimtran

Hér er önnur síða sem er full af svölum hug­myndum sem hægt er að fara með á hár­greiðslu­stof­una. Stílist­inn Kim Tran er mjög fær og sýnir líka skemmti­legar fyrir og eftir myndir af við­skipta­vinum sínum.

6. @maneinterest

Þessi síða safnar saman hug­myndum frá fullt af hár­greiðslu­fólki og því er þetta full­kom­inn staður til að finna sinn hárstíl.

7. @themensgroomer

Rakarinn Jason Schneidman er ekki bara rak­ari stjarn­anna heldur einnig hjarta­hlýr og býður upp á fríar klipp­ingar fyrir heim­il­is­lausa.

8. @gooddayhairshop

Kanadíska hár­greiðslu­stofan Good Day Hair Shop er með síðu á Instagram sem minnir um margt á regn­boga. Geggj­aður inn­blástur fyrir þá sem vilja lit í lífið – og hárið.

9. @domdomhair

Það besta við þessa síðu er að stílist­inn Dominick Sema birtir oft mynd­bönd þar sem hann sýnir tækn­ina sem hann notar. Mjög hjálp­legt!

10. @schorembarbier

Rak­ara­stofan Schorem í Rott­er­dam í Hollandi sér­hæfir sig í klassíkum herra­klipp­ingum. Mjög skemmti­leg síða með fullt af flottum hár­greiðslum fyrir karl­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“