„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nóg púður eftir í tunnunni í Úkraínu

Aukin harka er hlaupin í stríðið á milli Úkraínu og Rúss­lands eftir að Rússar tóku þrjú skip úkra­ínska hers­ins og skip­verja þeirra í gísl­ingu eftir að til átaka kom við Krím­skaga. Stjórn­völd í Kænu­garði svör­uðu með því að setja her­lög sem Petro Poros­henko, for­seti Úkraínu, segir nauð­syn­leg ef ske kynni að Rússar réð­ust til inn­göngu í landið.

Nóg púður eftir í tunnunni í Úkraínu
Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti.

Stríð hefur geisað í Úkraínu allt frá því Rússar hertóku Krím­skaga þvert á alþjóða­lög. Stríðið er að mestu bundið við Luhansk og Donetsk í aust­ur­hluta lands­ins en þar hafa upp­reisn­ar­menn, dyggi­lega studdir af Rússum, haldið uppi hern­aði gegn úkra­ínska hernum. Yfir 10 þús­und manns hafa fallið í átök­unum. Skær­urnar í vik­unni hófust þegar úkra­ínsku her­skipin freist­uðu þess að sigla frá Odessa til Mariupol sem bæði eru undir stjórn Úkraínu. Til þess þurftu þau að sigla fyrir Krím­skaga, í gegnum Kerch-sund og inn á Azovshaf þar sem Rússar ráða ríkjum. Til átaka kom þegar skipin sigldu inn á Kerch-sund og slös­uð­ust sex úkra­ínskir skip­verjar áður en Rússar tóku skipin yfir. Vilja Rússar meina að skipin hafi siglt ólög­lega inn í rúss­neska lög­sögu. NATO boð­aði til neyð­ar­fundar á mánu­dag­inn vegna atviks­ins þar sem nið­ur­staðan var að for­dæma fram­ferði Rússa.

Herlögin sem úkra­ínska þingið sam­þykkti á þriðju­dag­inn eru bundin við 10 af 27 hér­uðum lands­ins og gilda í 30 daga. Þetta eru þau héruð sem eiga landa­mæri að Rúss­landi, Trans-Dniester-hér­aði í Moldavíu þar sem rúss­neski her­inn er með við­veru og við strönd­ina að Azovshafi. Á þessum tíma verða mót­mæli og verk­föll bönnuð og almennir borg­arar geta verið kall­aðir í her­inn. Poros­henko segir að þetta hafi ekki áhrif á for­seta­kosn­ing­arnar sem fyr­ir­hug­aðar eru í mars.

Litlir grænir menn á Krím­skaga
Stríðið í Úkraínu hófst eftir að Viktor Yanukovych var hrak­inn úr stóli for­seta í bylt­ing­unni á Maidan-torgi í árs­byrjun 2014. Yanukovych var hlið­hollur Rússum en upp úr sauð þegar hann bakk­aði út úr við­skipta­samn­ingi sem gerður hafði verið við Evr­ópu­sam­bandið og hugð­ist styrkja tengslin við Rússa enn frekar. Um svipað leyti fór að bera á „litlum grænum mönnum“ á Krím­skaga, það er ómerktum her­mönnum sem lögðu undir sig mik­il­væg mann­virki. Velktist eng­inn í vafa um að þarna færu rúss­neskir her­menn sem nutu lið­sinnis upp­reisn­ar­manna hlið­hollum Rússum. Í byrjun mars efndu upp­reisn­ar­menn til „þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu“ þar sem sam­þykkt var að Krím­skagi skyldi til­heyra Rúss­landi og hafa Rússar haft fulla stjórn á Krím­skaga síðan. Aðeins fimm ríki við­ur­kenna yfir­ráð Rúss­lands á skag­anum sem hefur gríð­ar­legt hern­að­ar­legt mik­il­vægi fyrir Rússa, en þaðan stýra þeir Svarta­hafs­flota sínum.

„Við erum að verða vitni að enn einni gáleys­is­legri ögrun­inni af hálfu Rússa. Banda­ríkin munu sem fyrr standa með úkra­ínsku þjóð­inni gagn­vart ágengni Rússa.“ – Nikki Haley, sendi­herra Banda­ríkj­anna hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum.

Dæla vopnum og fjár­munum í upp­reisn­ar­menn
Í apríl 2014 hófust bar­dagar á milli upp­reisn­ar­manna og úkra­ínska stjórn­ar­hers­ins í Donetsk og Luhansk og standa þau átök enn yfir. Hernaður Rússa í Úkraínu er um margt óhefð­bund­inn. Rússar hafa löngum þrætt fyrir aðkomu sína að átök­unum en ekki þarf að velkj­ast í vafa um að upp­reisn­ar­menn­irnir eru ríku­lega studdir af stjórn­völdum í Kreml, bæði að vopnum og fjár­munum. Til að mynda er sannað að það voru upp­reisn­ar­menn sem skutu niður far­þega­þotu Mala­ysian Airlines yfir aust­ur­hluta Úkraínu sem varð 283 manns að bana. Samhliða því hafa Rússar beitt tölvu­árásum í Úkraínu og notað rík­is­fjöl­miðla sína grimmt í áróð­urs­stríði.

Við­skipta­bannið bítur
Fjöldi ríkja, þar með talið Ísland, sam­ein­að­ist um að beita Rússa efna­hags­þving­unum vegna fram­ferðis þeirra í Úkraíanu. Frá því fyrsta við­skipta­bannið – sem nær til stjórn­valda, fyr­ir­tæka og ein­stak­linga – var sett á í febr­úar 2014 hefur það verið fram­lengt með reglu­legu milli­bili og mun að öllum lík­indum verða fram­lengt aftur þegar það rennur út í febr­úar á næsta ári. Aðgerð­irnar hafa vissu­lega valdið Rússum vand­ræðum, en þau hafa einnig haft nei­kvæð áhrif á nokkrar af við­skipta­þjóðum Rússa í Evrópu. Í vik­unni greindi Washington Post frá því hvernig Rússar hafa farið í kringum bannið og haldið áfram að fjár­magna upp­reisn­ar­menn í Úkraínu með því að flytja fjár­muni milli Moskvu og Úkraínu í gegnum Suður-Ossetíu, land­svæði í Georgíu sem Rússar hafa hernumið frá því 2008.

„Þetta [Úkra­ínu­menn] eru stiga­menn. Þeir nota aðferðir stiga­manna, fyrst ögra þeir, svo beita þeir valdi og loks saka þeir aðra um að beita valdi.“ – Maria Zakharova, tals­maður rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Pútín sér leik á borði
Ólíklegt er að skær­urnar í vik­unni endi með alls­herjar stríði á milli ríkj­anna tveggja. Hins vegar er ekk­ert sem bendir til þess að Rússar láti Krím­skaga af hendi og láti af stuðn­ingi við upp­reisn­ar­menn í Úkraínu. Þvert á móti bendir margt til þess að átökin gætu harðnað enn frekar næstu miss­erin. Rússar gætu séð sér hag í því að magna upp átökin í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í mars til að veikja stöðu Poros­henko. Að sama skapi hafa vin­sældir Vladímírs Pútín heima fyrir dalað sökum þreng­inga í efna­hags­líf­inu og reynslan sýnir að þegar her­inn hnyklar vöðvana aukast vin­sældir hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

heimurinn

Bræður af frumbyggjaættum fundust eftir fjögurra vikna leit – lifðu á regnvatni
Heimurheimurinn

Bræður af frum­byggja­ættum fund­ust eftir fjög­urra vikna leit – lifðu á regn­vatni

Bræð­urnir Glauco og Gleison Ferreira fund­ust á lífi eftir að hafa verið saknað í fjórar vikur í regn­skógum Amasón í Brasilíu. Bræð­urnir sem eru sex og átta ára gamlir eru af frum­byggja­ættum en týnd­ust þeir eftir að hafa verið á fugla­veiðum í regn­skóg­inum. Skóg­ar­höggs­maður fann dreng­ina á þriðju­dag en höfðu mörg hund­ruð manns tekið þátt í leit­inni eftir að til­kynnt...
Örlagaríkt símtal forsetanna – Biden gefur forseta Kína viðvörun
Heimurheimurinn

Örlaga­ríkt sím­tal for­set­anna – Biden gefur for­seta Kína við­vörun

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti mun ræða við Xi Jingping, for­seta Kína sím­leiðis í dag en hafa þeir ekki rætt saman frá því í nóv­em­ber á síð­asta ári. Banda­rískir emb­ætt­is­menn hafa lýst því yfir síð­ustu vikur að Kín­verjar muni gjalda fyrir það, komi þeir Rússum til hjálpar. Þá er talið að Biden muni ítreka þær yfir­lýs­ingar við Jingping í dag en myndu...
Rússar sprengdu upp byggingar þar sem óléttar konur og börn leituðu skjóls
Heimur

Rússar sprengdu upp bygg­ingar þar sem óléttar konur og börn leit­uðu skjóls

Rússar gerðu árásir á leik­hús og sund­lauga­bygg­ingu í Maríupól í gær­kvöldi en greindi breski mið­ill­inn The Guardian frá árásinni. Enn er óvíst um afdrif rúm­lega 400 manns eftir árás­ina en höfðu óléttar konur og börn leitað sér skjóls í bygg­ing­unni. Þá hafa myndir sýnt myndir frá rúst­unum en fjöldi lát­inna liggur ekki fyrir. Vóló­dímír Selenskí, for­seti Úkraínu, sagði Rússland vera...
Úkraínumenn á Íslandi senda út nauðsynjar: „All­ur heim­ur­inn er und­ir áhrif­um“
Innlent

Úkra­ínu­menn á Íslandi senda út nauð­synjar: „All­ur heim­ur­inn er und­ir áhrif­um“

„Það er mik­il­vægt að hafa í huga að þetta stríð hófst í fe­brú­ar 2014 og úkra­ínska þjóðin mun enn þurfa á hjálp að halda þegar því lýk­ur,“ sagði Ljú­bómíra Pe­trúk, stjórn­ar­for­maður Fé­lags Úkraínu­manna á Íslandi, í sam­tali við mbl.is. Félag Úkra­ínu­manna á Íslandi vinnur nú að því að skipu­leggja flug til Úkraínu þar sem nauð­synjar verða fluttar til flótta­manna. Ljúbó­míra...
Myndband – stærðarinnar sprenging í Kharkiv í morgun
Heimur

Myndband – stærð­ar­innar spreng­ing í Kharkiv í morgun

Nú í morgun var gerð sprengju­árás í Kharkiv en birt­ist mynd­band af spreng­ing­unni á sam­fé­lags­miðlum sem má sjá hér að neðan. Sprengjan lenti rétt fyrir utan bygg­ingu sem Kyiv Independent hefur skil­greint sem höf­uð­stöðvar rík­is­stjórn­ar­innar á þessu svæði. Er sprengjan sögð hafa verið til­raun til þess að ráða rík­is­stjóra Kharkiv af dög­unum en hefur borgin verið skot­mark Rússa frá því...
Ingólfur og Ingvar gengu yfir til Póllands: „Búnir að vera í 16 tíma á ferðinni“
Innlentheimurinn

Ingólfur og Ingvar gengu yfir til Póllands: „Búnir að vera í 16 tíma á ferð­inni“

„Við erum búnir að vera hér Pól­lands­meg­inn frá því klukkan fjögur í morgun. Erum komnir í her­bergi hjá vinum vina og erum búnir að ná að sofa í nokkra klukku­tíma,“ sagði Ingólfur Bjarni Sig­fús­son, frétta­maður RÚV í við­tali við Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun. Er hann ásamt Ingvari Hauki Guð­munds­syni töku­manni, kom­inn yfir til Póllands eftir að hafa verið...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“