„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ný þingkona hristir upp í húsinu

Alex­andria Ocasio-Cortez hefur komið eins og storm­sveipur inn í banda­rísk stjórn­mál.

Ný þingkona hristir upp í húsinu

Þing­konan Alex­andria Ocasio-Cortez leiðir nú hóp fram­sýnna demókrata sem krefj­ast þess að gerður verði nýr grænn sátt­máli „New Green Deal“ sem gengur út á útfösun jarð­efna­elds­neytis og að sköpun umhverf­is­vænna starfa. Fyrir skömmu tók hún þátt í mót­mælum í tengslum við lofts­lags­breyt­ingar og skort á aðgerðum demókrata í þing­inu á skrif­stofu Nancy Pelosi, sem er hennar flokks­systir og leiðir demókrata í hús­inu. Sama dag til­kynnti hún að hún myndi í próf­kjörum fyrir kosn­ingar 2020 styðja aktí­vista sem ætla fram úr röðum demókrata. Með því lýsir hún yfir van­trausti á nýja sam­starfs­menn sína, núver­andi sitj­andi full­trúa demókrata.

Ocasio-Cortez er í hópi sós­íal-demókrata enda vann hún í kosn­inga­bar­áttu Bernie Sanders. Hún var kosin á þing í fjórt­ánda umdæmi New York borgar. Merki­legt nokk var hún líka kosin sem full­trúi fimmt­ánda umdæmis í próf­kjöri demókrata, þó hún væri ekki einu sinni í fram­boði þar. Því þurfti hún að velja um kjör­dæmi. Augljóst er að hún á sér marga fylgj­endur í borg­inni.

Alin upp af einstæðri móður í Bronx

Þing­konan er nýorðin 29 ára og hefur þar með sett met sem yngsta kjörna þing­konan í amer­íska þing­inu. Hún er fædd í Bronx, alin upp af ein­stæðri móður sem þurfti að skrúbba kló­sett og harka til að eiga fyrir reikn­ingum. Ung fór Ocasio-Cortez að hjálpa við heim­il­is­haldið m.a. með því að vinna á bar. Kosn­inga­bar­átta hennar hefur mikið snú­ist um að hún ætli að standa með sinni stétt, færa valdið til fólks­ins og hún sé málsvari almenn­ings og breyt­inga í banda­rískum stjórn­málum. And­stæð­ingar hennar hafa þegar ráð­ist á hana m.a. með því að vega að því að hún sé málsvari lág­launa­fólks, með því að nota jakka sem hún klædd­ist í þing­inu, með dylgjum um að hann væri of fínn.

Innan Washington hefur hún verið að þyrla upp ríkj­andi hefðum, vill opna störf þings­ins fyrir almenn­ingi og gera þingið mann­legra með því að nota sam­fé­lags­miðla í meira mæli. Ocasio-Cortez er orðin stjarna á stuttum tíma á smá­forrit­inu Instagram með um milljón fylgj­endur. Áður­nefnd Nancy Pelosi, sem hefur í ára­tugi verið í banda­rískum stjór­málum og sem leiðir demókrata í þing­inu, hefur til sam­an­burðar aðeins um 130.000 fylgj­endur.

Það verður áhuga­vert að fylgj­ast með Ocasio-Cortez og nýjum þing­mönnum demókrata á næstu miss­erum, en athygli vekur að sós­í­al­ismi er að riðja sér til rúms í banda­rískum stjórn­málum. Skilaboð þessa nýju þing­manna eru talin rót­tæk og ekki kerf­is­læg, en það var tal­inn einn helsti styrk­leiki Trump og há Hillary Clinton að hún væri of kerf­is­læg. Hvort sterka mót­vægið sem nær að velta Donald Trump úr sessi sé fólgið í sterkum sós­í­al­isma verður að koma í ljós.

Mynd / Af Facebook síðu Alexöndiu

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“