„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vantrausttillaga gegn Theresu May

Theresa May mun standa frammi fyrir van­traust­til­lögu þing­manna síns eig­ins flokks, breska Íhalds­flokks­ins. Samkvæmt reglum flokks­ins þurfa 15% með­lima hans að skrifa til sér­stakar nefndar sem ákveður að setja af stað atkvæða­greiðslu um for­yst­una og þeim skil­yrðum var full­nægt í gær. Talið er að það sem hafi fyllt mælin hafi verið ákvörðun May um að hætta við þing­kosn­ingu um Brexit.

Vantrausttillaga gegn Theresu May
Theresa May.

Atkvæða­greiðsla þing­manna mun fara fram milli klukkan 18 og 20 í kvöld. Mun nið­ur­staðan verða til­kynnt skömmu síðar. Ef hún er rekin með þessum hætti mun taka um sex vikur fyrir breska íhalds­flokk­inn að velja sér nýjan leið­toga.

Í yfir­lýs­ingu sem May sendi frá sér í kjöl­farið kvaðst hún ætla að berj­ast gegn van­traust­til­lög­unni. Van­traust­s­til­lagan kemur eins og köld tuska í and­litið á May sem hingað til hefur staðið sig nokkuð vel við erf­iðar aðstæður og tekið á sig mikla ábyrgð vegna Brexit. Tillagan er komin frá þeim með­limum sem styðja Brexit hvað harð­ast. Það er því ekki aðeins sótt að May frá þeim sem vilja ekki úr ESB, heldur einnig af hálfu hennar eigin flokks­manna sem vilja harð­línu Brexit.

For­sæt­is­ráð­herra þarf 158 atkvæði sér í vil til að stand­ast van­traust­til­lög­una, og er hún þá örugg í 12 mán­uði í við­bót. Spurn­ingin er hins vegar sú hvort henni er stætt að sitja áfram í emb­ætti eftir þessa aðför og hvaða þýð­ingu þetta hefur fyrir Brexit samn­ing­inn. Tíminn tifar og útganga Breta er áætluð í lok mars á næsta ári.

Mögu­legir arf­takar hafa verið nefndir Boris Johnsson, fyrrum utan­rík­is­ráð­herra, Jeremy Hunt, núver­andi utan­rík­is­ráð­herra, Sajid Javid, inn­an­rík­is­ráð­herra og Penny Mordaunt, þró­un­ar­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ESB

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“