„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Auktu hamingju þína með einföldum ráðum

Nokkur ráð til að auka ham­ingju sína.

Auktu hamingju þína með einföldum ráðum

Engin þörf er á því að verja stórfé eða snúa lífi sínu á hvolf til að hækka ham­ingju­stigið hjá sér. Heilmargt er hægt að gera til að auka ham­ingju sína og hér eru nokkur ráð sem gott væri að til­einka sér.

Mik­il­vægi jákvæðra hugs­ana
Það er sér­deilis gott að venja sig á að hugsa jákvætt um sjálfan sig á hverjum degi, þó ekki væri nema í nokkrar sek­úndur. Dást að nýju klipp­ing­unni fyrir framan speg­il­inn, þakka sér góðan árangur eða dugnað og annað í þeim dúr. Gott er líka að skrifa niður hugs­anir sínar eins oft og hægt er og geyma þar sem aðrir sjá ekki, með því að koma þeim á blað nær maður sam­hengi hlut­anna betur. Ekki hika við að deila góðum stundum með öðrum, til dæmis á Facebook eða snapp­inu.

Mik­il­vægi hvíldar
Hvíld er mik­il­væg, ekki bara heima, heldur líka í vinn­unni. Þegar mikið er að gera freist­ast maður til að fá sér snarl og borða það á meðan maður vinnur. Betra er að taka sér stutta pásu en enga og koma ferskari að verk­efn­inu á eftir. Helg­ar­fr­íum verja flestir í skemmt­anir, ferða­lög og annað slíkt en ekki má gleyma hvíld­inni. Það tekur langan tíma að ná úr sér upp­safn­aðri þreytu, svo verum ekk­ert að safna henni upp. Með því til dæmis að kíkja á tölvu­póst­inn sinn um leið og maður vaknar er maður sjálf­krafa kom­inn í vinnugír­inn í stað þess að leyfa hug­anum að hvíl­ast ögn lengur, eða þar til komið er til vinnu.

Litlar áskor­anir
Finndu leið til að hrista upp í dag­legri rútínu þinni til að hún fest­ist ekki í fari. Lítil áskorun viku­lega? Að brosa framan í ein­hvern ókunn­ugan sem gleður ekki bara við­kom­andi, heldur einnig þig. Sjón­varps- eða síma­laus dagur í algjörri ró. Eða klífa fjöll ef þú hefur ekki prófað það. Prófa nýjan kaffi­drykk eða nýjan veit­inga­stað. Allt til að breyta aðeins út af van­anum.

Sniðugt er líka að gera alltaf eitt­hvað spenn­andi einn dag í viku. Það þarf ekki að vera stórt, kannski ilm­andi freyði­bað eða að byrja á nýrri bók, eitt­hvað sem þú getur hlakkað til alla vik­una. Föstu­dagar, í lok vinnu­vik­unnar hjá flestum, gætu verið hentugir.

Texti / Guðríður Har­alds­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu